Goldman Sachs telur olíuverð geta farið niður í 20 Bandaríkjadali á tunnuna

Sér­fræð­ingar banda­ríska bank­ans Goldman Sachs telja að verð á olíu geti fallið meira en það hefur þegar gert, og gerir spá bank­ans ráð fyrir að hrá­olía (crude oil) fari niður í 46 Banda­ríkja­dali á tunn­una að með­al­tali á næsta ári, en það er nú 48 Banda­ríkja­dalir. Fyrri spá hafði gert ráð fyrir 57 dölum að með­al­tali.

Í spá bank­ans, sem vef­mið­il­inn Quartz vitnar til, kemur fram að offram­boð af olíu sé tölu­vert meira en sér­fræð­ingar bank­ans höfðu reiknað með í fyrri spá, og ef ekki komi til þess að olíu­fram­leiðslu­ríkin, OPEC, dragi úr fram­leiðslu, þá geti það leitt enn meiri verð­falls, og jafn­vel farið niður í 20 Banda­ríkja­dali á tunn­una.

Ljóst er að slík lækkun gæti haft mikil efna­hags­leg áhrif til hins verra fyrir mörg ríki sem reiða sig á olíu­fram­leiðslu og þjón­ustu við olíu­iðnað. Þar á meðal má nefna Noreg, Rússland, Brasilíu og Venes­ú­ela, en þessi ríki hafa glímt við tölu­verðar efna­hags­legar þreng­ingar, og sumum til­fellum nær algjört hrun, vegna verð­falls á olíu á síð­ustu mán­uðum.

Önnur ríki, sem ekki fram­leiða olíu, eins og til dæmis Ísland, geta notið góðs af því að olía lækki þar sem kostn­aður við sam­göngur á sjó, landi og lofti lækkar og verð­lag á ýmsum inn­fluttum varn­ingi sömu­leiðis, með til­heyr­andi áhrifum á vísi­tölu neyslu­verðs til lækk­una.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár