Spyr hvort lífeyrisþegar framtíðarinnar muni þurfa að borga núverandi halla ríkissjóðs

Í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í dag fór þing­maður Við­reisnar yfir sjö stað­reyndir um íslenskt efna­hags­líf. For­sæt­is­ráð­herra sagði þing­mann­inn tala „eins og allt sé í kalda­koli,“ og að stað­reynd máls­ins væri sú að sam­dráttur væri minni en spáð hafði verið.

„Ég held að ég geti sagt það alveg óhikað að ég mun að sjálf­sögðu vinna að því mark­miði að við séum ekki að skerða fram­tíð­ar­stöðu líf­eyr­is­þega. En þurfum við að huga að fleiru en ein­göngu fjár­mögnun rík­is­sjóðs,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, í svari við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn frá Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur þing­manni Við­reisnar.

Þor­gerður Katrín spurði undir lok fyr­ir­spurnar sinnar hvort að for­sæt­is­ráð­herra myndi beita sér fyrir því að koma í veg fyrir að að líf­eyr­is­þegar fram­tíð­ar­innar muni koma til með að borga fyrir þann halla sem nú er á rík­is­sjóði. Spurn­ing­una bar hún upp eftir að hafa útli­stað sjö stað­reyndir um íslenskt efna­hags­líf eins og það er í dag.

Sjö staðreyndir Þorgerðar

Þor­gerður sagði í fyrsta lagi að rík­is­stjórn­inni hefði ekki tek­ist að fá inn­lend lán á lágum vöxtum til að fjár­magna halla rík­is­sjóðs. Í öðru lagi að rík­is­stjórnin hefði ákveðið að hefja erlendar lán­tökur með geng­is­á­hættu. Þriðja stað­reynd Þor­gerðar sneri að verð­bólgu en hún sagði hana meiri hér á landi en í öðrum vest­rænum ríkjum. Í fjórða lagi að atvinnu­leysi hefði aldrei verið jafn mikið í sögu þjóð­ar­innar og nefndi Þor­gerður að lang­tíma­at­vinnu­leysi hefði auk­ist á milli mán­aða.

Í fimmta lagi að rík­is­stjórnin hefði flutt frum­varp sem veitir Seðla­bank­anum heim­ild til að setja á gjald­eyr­is­höft sem Þor­gerður sagði að gæti þrengt að sam­keppn­is­stöðu íslenskra fyr­ir­tækja, verði það nýtt. Þá sagði Þor­gerður að sam­hliða vax­andi verð­bólgu hefði Seðla­bank­inn talað fyrir lækkun á ávöxt­un­ar­kröfu líf­eyr­is­sjóða sem dragi á líkum á því að þeir geti staðið við heit sín um að iðgjalda­greiðslur haldi verð­gildi sínu. Og loks í sjö­unda lagi sagði Þor­gerður að vegna útgjalda­aukn­ingar rík­is­sjóðs gæti stýri­vaxta­hækkun verið í kort­unum og vís­aði hún þar í orð Seðla­banka­stjóra, Ásgeirs Jóns­sonar.

Útflutningsatvinnuvegir muni rétta úr kútnum

Katrín sagði í svari sínu að íslenskt hag­kerfi standi frammi fyrir skelli í útflutn­ingi. Á sama tíma hafi verið kynnt undir inn­lendri eft­ir­spurn vegna trúar á að útflutn­ings­at­vinnu­vegir þjóð­ar­innar muni rétta úr kútnum með auknum útflutn­ings­tekjum. Þá sagði hún Seðla­bank­ann vinna að því með rík­is­sjóði að tak­marka geng­is­á­hættu vegna fjár­mögn­unar rík­is­sjóðs, enda búi hann yfir ríku­lega gjald­eyr­is­vara­forða.

Þá sagði Katrín gagn­rýndi Katrín þá mynd sem Þor­gerður drægi upp af íslensku efna­hags­lífi. „Ég vil minna hátt­virtan þing­mann hér á, sem kemur hér upp og talar eins og allt sé í kalda­koli að stað­reyndin er sú að sam­drátt­ur­inn er minni en spáð var. Afkoma rík­is­sjóðs er betri og það er vegna aðgerða stjórn­valda,“ sagði Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár