Sjálfstæðismenn gætu verið að sleppa því að svara skoðanakönnunum

Dokt­or­snemi í félags­töl­fræði telur ólík­legt að fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík verði jafn lágt og kann­anir sýna. Fyrir utan þætti eins og dræma kjör­sókn ungs fólks, gæti Íslands­banka­málið hafa gert sjálf­stæð­is­fólk afhuga skoð­ana­könn­unum.

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Hildur Björns­dóttir odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins er oftar en ekki van­metið í skoð­ana­könn­unum sem fram­kvæmdar eru í aðdrag­anda kosn­inga hér­lendis. Haf­steinn Ein­ars­son dokt­or­snemi í félags­töl­fræði telur að sú sé staðan einnig í aðdrag­anda borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna í Reykja­vík nú og segir að fyrir því geti verið ýmsar ástæður.

„Eins og alltaf þegar við erum að skoða svona félags­fræði­leg fyr­ir­bæri eru skýr­ing­arnar fleiri en bara eitt­hvað eitt,“ segir Haf­steinn, sem dróg fram á Twitter í gær nokkrar ástæður fyrir því að fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist iðu­legra lægra í könn­unum en raunin verður svo, þegar talið er upp úr kjör­köss­unum – og benti á að það hefði einnig verið raunin í Reykja­vík fyrir fjórum árum síðan.

Nokkur umræða hefur spunn­ist um skoð­ana­kann­anir sem birtar hafa verið um stöðu mála í Reykja­vík nú í aðdrag­anda kosn­inga, en það vakti athygli í morgun að Kolbrún Berg­þórs­dóttir, leið­ara­höf­undur Frétta­blaðs­ins, sagði að könnun sem rann­sókn­ar­fyr­ir­tækið Prósent vann fyrir sama blað virt­ist vera lítt mark­tæk.

„Skoð­ana­kann­anir eru ekki kosn­inga­úr­slit. Það var því nokkuð skondið að sjá hvernig fjöl­miðlar slengdu því fram sem stór­frétt og leit­uðu til álits­gjafa þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 16 pró­sent í einni könnun – könnun sem flest bendir til að hafi verið lítið mark­tæk,“ skrifar Kolbrún í leið­ara í dag, en Frétta­blaðið sjálft slengdi fram nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar í fimm dálkum á for­síðu blaðs­ins í upp­hafi vik­unnar.

Hildur Björns­dóttir odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni sagði við mbl.is að þessi könnun, sem sýndi flokk­inn minni en Pírata í Reykja­vík, væri ekki í takti við þær kann­anir sem hún hefði inn­sýn í, og á þá við kann­anir sem flokk­ur­inn hefur sjálfur látið vinna fyrir sig núna í aðdrag­anda kosn­inga.

„Það gæti verið að fylgið okk­ar sé bara ekki þátt­tak­andi í þess­um könn­un­um, en þetta er auð­vitað bara sam­kvæm­is­leik­ur og niður­stöður munu svo rata upp úr kjör­köss­um á laug­ar­dag,“ sagði Hildur við mbl.is á mánu­dag.

Erfið mál geri kjósendur fráhverfa skoðanakönnunum

Það sem Hildur nefnir, að fylg­is­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins séu hrein­lega ekki þátt­tak­endur í sumum könn­unum þessa dag­ana, gæti verið að ein­hverju leyti rétt, að sögn Haf­steins, en það er þekkt erlendis frá að þegar nei­kvæð umræða er í kringum flokka eða fram­bjóð­endur eru stuðn­ings­menn þeirra ólík­legri til þess að svara könn­unum.

Í umfjöllun banda­ríska fjöl­mið­ils­ins FiveT­hir­tyEight um þessa til­hneig­ingu kjós­enda er meðal ann­ars tekið það dæmi að árið 2016 voru yfir­lýstir stuðn­ings­menn Donalds Trump ólík­legri til þess að taka þátt í skoð­ana­könn­unum en fylg­is­menn Hillary Clinton í kjöl­far þess að upp­taka af Trump að tala með niðr­andi hætti um konur rataði í fréttir. Á upp­tök­unni sagði Trump meðal ann­ars að þegar menn væru stjörnur, eins og hann, þá gætu þeir gert hvað sem er, jafn­vel gripið í klofið á þeim. „Grab them by the pussy. You can do anyt­hing.“

Sam­bæri­leg staða gæti átt við um Sjálf­stæð­is­flokk­inn nú, en umræða um útboðið á hluta af eign rík­is­ins á Íslands­banka hefur verið bæði hávær og nei­kvæð und­an­farnar vikur og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður flokks­ins setið undir harðri gagn­rýni. Málið hefur verið stórt frétta­mál í íslensku sam­hengi og Haf­steinn segir að það séu alltaf að koma fram betri vís­bend­ingar um að nei­kvæð umræða um stjórn­mála­flokka- og fólk geti haft áhrif á þátt­töku í skoð­ana­könn­unum og leitt til þess að nið­ur­stöður þeirra bjag­ast.

[adspot]

„Kenn­ingin var áður að fólk væri kannski bara að ljúga og segð­ist ekki ætla að kjósa flokk­inn, en ég held að þetta sé miklu sterk­ari kenn­ing [að fólk sleppi því að svara] því það er mjög fátt sem bendir til þess að fólk ljúgi í skoð­ana­könn­unum,“ segir Haf­steinn og bætir því við að það sé munur á svar­hlut­falli og þátt­töku á milli kann­ana.

„Svo það meikar ákveðið sens að þegar það komi upp ein­hver umræða, þá sé fólk tíma­bundið ólík­legra til að vilja yfir höfuð svara. Ef ein­hver hringir í þig eða sendir tölvu­póst með könnun þá ákveður þú að geyma það, eða sleppa því í þetta skiptið,“ segir Haf­steinn, sem telur þetta geta átt við um ein­hvern hluta þeirra sem munu þó mögu­lega fara á kjör­stað í Reykja­vík á morgun og veita D-list­anum atkvæði sitt.

Unga fólkið svarar könnunum en mætir síður á kjörstað

Annað atriði sem Haf­steinn nefnir að gæti leitt til van­mats á fylgi Sjálf­stæð­is­flokks í könn­unum er döpur kjör­sókn ungs fólks. Í könn­un­inni sem Frétta­blaðið birti á mánu­dag­inn sagð­ist meiri­hluti svar­enda sem voru undir 34 ára aldri ýmist ætla að kjósa Pírata eða Sam­fylk­ing­una í Reykja­vík, á meðan ein­ungis sex pró­sent svar­enda á aldr­inum 18-24 ára sögð­ust ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

[links]

Í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2018 var heild­ar­kjör­sóknin í Reykja­vík 67,1 pró­sent, en hún var mjög breyti­leg eftir ald­urs­hópum. Hjá fólki á aldr­inum 18-29 ára var hún ein­ungis 50,7 pró­sent, tæp 60 pró­sent kjós­enda á aldr­inum 30-39 ára skil­uðu sér á kjör­stað en 75,4 pró­sent allra yfir fer­tugu. Ef kosn­inga­þátt­taka ungs fólks verður áfram léleg yrði það því ein mögu­leg skýr­ing á því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fái meira upp úr kjör­köss­unum en flokk­ur­inn hefur verið að mæl­ast með í könn­unum.

Miklar sveiflur milli skoðanakannana og úrslita 2018

Árið 2018 voru tölu­verðar svipt­ingar frá skoð­ana­könn­unum í borg­inni og því sem svo kom upp úr kjör­köss­unum. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins var þannig rúm 27 pró­sent í könn­unum en reynd­ist nær 31 pró­senti þegar yfir lauk og Sam­fylk­ingin var að mæl­ast með um 30 pró­sent, en end­aði á að fá tæp­lega 26 pró­sent.

Fylgi Vinstri grænna hrundi svo úr rúmum 11 pró­sentum niður í innan við fimm pró­sent á loka­metrum kosn­inga­bar­átt­unnar á meðan að Sós­í­alista­flokk­ur­inn stórjók við fylgi sitt.

„Ég vil sér­stak­lega draga fram Sós­í­alista­flokk­inn sem mæld­ist með hér um bil ekk­ert fylgi en var svo mjög öruggur inn og ekki fjarri því að ná inn öðrum manni. Mér fannst það mjög áhuga­vert, erum við að missa af ein­hverjum kjós­endum Sós­í­alista­flokks­ins og af hverju gæti það verið?“ spyr Haf­steinn, sem svo veltir því upp hvort erlendir rík­is­borg­arar gætu verið umfram aðra lík­legir til að kjósa Sós­í­alista­flokk­inn. Sá kjós­enda­hópur er tölu­vert stærri nú en í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, þar sem nú hafa allir erlendir rík­is­borg­arar sem búið hafa á Íslandi síð­ustu þrjú ár kosn­inga­rétt, en árið 2018 hafði fólk þurft að hafa fimm ára búsetu á Íslandi til að mega að kjósa.

Kaupir ekki að netkannanir séu verri en aðrar

Í umræð­unni um kann­anir und­an­farna daga og þá sér­stak­lega könnun Prósents sem mældi Sjálf­stæð­is­flokk­inn með 16,2 pró­sent fylgi í borg­inni hefur nokkuð verið rætt um að net­kann­anir séu síður áreið­an­legar en kann­anir sem fram­kvæmdar eru í gegnum síma.

[adspot]

Haf­steinn seg­ist ekki kaupa það „að netið sé eitt­hvað hræði­legt og það sé ekki hægt að gera kann­anir á net­inu“, en vert er að taka fram að ekki allar kann­anir und­an­far­inna daga hafa verið net­kann­anir ein­göngu, til dæmis var könnun Maskínu frá því fyrr í vik­unni fram­kvæmd bæði með spurn­inga­lista á net­inu og sím­tölum.

„Netið er ekki mið­ill fram­tíð­ar­innar, það er mið­ill­inn sem við notum í dag og kann­anir verða að aðlaga sig að því hvaða tækni fólk er að nota. Það er alveg jafn mikil hætta á skekkju í síma­könn­unum og í net­könn­unum,“ segir Haf­steinn en bætir svo við að það þurfi að passa sér­stak­lega upp á sam­setn­ingu hópanna sem könn­un­ar­fyr­ir­tækin halda úti, en öll helstu rann­sókna­fyr­ir­tæki lands­ins; Gallup, Maskína og Prósent senda net­kann­anir á stóra hópa fólks við gerð skoð­ana­kann­ana.

„Þetta er tak­mark­aður hópur og þú þarft að passa að það sé jafn­vægi þegar þú ert að safna í net­hóp­inn, að það sé fólk með ólíkan bak­grunn í honum,“ segir Haf­steinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár