Framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála var ráðinn af atvinnuvegaráðuneytinu

Hörður Þór­halls­son, sem nýverið var ráð­inn fram­kvæmda­stjóri nýstofn­aðrar Stjórn­stöðvar ferða­mála, var form­lega ráð­inn til starfs­ins af atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu. Þar er hann með verk­taka­samn­ing og fær 1.950 þús­und krónur í laun á mán­uði. Stjórn Stjórn­stöðv­ar­innar hafi þó tekið ákvörðun um ráðn­ingu hans. Þetta kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um hver hefði ráðið fram­kvæmda­stjór­ann.

Staða fram­kvæmda­stjóra Stjórn­stöðvar ferða­mála var ekki aug­lýst. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, ráð­herra ferða­mála, sagði í við­tali við Speg­il­inn í gær að nýskipuð stjórn Stjórn­stöðv­ar­innar hafi viljað "þung­ar­vigt­ar­mann" í stöðu fram­kvæmda­stjóra. Þau hafi orðið þess áskynja að Hörður væri á lausu og Ragn­heiður Elín sagði að hann hefði upp­fyllt þau skil­yrði sem sett hefðu verið fyrir starf­inu.

Kjarninn greindi frá þvi fyrr í dag að lagt sé upp með að Stjórn­stöð ferða­mála hafi 140 millj­ónir króna til ráð­stöf­unar á ári og mun kostn­aður vegna rekstrar hennar skipt­ast jafnt milli rík­is­sjóðs og ferða­þjón­ust­unnar.

Kjarninn spurði einnig hvort til stæði að ráða fleira starfs­fólk til Starfs­stöðv­ar­innar en Hörð. Í svari ráðu­neyt­is­ins segir: „Fram­kvæmda­stjóri mun skipu­leggja vinn­una í sam­ræmi við áherslur hverju sinni og þá fjár­muni sem Stjórn­stöðin hefur til umráða. Samn­ing­ur­inn verður gerður í sam­ræmi við lög um opin­ber inn­kaup.“

Á að samhæfa aðgerðir og útfæra leiðir


Tilkynnt var um stofnun Stjórn­stöðvar ferða­mála með við­hafn­ar­kynn­ingu í Hörpu í gær. Hlutverk Stjórn­stöðv­ar­innar verður að sam­hæfa aðgerðir og útfæra leiðir í sam­vinnu við opin­berar stofn­anir og hags­muna­að­ila í ferða­þjón­ustu. Stjórn­stöð­inni er ætlað að starfa í fimm ár eða til árs­loka 2020.

Hún er sett á lagg­irnar á grund­velli sam­komu­lags milli rík­i­s­tjórn­ar­innar, Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og Samtaka ferða­þjón­ust­unnar í dag. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra skip­aði í gær tíu full­trúa í stjórn Stjórn­stöðv­ar­innar. Fjórir ráð­herrar eiga þar sæti, fjórir full­trúar frá Samtökum ferða­þjonust­unnar og tveir full­trúar Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra er for­maður Stjórn­stöðv­ar­innar.

Þá var til­kynnt um að Hörður hefði verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Stjórn­stöðvar ferða­mála og að hann muni hefja störf 1. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Hörður er með masters­gráðu í rekstr­ar­verk­fræði frá háskól­anum Karls­ruhe í Þýska­landi. Hann hóf starfs­feril sinn árið 1996 sem rekstr­ar­ráð­gjafi hjá VSÓ Ráðgjöf og var árið 2000 ráð­inn til lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Delta, sem síðar varð Actavis. Þar leiddi hann m.a. upp­bygg­ingu Actavís í Asíu, Eyjaálfu, Afríku og á Mið­aust­ur­löndum. Síðast gegndi hann stöðu fram­kvæmda­stjóra Actavis yfir Asíu, Eyjaálfu og Afríku með starfs­stöð og búsetu í Singapúr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár