Segir framferði Útlendingastofnunar skýra hvers vegna hana þurfi að leggja niður

Formaður Solaris segir að byrja þurfi upp á nýtt í útlend­inga­málum á nýjum grunni. Fyrsta skrefið á þeirri veg­ferð sé að leggja niður Útlend­inga­stofnun.

Sema Erla segir kröfuna um að Útlendingastofnun verði lögð niður hafa orðið háværari að undanförnu.
Sema Erla segir kröf­una um að Útlend­inga­stofnun verði lögð niður hafa orðið hávær­ari að und­an­förnu. Mynd: Samsett

Leggja þarf Útlend­inga­stofnun niður og end­ur­skoða lög­gjöf í kringum útlend­inga­mál til þess að hægt sé að byggja nýjan grunn í mála­flokknum að mati Semu Erlu Serdar for­manns Solaris - hjálp­ar­sam­taka fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi. Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Semu í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni fyrr í dag.

[links] „Því hefur verið haldið fram lengi af fólki að það sé hrein­lega best að leggja niður Útlend­inga­stofnun. Ég held að hún sé orðin hávær­ari núna, þessi krafa, og við sem höfum barist fyrir þessu upp­lifum kannski að það sé verið að hlusta loks­ins á þessa kröfu,“ sagði Sema í þætt­inum.

Fram­ferði stofn­un­ar­innar hafi valdið því að krafan um að stofn­unin sé lögð niður sé hávær­ari nú en áður að mati Semu og nefndi hún tvö nýleg dæmi þessu til stuðn­ings. Annars vegar þegar hátt í tutt­ugu umsækj­endur um alþjóð­lega vernd voru sviptir allri þjón­ustu af Útlend­inga­stofnun, þeir reknir úr hús­næði stofn­un­ar­innar og mat­ar­pen­ingar teknir af þeim. Kæru­nefnd útlend­inga­mála komst síðar að þeirri nið­ur­stöðu að þetta hafi verið ólög­mætar aðgerðir og fólk­inu var veitt þjón­usta á nýjan leik.

„Við skulum ekki gleyma því að fólk á flótta er skjól­stæð­ingar Útlend­inga­stofn­unar. Útlend­inga­stofnun á að þjón­usta flótta­fólk að hluta til á meðan það er á Íslandi og bíður úrlausnar sinna mála,“ sagði Sema.

Vill sérstakt ráðuneyti

Hitt dæmið sem Sema nefndi er hand­taka umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í hús­næði Útlend­inga­stofn­unar. „Örstuttu seinna verðum við vitni að því að tveir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd eru lokk­aðir á fölskum for­sendum í hús­næði Útlend­inga­stofn­unar þar sem þeim er sagt að koma til þess að sækja bólu­setn­ing­ar­vott­orðin, sín sem að við setjum mikið spurn­ing­ar­merki við, hvers vegna þeir sækja það til Útlend­inga­stofn­unar en ekki heil­brigð­is­yf­ir­valda. Þegar þeir koma þangað er þeim til­kynnt fyr­ir­vara­laust að það eigi að brott­vísa þeim núna þar sem þeir eru orðnir bólu­settir. Það kemur til átaka, þeir eru beittir ofbeldi af lög­reglu­yf­ir­völdum, af starfs­fólki Útlend­inga­stofn­unar. Þeir eru frels­is­sviptir meðal ann­ars og síðan sendir úr landi, hand­teknir og sendi úr landi án nokk­urs fyr­ir­vara, einn eftir að hafa farið á bráða­deild land­spít­al­ans eftir með­ferð­ina.“

Spurð að því hvernig hún myndi vilja að inn­flytj­enda­málum yrði háttað sagði Sema að byggja þyrfti upp nýjan grunn. „Fyrsta skrefið er að leggja niður Útlend­inga­stofnun. Annað skrefið er að skoða alla lög­gjöf í kringum þetta. Ég per­sónu­lega myndi vilja sjá sér­stakt ráðu­neyti. Það er það sem hefur verið tekið upp víða í kringum okkur. Þá erum við með ráðu­neyti, jafn­vel ein­hverjar stofn­anir þarna undir,“ sagði Sema. „Við þurfum að byrja upp á nýtt á nýjum grunni. Það er ekk­ert mál að fara í slíka veg­ferð.“

Flóttafólki muni fjölga á næstu árum

Að hennar mati er almenn­ingur ósáttur við þá stefnu sem stjórn­völd hafa rekið í mála­flokknum. „Við erum í raun lítið sam­fé­lag. Við erum og við reynum að vera opið sam­fé­lag og við sjáum það til dæmis að almenn­ingur er yfir­leitt mjög ósam­mála þeirri stefnu sem að stjórn­völd eru að reka. Það eru ítrekuð mót­mæli, það eru afhentar hátt í 50 þús­und und­ir­skriftir til stuðn­ings ein­stak­lings sem fékk ekki vernd á íslandi. Við erum að leggja okkar af mörkum til þess að við gerum betur,“ sagði Sema.

Hún benti á að aldrei hafa fleiri verið á flótta en nú og að flótta­fólki muni fjölga á næstu árum. Því beri Íslandi, líkt og öðrum þjóðum, sið­ferð­is­leg skylda til þess að leggja sitt af mörkum, að mati Semu Erlu Serdar for­manns Solaris - hjálp­ar­sam­taka fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár