Stjórnarandstöðustjórnin ólíkleg án fimmta flokksins

Viðræður standa yfir milli stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna um myndun rík­is­stjórnar. Full­trúar flokk­anna hitt­ust síð­degis. Vilji til að taka annað hvort Viðreisn eða Flokk fólks­ins inn í rík­is­stjórn.

Sigurður Ingi Jóhannsson og Logi Einarsson eru á meðal þeirra formanna stjórnmálaflokka sem nú eiga í samtali um að mynda ríkisstjórn.
Sigurður Ingi Jóhanns­son og Logi Ein­ars­son eru á meðal þeirra for­manna stjórn­mála­flokka sem nú eiga í sam­tali um að mynda rík­is­stjórn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Full­trúar Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar, Pírata og Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa hist og rætt umtals­vert saman í dag og í gær um myndun rík­is­stjórnar. For­svars­menn Við­reisnar hafa líka verið hluti af því sam­tali að ein­hverju leyti, en þau sam­töl hafa verið óform­legri.

Innan Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna og Pírata er sú skoðun ráð­andi að ekki verði hægt að mynda stjórn sem ein­ungis stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir sitji í. Það þurfi að fá Viðreisn inn í þá stjórn til að tryggja henni betri meiri­hluta, en með þeirri við­bót yrðu þing­menn stjórn­ar­innar 36 tals­ins og þing­menn stjórn­ar­and­stöðu 27. Við­mæl­endur Kjarnans segja að Fram­sókn­ar­flokknum hugn­ist betur að hafa Flokk fólks­ins með sem fimmta flokk en Viðreisn.

Sammála um breiðu línurnar

Flokk­arnir eru flestir sam­mála um breiðu mál­efna­lín­urnar í mögu­legu sam­starfi. Þ.e. aukin fjár­út­lát í heil­brigðis- og mennta­mál og að ráð­ast í mjög öfl­uga sókn í fjár­fest­ingum í innviðum. Þá leggur Framsókn mikla áherslu á end­ur­skipu­lagn­ingu banka­kerf­is­ins og það að reynt verði að vinda ofan af sölu á hlutum í Arion banka til vog­un­ar­sjóða. Þá eru allir með­vit­aðir um að kom­andi kjara­samn­ingar verða mjög mik­il­vægir í bar­átt­unni fyrir því að við­halda því efna­hags­á­standi sem hér ríkir nú áfram.

Við­mæl­endur Kjarnans segja það skýrt frá bæði Fram­sókn­ar­flokknum og Vinstri grænum að ýta Evr­ópu­sam­bands­málum út af borð­inu. Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði það beint út í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun að flokk­ur­inn muni ein­fald­lega ekki sam­þykkja slíkt. Erfitt verður fyrir Viðreisn að kyngja því en flokk­ur­inn hefur lagt áherslu á það, í óform­legum sam­tölum, að tákn­ræn afgreiðsla á mál­inu verði hluti af stjórn­ar­sátt­mála ef flokk­ur­inn eigi að vera með.

Ákall eftir breiðri stjórn

Við­mæl­endur Kjarnans nefna flestir að þeir lesi nið­ur­stöðu kosn­ing­anna þannig að ákall sé eftir því að ólíkir flokkar starfi saman í breiðri rík­is­stjórn. Fimm flokka stjórn, með sterkan meiri­hluta sem teygir sig frá Vinstri grænum yfir miðj­una og að hægri-mið­flokknum Viðreisn eða jafn­vel Flokki fólks­ins sé slík stjórn.

Staðan í við­ræð­unum er þó enn við­kvæm og ljóst að mik­ill þrýst­ingur er frá flokk­unum sem utan þeirra sitja að fá Fram­sókn­ar­flokk­inn til að horfa frekar til þeirra varð­andi myndun rík­is­stjórnar. Í raun standi og falli myndun stjórn­ar­and­stöðu­stjórn­ar­innar með ákvörðun Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Yfir vofir því að náist ekki saman sé næsta skref að myndu rík­is­stjórn sem sé skipuð Framsókn, Sjálf­stæð­is­flokki, Mið­flokki og Flokki fólks­ins, ef ekki tak­ist að ná stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum og Viðreisn eða Flokki fólks­ins saman. Hluti við­mæl­enda Kjarnans telja þetta þó inn­an­tóma hótun. Það sé algjör­lega ljóst að hluti þing­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins muni aldrei geta unnið með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni. Þar á meðal sé for­mað­ur­inn Sigurður Ingi Jóhanns­son.

Ekki augljóst hver yrði forsætisráðherra

Fyrir kosn­ingar bjugg­ust flestir við því að Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, væri sjálf­kjörin sem for­sæt­is­ráð­herra ef stjórn­ar­and­staðan gæti myndað rík­is­stjórn. Hún er enda vin­sæl­asti stjórn­mála­maður þjóð­ar­innar og það ríkir traust og vel­vild milli hennar og nán­ast allra ann­arra stjórn­mála­leið­toga. Sú staða er ekki jafn skýr nú og þá í ljósi þess að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er í raun með pálmann í hönd­unum.

Sigurður Ingi Jóhanns­son sé því í aðstöðu til að krefj­ast þess að verða for­sæt­is­ráð­herra standi hugur hans til þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár