Rússar – Ógnin úr austri

NATO þarf að vera við öllu búið vegna mögu­legra hern­að­ar­að­gerða Rússa. Svo er ekki í dag. Nýleg skáld­saga eftir fyrr­ver­andi næstæðsta yfir­mann her­afla NATO er talin sýna hvað geti gerst á mjög skömmum tíma ef rúss­neski björn­inn fer að breiða úr sér.

Frá fundi utanríkisráðherra NATO-ríkjanna í maí 2016. Sá fundur var stór liður í undirbúningi fyrir hinn mikilvæga leiðtogafund í Varsjá sem fram fer í sumar.
Frá fundi utan­rík­is­ráð­herra NATO-ríkj­anna í maí 2016. Sá fundur var stór liður í und­ir­bún­ingi fyrir hinn mik­il­væga leið­toga­fund í Varsjá sem fram fer í sumar. Mynd: NATO

Fyrir skömmu kom út bókin „2017: War With Russia”. Höfundur hennar er Richard Shirreff fyrr­ver­andi yfir­hers­höfð­ingi og næstæðsti yfir­maður her­afla NATO í Evrópu. Maður sem gjör­þekkir umfjöll­un­ar­efni bók­ar­innar og þótt hún sé skáld­saga byggir hún á þekk­ingu og reynslu höf­undar. Í bók­inni lætur höf­undur koma til átaka ungra Rússa og lög­reglu í Ríga, höf­uð­borg Lett­lands. Þrír Rússar falla fyrir kúlum lög­regl­unnar. Kveikt er í ráð­húsi borg­ar­innar og áður en hendi er veifað er fjöl­mennt rúss­neskt her­lið mætt í hlað­varpann í Ríga. Þetta er „til að varð­veita frið­inn og rúss­neska minni­hlut­ann í Lett­landi” segir for­seti Rúss­lands. Mat Rússa er ískalt: Lettland er NATO land en Banda­ríkja­menn og önnur aðild­ar­ríki banda­lags­ins munu aldrei hætta á stríð til að verja lítið og fámennt land. Á þremur sól­ar­hringum eru Eistland, Lettland og Litháen undir stjórn Rússa og heim­ur­inn á suðu­punkti.

NATO sefur á verðinum

Ef hrollur fer um les­and­ann er til­gangi höf­undar náð. En til­gang­ur­inn er líka að vekja athygli á nauð­syn þess að NATO sé við öllu búið, en því fari fjarri að svo sé í dag. NATO þarf, að mati bók­ar­höf­undar að búa svo um hnút­ana að eng­inn taki áhætt­una af því að ógna einu eða fleirum aðild­ar­ríkjum banda­lags­ins.

Ógnin úr austri

Þótt bók Richards Shirrefs sé skáld­saga er inni­haldið og sú sýn sem þar er dregin upp ískyggi­lega raun­veru­leg mynd af þeirri stöðu sem uppi er á Eystra­salts­svæð­inu. Þar er ástandið ekki ”business as usual” (allt við það sama) einsog Janis Berzins yfir­maður rann­sókna í Lett­neska her­skól­anum komst að orði. Það eru orð að sönnu. Rússar hafa nýlega komið upp þremur nýjum her­stöðvum við vest­ur­landa­mæri sín og hótað að koma fyrir í Kalín­ingrad við Eystra­salt svo­nefndum Iskander stýriflaugum sem borið geta kjarna­odda. Ummæli sænska hers­höfð­ingj­ans Anders Brann­ström af þessu til­efni vöktu athygli en hann sagði að ”Svíþjóð gæti átt í stríði innan nokk­urra ára.”

Þrjú þúsund manna herlið og eldflaugavarnakerfi

NATO und­ir­býr nú að senda her­lið, þrjú þús­und manns til Eystra­salts­land­anna þriggja, Eist­lands, Lett­lands og Litháen. Endanleg ákvörðun um þetta verður tekin á leið­toga­fundi NATO í Varsjá í næsta mán­uði. Eystra­salts­löndin hafa lengi óskað eftir að NATO efli við­búnað sinn á þessu svæði. Löndin þrjú ótt­ast að ris­inn í austri kunni að láta reyna á hina svo­nefndu 5. grein Atl­ants­hafs­sátt­mál­ans sem segir að árás á eitt aðild­ar­ríki NATO sé árás á öll ríki banda­lags­ins.

Í við­tali við danska dag­blaðið Berl­ingske sagði Uffe Ellemann-Jensen, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Dana, að stjórn­völd í Eystra­salts­lönd­unum spyrji „hvort NATO geti staðið við þessa yfir­lýs­ingu og hvort banda­lagið vilji standa við hana.” Banda­ríkin hafa þegar svarað þess­ari spurn­ingu ját­andi og það hafa fleiri NATO lönd einnig gert.

Banda­ríkin tóku sömu­leiðis fyrir nokkrum vikum í notkun fyrsta hluta evr­ópska eld­flauga­varna­kerf­is­ins sem hefur verið í und­ir­bún­ingi um margra ára skeið. Rússar hafa brugð­ist illa við þessum aukna við­bún­aði og Mikhail Vanin sendi­herra Rússa í Danmörku sagði í blaða­við­tali fyrir nokkrum mán­uðum að Danmörk gæti orðið skot­mark rúss­neskra kjarn­orkuflauga ef danska rík­is­stjórnin yrði aðili að eld­flauga­varna­kerf­inu. Í við­tali við dag­blaðið Politi­ken fyrir nokkrum dögum sagði sendi­herr­ann að auk­inn við­bún­aður NATO í Eystra­salts­lönd­unum krefð­ist við­bragða Rússa.

Sérfræðingar telja hernaðaraðgerðir Rússa ósennilegar

Margir hern­að­ar­sér­fræð­ingar í aðild­ar­ríkjum NATO telja afar ósenni­legt að Rússar grípi til hern­að­ar­að­gerða. Þeir sýni frekar klærnar með alls kyns hót­unum, trufl­unum og skemmdum á orku­flutn­inga­bún­aði. Þeir muni fremur nota ýmsar slíkar aðferðir til að rjúfa sam­stöðu NATO ríkj­anna og mynda klofn­ing í þeirra röðum.

Hvað gerist ef Rússar hertaka sænska smáey?

„Ef ég væri í sporum Rússa og ætl­aði mér að valda deilum og klofn­ingi innan NATO myndi ég koma fyrir her­liði á lít­illi og óbyggðri sænskri eyju,” sagði Janis Berzins sér­fræð­ingur hjá Lett­neska her­skól­anum í við­tali og bætti við „Hvað myndi ger­ast? Jú, Svíþjóð myndi kvarta og biðja NATO um hjálp. Í slíku til­viki á 5. grein Atl­ants­hafs­sátt­mál­ans (árás á einn er árás á alla) ekki við, Svíar eru ekki í NATO. Og hvað þá?”

Svíar óttast Rússa

Svíum stendur stuggur af ógn Rússa. Fyrir tíu dögum sam­þykkti mik­ill meiri­hluti á sænska þing­inu, Riks­dagen, að Svíar gætu boðið her­sveitum NATO til lands­ins. Það gildi bæði um æfingar og ef óvissu­á­stand skap­ist. Sænsku borg­ara­flokk­arnir styðja NATO aðild en rík­is­stjórnin er því mót­fallin og sömu­leiðis meiri­hluti þing­manna Í nýlegri skoð­ana­könnun studdi meiri­hluti Svía aðild lands­ins að NATO en það hefur ekki gerst áður.

Taugastríð

„NATO þarf að búa þannig um hnút­ana að þar á bæ hrökkvi menn ekki í kút og hörfi ef rúss­neski björn­inn rymur” sagði Uffe Ellemann-Jensen í áður­nefndu við­tali við Berl­ingske. „Skynji Rússar að NATO sé tví­stíg­andi og ráða­laust líta þeir á það sem sigur.”

Lukasz Kulesa hern­að­ar­sér­fræð­ingur og yfir­maður rann­sókna hjá rann­sókna­stofn­un­inni European Leaders­hip Network telur að Rússar láti sitja við hót­an­irnar einar. Helsta hættan stafi af fjöl­mennum her­æf­ingum, ef þær fari úr bönd­unum geti allt gerst. Þá gæti komið til átaka á Eystra­salts­svæð­inu, átaka sem eng­inn kærir sig um en allir ótt­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár