Panama-skjölin: Hörð viðbrögð stjórnvalda í Frakklandi

Franskir ráða­menn hafa lýst Panama-skjöl­unum sem einu stærsta og mik­il­væg­asta máli síð­ari tíma. Skatta­svik eru talin eitt alvar­leg­asta efna­hags­vanda­mál Frakk­lands og Evrópu og nú verði að beita öllum vopnum til að reyna upp­ræta slíkt. Nóg sé til að auð­æfum og fjár­munum í álf­unni – þeir eru bara geymdir ann­ars staðar og ekki nýttir.

Frönsk stjórn­völd eru komin í hart og hafa skorað á Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ina OECD að flokka Panama með skatta­skjólum. Michel Sapin, fjár­mála­ráð­herra, hefur lýst því yfir að Panama verði sett á lista franskra stjórn­valda yfir ósam­vinnu­þýð ríki í bar­átt­unni við skattsvik­ara. Ísland og mál fyrrum for­sæt­is­ráð­herr­ans, Sig­mundar Davíðs, hefur verið mjög áber­andi í frönskum fjöl­miðlum.

Frakkland og Panama-skjölin

Það er mikið fjallað um málið í frönskum fjöl­miðlum. Stór­blaðið Le Monde tók þátt í rann­sókn­ar­vinn­unni ásamt öðrum rann­sókn­ar­blaða­mönnum og leiðir málið. Franska rík­is­sjón­varpið tekur virkan þátt í þess­ari upp­ljóstrun og sýnir reglu­lega frétta­þætti.

François Hollande, for­seti Frakk­lands, segir að leki Panama skjal­anna sé af hinu góða og muni leiða til þess að skattsvik­arar verði ákærðir. Framundan er umfangs­mikil rann­sókn á öllum þeim nöfnum og fyr­ir­tækjum sem tengj­ast Frakk­landi. Skatta­yf­ir­völd rann­saka nú þessi mál af fullum krafti og vísa þeim svo til dóm­stóla. Allir þeir sem koma fram í skjöl­unum verða lög­sóttir.

Hollande hefur ítrekað sent þakkir til þeirra sem láku skjöl­unum; hann seg­ist vera viss um að lek­inn eigi eftir að leiða til þess að ríkið end­ur­heimti tap­aðar skatt­tekjur sem eigi eftir að rétta við efna­hags­á­standið. Hann hefur bent á að ein orsök efna­hagslægð­ar­innar séu skatt­svik og aflands­fé­lög. Það sé nóg af auði í Evrópu, eða rétt­ara sagt auð­mönnum sem hafa komið pen­ingum í skatta­skjól. OECD, sem er stað­sett í París, hefur lengi verið í stríði við þessa starf­semi, og sagt að hún sé ógn við efna­hags­lífið og sam­fé­lags­leg gildi.

Ljóst er að frönsk stjórn­völd ætla að nýta þetta tæki­færi til að ráð­ast á skatt­svik og starf­semi aflands­fé­laga. Panama er komið á lista franskra stjórn­valda yfir ósam­vinnu­þýð ríki í bar­átt­unni við skattsvik­ara. Ríkin tóku sig saman fyrir nokkrum árum og sömdu um að Pana­ma­menn veittu upp­lýs­ingar um fólk og fyr­ir­tæki sem reyndu að koma sér undan skatt­greiðslum með því að fela fé í aflands­fé­lögum. Panama­skjölin sýna að þeir samn­ingar hafa verið margrofnir. Þessi aðgerð er talin eiga eftir að hafa mikil áhrif á við­skipti fólks við fjár­mála­stofn­anir þar í landi.

Þjóðfylkingin með fé í skattaskjólum

Hægri öfga­flokk­ur­inn Þjóð­fylk­ingin, Front National, hefur verið í við­skiptum við lög­fræði­fyr­ir­tækið Mossack Fonseca sem aðstoð­aði við að milli­færa pen­inga til Hong Kong, Singapúr, og Bresku jóm­frú­areyj­anna. Flókið kerfi til þess að fela pen­inga sem end­uðu svo í skúffu­fyr­ir­tæki á Jóm­frú­areyjum.

Augljóst þykir að þetta sé gert til þess fela fé, kom­ast fram hjá skatta­yf­ir­völdum og hugs­an­lega til þess að hvít­þvo pen­inga. Sak­sókn­arar í Frakk­landi rann­saka þetta má sem meint pen­inga­þvætti og skatt­svik. Þetta gæti haft áhrif á stöðu Marine Le Pen, for­mann flokks­ins, sem stefnir í for­seta­fram­boð á næsta ári.

Platini og fótbolta-klíkan

Michel Platini, ein­hver mesta hetja og knatt­spyrnu­goð­sögn Frakka fyrr og síðar, er nú varla skugg­inn af sjálfum sér. Í augum flestra er hann skúrkur og svik­ari. Þessi fyrrum fyr­ir­liði franska land­liðs­ins og fyrrum for­seti knatt­spyrnu­sam­bands Evrópu, UEFA, fékk Mossack Fonseca lög­fræði­stof­una í Panama til þess að útbúa aflands­reikn­ing þar í landi árið 2007, árið sem hann varð for­seti UEFA. Hann fékk pró­kúru yfir félag­inu Balney Enter­prises Corporation sem var enn virkt í mars 2016.

Platini full­yrðir hins vegar að hann hafi alltaf greitt opin­ber gjöld af þessum eignum sínum, þær væru gefnar upp til skatts í Sviss þar sem hann er búsettur. Sviss­nesk yfir­völd hafa verið upp­lýst um alla reikn­inga og við­skipti hans. Fáir trúa orðum hans; Platini afplánar um þessar mundir sex ára bann hjá Alþjóða kantt­spyrnu­sam­band­inu vegna greiðslu sem hann fékk frá FIFA árið 2011.

Fyrrum rit­ari FIFA, Jerome Valcke, er líka í slæmum málum. Hann er sömu­leiðis í banni vegna ákæru um spill­ingu. Fyr­ir­tæki tengt Jerome, Umbelina SA, er einnig að finna í skjöl­unum þar sem það er skrá­sett á Bresku Jóm­frúreyj­unum í júlí 2013. Fyr­ir­tækið virð­ist hafa verið notað til þess að kaupa snekkju. Hann stað­hæfir að fyr­ir­tækið sé ekki lengur til og þar hafi aldrei verið geymt fé eða nein við­skipti stunduð. Fjár­mála­hneyksli hafa ein­kennt fót­bolta­heim­inn að und­an­förnu og þessar fréttir eru síst til að auka virð­ingu fólks á honum.

Afsögn ráðherra

Fyrir þremur árum sagði fjár­laga­ráð­herra Frakk­lands, Jérôme Cahuzac, af sér emb­ætti vegna ásak­ana um að hann hafi ekki upp­lýst um sviss­neskan banka­reikn­ing sinn. Hann hélt upp­lýs­ingum leyndum fyrir François Hollande Frakk­lands­for­seta. Þetta var mikið vand­ræða­mál – hann var strax lát­inn taka pok­ann sinn þegar upp komst um málið. Hollande hafði lofað því frá byrjun að stjórn sín yrði til fyr­ir­myndar og þar þrif­ist engin spill­ing. Eitt af bar­áttu­málum hans hefur verið að berj­ast gegn skattsvikum og pen­inga­þvætti. Þetta þótti því afar vand­ræða­legt að einn ráð­herra hans hefði stundað skatt­svik.

Rannsókn fjöl­miðla kom upp um mál Cahuzac sem leiddi síðan til afsagnar hans úr ráð­herra­stóli. Hann var þrá­spurður af frétta­fólki en neit­aði ávalt til­vist þessa reikn­ings. Fyrstu fréttir um að ekki væri allt sem sýnd­ist birt­ust í jan­úar 2013 á frétta­vef­síð­unni Medi­ap­art. Þeim var fylgt fram af meiri krafti og meiri rann­sókn­ar­blaða­mennsku en menn eiga að venj­ast í frönskum fjöl­miðlum, blöðum eða ljós­vaka­miðlum.

Þegar upp komst um málið og það var til­kynnt að skatta­mál hans yrðu rann­sökuð – þá sagði hann af sér.

Umfjöllun um Ísland

Það er mikið fjallað um þátt Íslands í Panama-skjöl­unum. Fyrstu dag­ana mátti sjá Sigmund Davíð Gunn­laugs­son í hópi með Pútín, Platini og þekktum ein­ræð­is­herrum um heim allan.

Í Le Monde mátti m.a. lesa þetta:

„Þetta eru nöfnin sem vekja hvað mesta athygli: Petro Porochenko, for­seti Úkraínu, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra Íslands og Al-Saud kon­ungur Sádi-Arabíu. Hvað eiga þeir sam­eig­in­legt? Tengsl við aflands­fé­lög í skattaparadísum í gegnum fyr­ir­tæki í Panama, Mossack Fonseca“

Menn bjugg­ust ekki við að sjá for­sæt­is­ráð­herra Íslands í hópi sem nýtir sér þjón­ustu fyr­ir­tækis eins og Mossack Fonseca og því vakti það mikla athygli.

Viðtalið fræga hjá sænska rík­is­út­varp­inu var sýnt víða hér í Frakk­landi. Fjöl­margir franskir frétta­menn fóru til Íslands og fylgd­ust með mál­inu í vik­unni og sýndu frá mót­mæl­unum.

Frétta­skýr­inga- og háðsá­deilu­þátt­ur­inn Le Petit Journal, sem er gríð­ar­lega vin­sæll í Frakk­landi og sýndur á besta tíma í sjón­varpi, fór til Íslands í vik­unni. Blaða­mað­ur­inn Martin Weill fjall­aði um atburði síð­ustu daga og fylgd­ist með mót­mæl­unum, auknu fylgi pírata og tók við­tal við Bjarna Bene­dikts­son.

Í þætt­inum gagn­rýndi Weill að Bjarni sæti enn sem fjár­mála­ráð­herra, þrátt fyrir dag­leg mót­mæli og tengsl hans við Panama. Í ljósi póli­tískra afsagna í Frakk­landi þykir kannski ekki skrítið að blaða­manni hafi fund­ist sjálf­sagt að Bjarni myndi ekki geta setið áfram. En Bjarni þótti vera snubb­óttur í svörum og hlaut því kannski enn verri útreið í þætt­inum en hann mátti búast við, enda er alls ekki skyn­sam­legt að ögra þessum hár­beittu háðs­fuglum. Þeim þótti greini­lega allt þetta mál vera far­sa­kennt og sorg­lega fyndið – eins og kannski svo mörgum öðrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár