Vill biðjast afsökunar á Íraksstríðinu

Jeremy Corbyn, fram­bjóð­andi til for­manns breska Verka­manna­flokks­ins, seg­ist ætla að biðj­ast opin­ber­lega afsök­unar á Íraks­stríð­inu fyrir hönd flokks­ins, ef hann nær kjöri. Hann vill biðja bresku þjóð­ina afsök­unar á "blekk­ingum" sem hafi verið beitt í aðdrag­anda inn­rás­ar­innar árið 2003 og vill biðja írösku þjóð­ina afsök­una á afleið­ing­unum og þján­ingum þeirra í kjöl­far hennar.

Tólf ár eru frá því að Bretar tóku þátt í inn­rásinni í Írak með Banda­ríkja­mönnum. Verka­manna­flokk­ur­inn var þá í rík­is­stjórn undir for­ystu Tony Blair, sem hefur ítrekað komið sér hjá því að biðj­ast afsök­unar á þætti Breta. Þátt­takan í stríð­inu er enn mjög við­kvæm innan Verka­manna­flokks­ins.

"Sem flokkur vorum við í þeirri leiðu stöðu að standa með einni verstu hægri­st­jórn í banda­rískri sögu," segir Corbyn. Hann segir stríðið hafa verið rangt í eðli sínu og það hafi verið mis­tök af skelfi­legri stærð­argráðu.

Corbyn segir í skrif­legri yfir­lýs­ingu til breska blaðs­ins Guardian að hann vilji fækka hern­að­ar­legum inn­gripum Breta í fram­tíð­inni. "Segjum að við munum aldrei framar setja her­menn okkar í hættu að óþörfu eða setja stöðu lands­ins í heim­inum í hættu. Gerum það ljóst að Verka­manna­flokk­ur­inn mun aldrei gera sömu mis­tökin aftur, mun aldrei framan virða Sam­ein­uðu þjóð­irnar og alþjóða­lög að vettugi."

Með afsök­un­ar­beiðn­inni vill Corbyn hjálpa til við að vinna aftur hylli fólks sem yfir­gaf flokk­inn vegna máls­ins. Corbyn sjálfur greiddi atkvæði gegn inn­rásinni á sínum tíma og hefur alltaf staðið við and­stöðu sína.

Rannsókn á þætti Breta tafist um mörg ár


Sex ár eru frá því að ákveðið var að rann­saka þátt Breta í inn­rásinni, en enn hafa engar nið­ur­stöður verið kynntar. Chilcot-rann­sóknin svo­kall­aða er undir vax­andi þrýst­ingi og nú er talið lík­legt að stjórn­völd muni setja rann­sókn­ar­nefnd­inni tíma­mörk og krefj­ist þess að hún skili af sér á næsta ári. Búist er við því að Blair og aðrir ráða­menn þessa tíma verði harð­lega gagn­rýndir.

Eins og áður kom fram hefur Blair aldrei beðist afsök­unar á inn­rásinni í Írak, en þegar hann kom fyrir Chilcot-nefnd­ina árið 2011 sagð­ist hann harma mann­fallið sem orðið hefði. Ed Miliband, sem síðar varð for­maður Verka­manna­flokks­ins, hefur ekki heldur beðist afsök­unar fyrir hönd flokks­ins en sagði árið 2010 að það hafi verið rangt að fara í stríð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár