Virði rússnesku rúblunnar er nú minna en virði íslensku krónunnar, í fyrsta skipti í að minnsta kosti 16 ár. Þetta kemur fram þegar gengi rúblunnar við Bandaríkjadal er borið saman við gengi krónunnar við Bandaríkjadal.
Líkt og Kjarninn hefur greint frá í dag hafa kortarisarnir Mastercard og Visa, auk greiðslufyrirtækisins Paypal, lokað á allt peningaflæði til og frá Rússlands í gegnum sín kerfi. Einnig hefur fjöldi rússneskra banka verið útilokaður frá alþjóðlega greiðslumiðlunarkerfinu SWIFT. [adspot]
Rússneska ríkisstjórnin birti svo í morgun lista yfir þjóðir sem hún telur vera óvinveittar sér. Ísland var á meðal þessara þjóða, en auk þeirra voru Evrópusambandsríkin, Japan, Suður-Kórea og önnur Vesturlönd. Samkvæmt stjórnvöldum í Kreml mega rússneskir skuldarar greiða upp erlendar skuldir sínar í sínum gjaldmiðli, rúblum, ef kröfuhafarnir eru frá óvinveittum ríkjum.
Samkvæmt gengisskráningu Seðlabankans kostaði ein rúbla tæpar tvær krónur í byrjun ársins. Þá hafði virði hennar gagnvart íslensku krónunni lækkað nokkuð síðasta áratuginn, en það stóð í fjórum íslenskum krónum árið 2011, líkt og myndin hér að ofan sýnir.

Frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst hefur virði rúblunnar svo hríðfallið, en það lækkaði um fjórðung gagnvart krónunni á milli 18. og 28. febrúar. Á föstudaginn í síðustu viku veiktist gengi hennar svo um níu prósent. Mesta veiking gjaldmiðilsins átti sér þó stað í dag, en þegar þetta er skrifað hefur virði hans veikst um 15 prósent gagnvart krónunni í dag, en veikingin gagnvart Bandaríkjadal nemur fimmtungi.
Samkvæmt Keldunni nemur söluverð Bandaríkjadalsins 133,7 krónum, en 139,38 rúblum, samkvæmt Yahoo Finance. Með tilliti til þessara talna kostar rúblan því 0,97 krónur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir