Krefjandi tímar framundan í Noregi

Horfur í efna­hags­málum Noregs hafa versnað nokkuð á und­an­förnu ári og ástæðan er nokkuð auð­sjá­an­leg; hröð verð­lækkun á olíu. Á mark­aði í morgun hélt hrá­olía áfram að lækka í verði og kostar tunnan nú 44 Band­ríkja­dali, en fyrir um ári síðan var verðið tæp­lega 110 Banda­ríkja­dalir. Fyrir olíu­fram­leiðslu­ríki eins og Noreg, sem hefur upp­lifað mikla efna­hags­lega upp­sveiflu á und­an­förnum árum, þá eru þetta nei­kvæðar fréttir. Fjöl­margir Íslend­ingar hafa flutt til Noregs á und­an­förnum árum, þar sem stöðuga og fjöl­breytta atvinnu hefur verið þar á fá, en 4.500 Íslend­ingar umfram aðflutta, hafa flutt til Noregs frá því árið 2009. Um 7.600 fleiri Íslend­ingar hafa flutt frá Íslandi en til þess frá árinu 2009, og skýrir straum­ur­inn til Noregs stóran hluta þeirrar tölu.

Mikil margfeldisáhrif


Eins og greint var frá á vef Kjarnans á laug­ar­dag þá telja sér­fræð­ingar hjá banda­ríska bank­anum Goldman Sachs að verðið á olíu muni hald­ast fremur lágt á næsta ári, og geti jafn­vel farið niður í 20 Banda­ríkja­dali á tunn­una, þar sem offram­boðið á mark­aði sé meira en talið hafi verið til þessa. Aðeins ákvörðun olíu­fram­leiðslu­ríkja, OPEC, um að draga úr fram­leiðslu geti leitt til verð­hækk­unar. En slík ákvörðun getur einnig verið sárs­auka­full fyrir ríkin sem eiga mikið undir olíu­fram­leiðslu og sölu, í það minnsta til skamms tíma.

Framlegð olíu­við­skipta hefur mikil áhrif á norska hag­kerfið en Noregur er næst stæri útflytj­andi á nátt­úru­legu jarð­gasi og fimmta mesta olíu­fram­leiðslu­ríki heims­ins. Frá því árið 1969, þegar olía fannst fyrst í norskri lög­sögu, hefur hag­kerfið umturn­ast og orðið eitt það allra sterkasta í heimi, enda Noregur lítið land á flesta mæli­kvarða, með 5,1 millj­ónir íbúa. Vog­skorin strang­d­leggja og krefj­andi sam­göngur gerðu land­inu um margt erfitt fyrir í upp­bygg­ingu, áður en olía fannst.

Olíu klasinn risavaxinn


Allt frá því olían fannst hafa norsk stjórn­völd lagt áherslu á tvö meg­in­mark­mið. Það er að nýta olíu­auð­inn fyrir kom­andi kyn­slóðir, og geyma fjár­mun­ina að lang­mestu leytu (95 pró­sent) í eignum utan Noregs, og síðan að byggja upp þjón­ustu­iðnað þar sem stuðst er við klasa-aðferð­ar­fræð­ina. Klasinn telur nú um 136 þús­und störf en við frum­vinnslu olíu starfa 22 þús­und manns. Stuðn­ings­þjón­usta við olíu­iðn­að­inn er því mun mik­il­væg­ari hag­kerf­inu en beina vinnslan sjálf.

Olíu­sjóður lands­ins nálg­ast hratt þús­und millj­arða dala markið, eða sem nemur um 129 þús­und millj­örðum króna, en með­al­tals­á­vöxtun hans síð­ustu þrjú árin hefur verið um fimm pró­sent. Eigna­staða sjóðs­ins er sam­bæri­leg við ríf­lega sex­tíu­falda árlega lands­fram­leiðslu Íslands, en um fimmtán sinnum fleiri búa í Noregi en á Íslandi.

Ekki mikill slaki nema á vissum svæðum


Enn sem komið er sést það ekki glögg­lega á hag­töl­unum í Noregi að það sé kom­inn slaki í þjóð­ar­bú­skap­inn. Atvinnu­leysi mælist 4,5 pró­sent og verð­bólga er um tvö pró­sent. Það eru helst viss svæði, þar sem þjón­usta við olíu­iðn­að­inn er fyr­ir­ferða­mikil, sem hafa fundið fyrir lækk­andi olíu­verði og minnk­andi umsvifum. Þar á meðal er Rogaland, þar sem Stavan­ger er mið­punkt­ur­inn með höf­uð­stöðvar Statoil innan sinna vébanda. Tæplega hálf­milljón manna býr í Roga­landi, eða 482 þús­und miðað við tölur frá árinu 2013. Í Stavan­ger búa 130 þús­und manns og í Roga­landi öllu búa lík­lega um sex þús­und Íslend­ingar, en heild­ar­fjöldi Íslend­inga í Noregi er nú um tíu þús­und manns, ef mið er tekið af tölum Hag­stof­unnar, sem er sam­bæri­legt við þann fjölda sem skráður er á Facebook síðu Íslend­inga í Noregi.

Á þessu svæði hefur hægst á hjólum atvinnu­lífs­ins. Fast­eignir selj­ast hægar en áður og mörg fyr­ir­tæki sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn hafa dregið saman seglin. Sumir eru svart­sýnir á gang mála, og telja mikla erf­ið­leika framundan á næstu árum.


I år Detroit, neste år Stavan­ger - Aften­bla­det.no http://t.co/sm7HtvQlvc


— Nino Brodin (@Orgetorix) Sept­em­ber 14, 2015

Til marks um hversu næmt atvinnu­lífið á þessu svæði er fyrir sveiflum í olíu­iðn­aði, að þá er talað um það í Noregi, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá við­skipta­vef­síð­unni Dagens Nær­ingsliv, að hagn­að­ar­markið þegar kemur að olíu­verði (break even) sé um 63 Banda­ríkja­dalir á tunn­una. Það er óra­fjarri stöð­unni eins og hún er nú, og eins og áður segir þá virð­ist verðið ekki vera að hækka mikið á næst­unni

Sterkir innviðir og margar stoðir


Noregur hefur ekki aðeins olí­una til þess að reiða sig á heldur er landið að mörgu leyti hrá­vöru­stór­veldi. Álf­ram­leiðsla er mikil, með Norsk Hydro sem stærsta fyr­ir­tækið, og sjáv­ar­út­vegur, ekki síst eld­is­fiskur, er einnig meðal mik­il­væg­ustu geira atvinnu­lífs­ins. Mótbyr er á þessum víg­stöðum nú, eins og mörgum öðrum. Norsk stjórn­völd hafa að und­an­förnu und­ir­búið gríð­ar­lega umfangs­miklar fjár­fest­ingar á sviði vist­vænnar orku, og eru nú á teikni­borð­inu allt að sex nýir sæstrengir sem selja á raf­orku um til Evrópu, þar á meðal til 750 kíló­metra langur strengur til Bret­lands sem þegar hefur verið samið um. Markmið Noregs er að innan tíu ára þá verði sala á vist­vænni raf­orku til Evrópu jafn mik­il­væg efna­hag Noregs og olíu­fram­leiðslan.

Þrátt fyrir að nú séu blikur á lofti í efna­hags­málum Noregs, og krefj­andi tímar framundan, þá er tölu­vert í að það sé hægt að tala um kreppu. En eftir því sem tíma­bilið verður lengra, þar sem olíu­verð helst lágt á heims­mörk­uðum, þá munu æ fleiri fyr­ir­tæki þurfa að grípa til sárs­auka­fullra aðgerða og haga seglum eftir efna­hags­legum vindi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár