Skyndibitakeðjur og drykkjarframleiðendur láta undan þrýstingi og skella í lás í Rússlandi

McDonalds, Coca-Cola og Starbucks eru á meðal banda­rískra fyr­ir­tækja sem hafa brugð­ist við gagn­rýni um aðgerð­ar­leysi og hætt allri starf­semi í Rúss­landi. Á sama tíma bregst Pútín við efna­hags­þving­unum með hækkun líf­eyris og banni á sölu gjald­eyris.

Öllum 850 veitingastöðum McDonalds í Rússlandi hefur verið lokað, að minnsta kosti um sinn. Fyrsti staðurinn opnaði í Moskvu árið 1990.
Öllum 850 veit­inga­stöðum McDonalds í Rúss­landi hefur verið lokað, að minnsta kosti um sinn. Fyrsti stað­ur­inn opn­aði í Moskvu árið 1990. Mynd: EPA

Birt­ing­ar­mynd efna­hags­þving­ana og refsi­að­gerða vegna inn­rásar Rússa í Úkraínu er ýmis konar. Banda­rísk stór­fyr­ir­tæki hafa verið gagn­rýnd fyrir þögn sína og tregðu til að bregð­ast við inn­rásinni. McDonalds, sem opn­aði fyrst í Rúss­landi fyrir þrjá­tíu árum, rauf þögn­ina í gær og til­kynnti að öllum 850 veit­inga­stöðum fyr­ir­tæk­is­ins í Rúss­landi yrði lokað tíma­bundið, einnig þeim sem starfa á sér­leyfi. Í til­kynn­ingu frá skyndi­bit­ar­is­anum segir að ekki sé hægt að horfa fram­hjá „þeim óþarfa þján­ingum sem íbúar í Úkraínu þurfi nú að búa við“.

Kaffi­húsa­keðjan og kaffi­fram­leið­and­inn Starbucks fylgdi í kjöl­farið og til­kynnti um lokun 130 kaffi­húsa og stöðvun á inn­flutn­ingi á kaffi til lands­ins. Þá til­kynntu Coca-Cola og PepsiCo að drykkir þeirra yrðu teknir úr sölu í Rúss­landi. PepsiCo mun þó áfram halda áfram fram­leiðslu mjólk­ur­af­urða og þurr­mjólkur fyrir börn „að hluta til vegna mann­úð­ar­á­stæðna“ en einnig til að tryggja 60 þús­und starfs­mönnum áfram atvinnu.

„Samfélög eru betri þegar McDonalds er nærri“

Fyrsti veit­inga­staður McDonalds var opn­aður á Pushkin-torgi í Moskvu árið 1990 og varð um leið eins konar tákn um vest­ræna menn­ingu fyrir rúss­nesku þjóð­inni. „Í 66 ár höfum við starfað í þeirri trú að sam­fé­lög eru betri þegar McDonalds er nærri,“ segir Chris Kempczinski, fram­kvæmda­stjóri McDonalds, í til­kynn­ingu. 62 þús­und manns starfa hjá McDonalds í Rúss­landi og fyr­ir­tækið á í sam­starfi við hund­ruð rúss­neska birgja, að ógleymdum við­skipta­vin­unum, sem skipta millj­ónum á hverjum degi. McDonalds hyggst greiða starfs­fólki sínu í Rúss­landi áfram laun, rétt eins og í Úkraínu.

Fleiri skyndi­bita­keðjur hafa sleg­ist í hóp­inn, nú síð­ast KFC og Pizza Hut sem ætla að loka öllum veit­inga­stöðum sínum, um þús­und tals­ins, í Rúss­landi og hætta öllum fjár­fest­ingum þar í landi.

Fjár­festar, sem og sam­fé­lags­miðla­not­endur, hafa þrýst á fyr­ir­tæki að hætta starf­semi sinni í Rúss­landi. Skyndi­bita­keðjur hafa verið sér­stak­lega gagn­rýndar fyrir aðgerða­leysi og fyrir að láta tækni- og fjár­mála­fyr­ir­tæki líkt og Apple, Visa og Mastercard, sjá um refsi­að­gerðir. Kort­ar­isarnir Mastercard og Visa, auk greiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins Payp­al, hafa til að mynda lokað á allt pen­inga­flæði til og frá Rúss­lands í gegnum sín kerfi. Einnig hefur fjöldi rúss­neskra banka verið úti­lok­aður frá alþjóð­lega greiðslu­miðl­un­ar­kerf­inu SWIFT.

„Fyr­ir­tæki sem stunda við­skipti í Rúss­landi verða að íhuga af alvöru hvort það sé áhætt­unnar virði,“ segir Thomas P. DiNapoli, for­maður stjórnar eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs í New York, í sam­tali við New York Times. Segist hann lof­sama fyr­ir­tækin sem hafa ákveðið að „stíga réttu skrefin og hætta starf­semi í Rúss­landi“.

Hækkun ellilífeyris og bann við sölu á gjaldmiðli

Ein leið Vla­dimírs Pútíns Rúss­lands­for­seta til að bregð­ast við efna­hags­þving­unum vegna stríðs­ins í Úkraínu er að heim­ila hækk­anir á eft­ir­launa­greiðslum. Pútín skrif­aði í gær undir lög þess efnis.

[links]Þá hefur hann einnig skrifað undir lög sem heim­ila ein­stak­lingum og litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum að fara fram á tíma­bundna greiðslu­stöðvun á lánum sínum.

Virði rúss­nesku rúblunnar hefur verið í frjálsu falli og er nú minna en virði íslensku krón­unn­ar, í fyrsta skipti í að minnsta kosti 16 ár. Rússnesk yfir­völd hafa brugð­ist við með því að setja miklar tak­mark­anir á sölu á gjald­miðli. Rúss­neski seðla­bank­inn til­kynnti í gær að Rússum er nú aðeins heim­ilt að taka út sem nemur 10 þús­und doll­urum í gjald­miðli. Tak­mark­an­irnar verða í gildi að minnsta kosti til 9. sept­em­ber.

„Við munum berjast þar til yfir lýkur“

Þrettán dagar eru frá því að inn­rás Rúss­lands í Úkraínu hófst. Sam­ein­uðu þjóð­irnar áætla að um tvær millj­ónir hafi flúið Úkraínu. Nokkrar til­raunir hafa verið gerðar um tíma­bundin vopna­hlé á átaka­svæðum svo hægt sé að flytja almenna borg­ara á brott, með mis­jöfnum árangri.

Volodimír Selenskí, for­seti Úkraínu, ávarp­aði neðri deild breska þings­ins frá Kænu­garði í gær. Um sögu­lega stund var að ræða, aldrei áður hefur leið­togi ríkis sem sætir inn­rás ávarpað breska þingið. Selenskí vitn­aði bæði í Winston Churchill og William Shakespe­are í ræðu sinni. „Við munum berj­ast þar til yfir lýkur,“ sagði Selenskí.

Selenskí óskaði jafn­framt eftir auknum stuðn­ingi, meðal ann­ars með því að tryggja öryggi í loft­helgi Úkraínu og að skil­greina Rússland sem hryðju­verk­a­ríki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár