Stórsókn Pírata virðist ætla að halda meirihlutanum á floti

Sós­í­alista­flokk­ur­inn bætir við sig einum manni í borg­ar­stjórn sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar. Sjálf­stæð­is­flokkur tapar þremur mönnum, Viðreisn og Sam­fylk­ingin einum og Mið­flokk­ur­inn þurrkast út.

Meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn Reykja­víkur heldur velli með óbreyttan fjölda borg­ar­full­trúa, en bæði Sam­fylk­ingin og Viðreisn missa einn mann frá því sem nú er, á meðan Píratar bæta við sig tveimur full­trúum, sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sér enn fram á afhroð og mun sam­kvæmt nið­ur­stöðu kosn­inga­spár­innar fá 19,1 pró­sent fylgi, sem yrði versta nið­ur­staða flokks­ins í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum frá upp­hafi, en flokk­ur­inn fékk 30,8 pró­sent atkvæða í borg­inni árið 2018. Sam­fylk­ingin yrði nú stærsti flokk­ur­inn með hart­nær fjórð­ungs­fylgi, sam­kvæmt kosn­inga­spánni.

Sam­hliða kosn­inga­spánni er nú keyrð sæta­spá. Hún er fram­­kvæmd þannig að keyrðar eru 100 þús­und sýnd­­ar­­kosn­­ingar miðað við fylgi flokka í kosn­­inga­­spánni. Í hverri þeirra er úthlutað 23 borg­­ar­­full­­trúum og þar sem sýnd­­ar­­kosn­­ing­­arnar eru allar með inn­­­byggða óvissu þá getur fylgi flokka í hverri ein­stakri sýnd­­ar­­kosn­­ingu stundum verið hærra og stundum lægra, þótt með­­al­­tal kosn­­ing­anna allra sé það sama og kom fram í kosn­­inga­­spánni. Hægt er að sjá sæta­spánna hér að neð­an:

Áfram verða átta flokkar í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, sam­kvæmt þessum nið­ur­stöðum, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn kæmi inn af krafti með þrjá full­trúa á meðan að fylgi Mið­flokks­ins dugar ekki til þess að fá mann kjör­inn.

Sós­í­alistar verða með tvo menn sam­kvæmt þess­ari nýj­ustu kosn­inga­spá, odd­vit­ann Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur og Trausta Breið­fjörð Magn­ús­son sem situr í öðru sæti list­ans. Frá nið­ur­stöðum síð­ustu kosn­inga­spár hefur Trausti ýtt Pawel Bartoszek, öðrum manni á lista Við­reisnar, út úr borg­ar­stjórn.

Samfylking og Píratar með 10 af 23 fulltrúum

Sam­fylk­ingin og Píratar yrðu sam­an­lagt með tíu borg­ar­full­trúa af 23, en sam­an­lagt fylgi flokk­anna tveggja er 40,3 pró­sent sam­kvæmt kosn­inga­spánni. Það má því segja að þessir flokkar, sem eiga mál­efna­lega sam­leið um margt, hafi öll tromp á hendi er kemur að myndun nýs meiri­hluta.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar hefur sagt á und­an­förnum dögum að hans fyrsti val­kostur eftir kosn­ingar verði að halda núver­andi meiri­hluta­sam­starfi við Pírata, Vinstri græn og Viðreisn áfram, ef meiri­hlut­inn heldur.

Aðrir odd­vitar meiri­hluta­flokk­anna hafa einnig gefið það til kynna í vik­unni að fyrsti val­kostur þeirra yrði að hið minnsta setj­ast niður með núver­andi meiri­hluta og ræða áfram­hald­andi sam­starf, að því gefnu að meiri­hlut­inn haldi velli.

Píratar eru sam­kvæmt kosn­inga­spánni þriðji stærsti flokk­ur­inn í borg­inni með 15,6 pró­sent fylgi og myndu þá bæta veru­lega við sig frá síð­ustu kosn­ingum, en þá fékk flokk­ur­inn 7,7 pró­sent greiddra atkvæða.

Ef kosn­inga­spáin rætt­ist væri óhætt að tala um Pírata sem sig­ur­veg­ara kosn­ing­anna, ásamt Fram­sókn­ar­flokknum sem hefur risið upp í borg­inni með Einar Þor­steins­son í odd­vita­sæt­inu. Framsókn fær 11,9 pró­sent atkvæða sam­kvæmt kosn­inga­spánni en fékk ein­ungis 3,2 pró­sent í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum fyrir fjórum árum, alls 1.870 atkvæði.

Viðreisn dalar ögn frá síð­ustu kosn­inga­spá og mælist nú með 7,3 pró­sent og er Pawel Bartoszek borg­ar­full­trúi á mörkum þess að ná inn í borg­ar­stjórn eins og mál standa. Samkvæmt kosn­inga­spánni mælist hann ekki inni, heldur tapar sæti sínu til ann­ars manns Sós­í­alista­flokks­ins, sem áður segir.

Vinstri græn eru í ves­eni í Reykja­vík og mæl­ast nú með 5 pró­sent fylgi, sem myndi duga til þess að halda Líf Magneu­dóttur odd­vita flokks­ins inni í borg­ar­stjórn en flokk­ur­inn er langt frá því að ná öðrum manni inn og fylgið er á nið­ur­leið í þess­ari nýj­ustu kosn­inga­spá.

Flokkur fólks­ins siglir nokkuð lygnan sjó og er með 4,7 pró­senta fylgi, sem er aðeins meira en kom upp úr kjör­köss­unum í borg­inni árið 2018 og myndi tryggja Kolbrúnu Bald­urs­dóttur áfram­hald­andi veru í borg­ar­stjórn. Eitthvað sér­stakt virð­ist þó þurfa að koma til svo Mið­flokk­ur­inn nái manni í borg­ar­stjórn, en fylgi flokks­ins mælist 2,4 pró­sent í kosn­inga­spánni.

Samkvæmt síð­ustu kosn­inga­spá sögð­ust sam­an­lagt 0,2 pró­sent ætla að kjósa ýmist Reykja­vík, bestu borg­ina eða Ábyrga fram­tíð, en það hlut­fall eykst nokkuð nú og sam­kvæmt kosn­inga­spánni hyggj­ast 1,7 pró­sent kjós­enda ljá þeim fram­boðum atkvæði sitt.

Engin sjáanleg leið fyrir Sjálfstæðisflokk í meirihluta

Kosn­inga­spáin reiknar líka út lík­urnar á meiri­hlutum í borg­inni. Lík­­­urnar eru fengnar með því að fram­­kvæma 100 þús­und sýnd­­ar­­kosn­­ing­­ar. Í hverri sýnd­­ar­­kosn­­ingu er vegið með­­al­­tal þeirra skoð­ana­kann­ana sem kosn­­inga­­spáin nær yfir hverju sinni lík­­­leg­asta nið­­ur­­staðan en sýnd­­ar­n­ið­­ur­­staðan getur verið hærri eða lægri en þetta með­­al­­tal og hversu mikið byggir á sög­u­­legu frá­­viki skoð­ana­kann­ana frá úrslitum kosn­­inga.

Hildur Björnsdóttir virðist ólíklega geta leitt Sjálfstæðisflokkinn inn í meirihlutasamstarf í borginni, samkvæmt kosningaspánni.
Hildur Björns­dóttir virð­ist ólík­lega geta leitt Sjálf­stæð­is­flokk­inn inn í meiri­hluta­sam­starf í borg­inni, sam­kvæmt kosn­inga­spánni.

Líkurnar á því að sitj­andi meiri­hluti haldi mæl­ast nú 78 pró­sent og hafa þær líkur farið vax­andi eftir því sem nær dregur kosn­ingum, en til sam­an­burðar voru lík­urnar á því að meiri­hlut­inn héldi 47 pró­sent um miðjan apríl.

Athygl­is­vert er að staðan er nú sú að líkur á að hægt verði að mynda þriggja flokka meiri­hluta Sam­fylk­ingar, Pírata og Fram­sókn­ar­flokks eru meiri en að núver­andi meiri­hluti haldi, þó ekki muni miklu, en 83 pró­sent líkur eru á því að slíkur meiri­hluti, sem hefði 13 borg­ar­full­trúa, gæti orðið til.

Nú þegar tveir dagar eru til kosn­inga virð­ast afar fáir mögu­leikar í stöð­unni fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn til valda í borg­inni. Um miðjan apríl benti kosn­inga­spáin til þess að um helm­ings­líkur væru á því að flokk­ur­inn gæti leitt meiri­hluta í sam­floti við Framsókn, Viðreisn og Flokk fólks­ins, en í dag mæl­ast lík­urnar á því ein­ungis 14 pró­sent.

Það eru minni líkur en kosn­inga­spáin gefur tveggja flokkar meiri­hluta Sam­fylk­ingar og Pírata, en lík­urnar á því að þeir tveir flokkar bæti hvor um sig við sig einum manni frá núver­andi stöðu og nái að mynda tveggja flokka meiri­hluta mæl­ast nú 16 pró­sent.

Kann­­anir í nýj­­ustu kosn­­inga­­spá fyrir borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ingar 14. maí:

  • Skoð­ana­könnun Prósent 4. – 9. maí (48,7%)
  • Skoð­ana­könnun Maskínu 6. – 11. maí (51,3%)

Hvað er kosn­­­­inga­­­­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­­­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­­­ar­­­legt magn af upp­­­lýs­ing­­­um. Þessar upp­­­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræð­i­­­leg­­­ar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­­­lifir stjórn­­­­­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­­­­­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­­­ast svo við að túlka nið­­­ur­­­stöð­­­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­­­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­­­­­mál­anna.

Allar þessar kann­­anir og allar mög­u­­legar túlk­­anir á nið­­ur­­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferð­­um. Hvor könn­unin er nákvæm­­ari? Hverri skal treysta bet­­ur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­­andi hefur ekki for­­sendur til að meta áreið­an­­leika hverrar könn­un­­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið undanfarið ár