Ástráður á meðal sex umsækjenda um embætti ríkissáttasemjara

Sex manns sækj­ast eftir emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara, sem aug­lýst var í upp­hafi mán­aðar. Þeirra á meðal eru lektor við við­skipta­deild HR, settur rík­is­sátta­semj­ari og for­maður og fram­kvæmda­stjóri Félags íslenskra nátt­úru­fræð­inga.

Settur sátti
Settur sátti Ástráður Har­alds­son hér­aðs­dóm­ari er einn þeirra sex sem sækj­ast eftir emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara. Mynd: Ríkissáttasemjari

Settur rík­is­sátta­semj­ari, Ástráður Har­alds­son, er á meðal þeirra sex ein­stak­linga sem sækj­ast eftir því að gegna emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara. Embættið var aug­lýst laust til umsóknar í byrjun mán­að­ar­ins, í kjöl­far þess að Aðal­steinn Leifsson sagði sig frá emb­ætt­inu. 

Nú hefur listi yfir umsækj­endur verið birtur á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Auk Ástráðs sækj­ast þau Aldís Guðný Sig­urð­ar­dóttir, lektor við við­skipta­deild HR og for­stöðu­maður MBA-náms, Hilmar Már Gunn­laugs­son lyfja­fræð­ingur, Maríanna Hugrún Helga­dóttir for­maður og fram­kvæmda­stjóri Félags íslenskra nátt­úru­fræð­inga, Muhammad Abu Ayub vakt­stjóri og Skúli Þór Sveins­son sölu­maður, eftir emb­ætt­inu.

Á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að hæfni umsækj­enda verði metin af ráð­gef­andi hæfn­is­nefnd sem skipuð er á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins. Félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra mun að því búnu skipa í emb­ættið til fimm ára.

Fyrr­ver­andi rík­is­sátta­semj­ari, Aðal­steinn Leifsson, gegndi emb­ætt­inu frá 1. apríl 2020, eða í rúm þrjú ár. Ástráður Har­alds­son var settur rík­is­sátta­semj­ari við brott­hvarf hans úr emb­ætt­inu, en Ástráður hafði áður leyst Aðal­stein af sem rík­is­sátta­semj­ari í deilu Eflingar og Samtaka atvinnu­lífs­ins í upp­hafi árs­ins.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár