„Bróðir minn situr í fangelsi af því að þjóðin hefur úthýst honum“

Athafna­konan Þórdís Sig­urð­ar­dóttir, fyrrum stjórn­ar­for­maður Teymis og systir Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, segir að bróðir sinn sitji í fang­elsi „af því að þjóðin hefur úthýst honum“. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem hún setti inn á Facebook í dag. Hreiðar Már, sem er fyrrum for­stjóri Kaup­þings á Íslandi, hefur hlotið nokkra þunga dóma vegna hrun­mála og afplánar nú sex ára fang­els­is­dóm á Kvía­bryggju. Hann bíður auk þess dóms í svoköll­uðu CLN-máli þar sem sér­stakur sak­sókn­ari hefur farið fram á að ákvæði um hegn­ing­ar­auka verði nýtt þannig að Hreiðar fái alls níu ára dóm.

Þórdís segir að með­ferðin á bróður hennar og fram­koma gagn­vart honum sé „Íslandi til skammar því aftur og aftur hafa grund­vallar reglur rétt­ar­fars­ins verið brotnar. Allir hafa horft í gegnum fingur sér með það - þetta er of stórt til að klikka á ein­hverjum laga­legum atriðum. Þjóðin og emb­ætt­is­menn hennar telja sér trú um að þetta sé gert til að full­nægja rétt­læt­inu - sefa reiði þjóð­ar­innar. Það hafi verið óeðli­legt hvernig og hvað var í gangi á árunum í upp­gang­inum. Það beri að refsa!.“

Verið að byggja sjúkrahús fyrir peninganna úr bankanum

Hún segir bróður sinn ekki vera sak­aðan um að hafa hagn­ast á gjörðum sínum í einu ein­asta máli sem höfðað hefur verið gegn honum. „Nei, en samt skal hann sitja inni og það eru engir smá dómar takk fyrir. Í fyrstu var logið upp á að hann hefði stolið öllu verð­mætum úr bank­anum en hvað hefur komið í ljós - íslenska ríkið er að verða skuld­laust og það sem meira er það á að byggja nýtt sjúkra­hús fyrir pen­inga og eignir sem voru í bank­anum - ég spyr hver er glæpa­mað­ur­inn? Hver stelur hverju frá hverjum?

Á árinu 2016 á ég þá ósk heitasta að illska og hatur hætti, ég á þá ósk að rétt­ar­kerfið og þeir sem bera ábyrgð á því átti sig á því órétt­læi og skömm sem hefur við­geng­ist. Ég á þá ósk að þjóðin snúi frá heiftri og hatri. Ég á þá ósk að rétt­læti ein­kenni ákvarð­anir og gjörðir. Er það of mikið? Ég á þá ósk að ég elski Ísland!“

Þórdís segir líka frá því að hún og fjöl­skylda hennar hafi fengið hinn hol­lenska Angelo í heim­sókn yfir hátíð­arnar, en hann bíður örlaga sinna eftir að hafa verið kærður fyrir að smygla 23 kílóum af fíkni­efnum til lands­ins í slag­togi við tvo aðra menn. Frétta­blaðið hafði áður greint frá því að Þórdís ætl­aði sér að bjóða Angelo í mat yfir hátíð­arnar og að Hreiðar Már hefði kennt honum á þvotta­vél á meðan að þeir afplán­uðu saman á Kvía­bryggju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár