Bandarísk kaffihús hafa ekki náð sér af COVID-19 sökum aukinnar heimavinnu

Í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum þurftu margir að segja skilið við skrif­stof­una og sinna vinn­unni heiman frá sér. Banda­ríkja­menn vinna enn tals­vert heima hjá sér og kaffi­hús þar vest­an­hafs hafa þurft að súpa seyðið af þeirri þróun.

Kaffibarþjónn leggur lokahönd á einn rjúkandi heitan cappucino.
Kaffi­bar­þjónn leggur loka­hönd á einn rjúk­andi heitan cappucino. Mynd: Pexels

Kaffihús í Banda­ríkj­unum finna enn fyrir áhrifum kór­ónu­veirunnar vegna þess hve stór hluti Banda­ríkja­mann kýs enn að sinna hluta af vinnu sinni heima. Sala á kaffi­húsum hrundi í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum en ólíkt mörgum öðrum fyr­ir­tækjum sem selja vörur og þjón­ustu eru kaffi­hús þar í landi enn að glíma við afleið­ingar kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Frá þessu er greint í frétt Reuters.

Samkvæmt nýrri grein­ingu frá hug­veit­unni Bank of America Institute er það ekki síst vegna þess hve hátt hlut­fall vinnu fer enn fram innan veggja heim­il­is­ins. Samkvæmt grein­ingu hug­veit­unnar sinntu Banda­ríkja­menn um þriðj­ungi vinnu sinnar frá heim­ilum sínum í júní. [adspot]

„Sam­bandið þarna á milli er ein­falt: Fólk á það til að grípa kaffi­bolla á leið sinni til vinnu á morgn­anna eða á öðrum tímum dags­ins ef það er við vinnu á skrif­stof­unni. Ef fólk vinnur heima er eft­ir­spurn þeirra eftir þeim vörum sem fást á kaffi­húsum lík­leg­ast lægri,“ segir í grein­ingu Bank of America Institute.

Þriðjungur kaffis drukkið utan heimilis

Eft­ir­spurn eftir kaffi dróst tölu­vert saman í heims­far­aldr­inum. Það gerð­ist ekki síst vegna lok­ana kaffi­húsa en að minnsta kosti þriðj­ungur af kaffi­drykkju fer fram utan veggja heim­ils­ins, að því er fram kemur í frétt Reuters.

„Þó svo að neyt­endur geti að öllum lík­indum sótt sótt sér kaffi í grennd við heim­ili sín í stað kaff­is­ins sem finna má í grennd skrif­stof­unnar þá eru neyt­endur alla jafna ólík­legri til þess að fara út til þess að ná sér í kaffi ef þeir geta fengið það heima hjá sér,“ segir í skýrsl­unni.

Þar er enn fremur á það bent að heima­vinna, sem hefur að ein­hverju leyti fest sig í sessi eftir heims­far­ald­ur­inn, geti haft langvar­andi áhrif á þjóð­ar­bú­skap­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár