Aukinn þungi í landamærapólitík bíður haustsins

Laga­breyt­ingar þarf til að breyta áherslum lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum. Settur lög­reglu­stjóri, Margrét Kristín Páls­dóttir, seg­ist því engar breyt­ingar gera þar á sínu setn­ing­ar­tíma­bili, en staða lög­reglu­stjóra verður aug­lýst í haust.

Lögreglan á Suðurnesjum
Lög­reglan á Suð­ur­nesjum Ráðherra boðar breyt­ingar á landamærapóli­tík og aug­lýsir eftir lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum í haust. Mynd: Golli

Fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á stjórn landamæra á Kefla­vík­ur­flug­velli bíða laga­breyt­inga og munu ekki fara fram á setn­ing­ar­tíma­bili núver­andi lög­reglu­stjóra. Þetta segir Margrét Kristín Páls­dóttir, settur lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, og vill halda áfram því góða starfi sem er unnið hjá emb­ætt­inu.

Margrét Kristín Páls­dóttir

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir setti Margréti sem lög­reglu­stjóra eftir að Úlfar Lúð­víks­son lét af emb­ætti eftir fund með ráð­herra. Ráðherra hafði til­kynnt honum að staða hans yrði aug­lýst í haust vegna fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á verk­efnum og landamærapóli­tík og samn­ingur hans ekki end­ur­nýj­aður. Úlfar baðst lausnar á staðnum.

„Þessar boð­uðu breyt­ingar þarfn­ast flestallar laga­breyt­inga,“ segir Margrét og bætir því við að Alþingi ákveði póli­tískar breyt­ingar á emb­ætt­inu. „Eins og ráð­herra hefur upp­lýst mig og mitt emb­ætti um eru þessar breyt­ingar þannig staddar að það verður stefnt að laga­frum­varpi núna í haust. Þannig að ég á erfitt með að …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár