Forseti neitar að svara fyrirspurn um skattamál

Kjarninn lagði fyr­ir­spurn fyrir for­seta Íslands um skatta­mál hans og eig­in­konu hans fyrir tveimur mán­uðum síðan. Embætti for­seta hefur ekki viljað svarað fyr­ir­spurn­inni né hvort til standi að gera það. Margt er á huldu um skatta­mál for­seta­hjón­anna.

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, og skrif­stofa for­seta­emb­ætt­is­ins hafa ekki viljað svara fyr­ir­spurn Kjarnans um skatta­mál for­set­ans og eig­in­konu hans, Dorritar Moussaieff. Kjarninn beindi spurn­ingum í sjö liðum til skrif­stofu for­set­ans þann 5. maí 2016. For­seta­rit­ari stað­festi mót­t­töku fyr­ir­spurn­ar­innar tveimur dögum síðar og kom henni á fram­færi við for­seta.

Síðan þá hefur Kjarninn ítrekað verið í sam­bandi við for­seta­rit­ara og skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu for­seta Íslands til að reyna að fá fyr­ir­spurn sinni svarað. Það hefur ekki tek­ist þrátt fyrir að í lið­inni viku hafi verið tveir mán­uðir verið liðnir frá því að þær voru sendar. Auk þess hafa starfs­menn skrif­stofu for­seta Íslands ekki feng­ist til þess að svara hvort til standi að svara fyr­ir­spurn­inni eða ekki.

Forsetinn sem hætti við

Fyr­ir­spurnin var send eftir að Ólafur Ragnar til­kynnti að hann ætl­aði að bjóða sig aftur fram til emb­ættis for­seta Íslands en áður en hann dró þá ákvörðun til baka. Það gerði Ólafur Ragnar 9. maí 2016 í kjöl­far þess að Guðni Th. Jóhann­es­son og Davíð Oddsson til­kynntu um fram­boð sín. Í yfir­lýs­ingu sem Ólafur Ragnar sendi þá frá sér kom fram að með fram­boði þeirra ætti þjóðin nú „kost á að velja fram­bjóð­endur sem hafa umfangs­mikla þekk­ingu á eðli, sögu og verk­efnum for­seta­emb­ætt­is­ins; nið­ur­staða kosn­ing­anna gæti orðið áþekk­ur ­stuðn­ingur við nýjan for­seta og fyrri for­setar fengu við sitt fyrsta kjör. Við þessar aðstæður er bæði lýð­ræð­is­legt og eðli­legt, eftir að hafa gegnt emb­ætt­inu í 20 ár, að fylgja í ljósi alls þessa rök­semda­færslu, grein­ingu og ­nið­ur­stöðu sem ég lýsti í nýársávarp­in­u. Ég hef því ákveðið að til­kynna með þess­ari yfir­lýs­ingu þá ákvörðun mína að gefa ekki kost á mér til end­ur­kjör­s."

Þær upp­lýs­ingar sem Kjarninn óskaði eftir voru eft­ir­far­andi:

1. Hafa for­seta­hjónin talið fram til skatts, saman eða í sitt hvoru lagi? Svar óskast sund­ur­liðað eftir árunum 2006-2015.

2. Hverjar voru fram­taldar tekjur for­seta­frú­ar­innar eft­ir­talin ár:
2006
2007
2008
2009
2010
2011 og
2012?

3. Hverjar voru eignir for­seta­frú­ar­innar sam­kvæmt skatt­fram­tölum árin 2006-2012?

4. Hver var reikn­aður stofn til greiðslu auð­legð­ar­skatts og við­bót­ar­auð­legð­ar­skatts fyrir eft­ir­talin ár:

2010

2011

2012?

5. Hversu mikið greiddi for­seta­frúin í auð­legð­ar­skatt og við­bót­ar­auð­legð­ar­skatt fyrir sömu ár?

6. Hafa skatta­mál for­seta og for­seta­frú­ar­innar verið til sér­stakrar skoð­unar skatta­yf­ir­valda á tíma­bil­inu 2006-2015? Hafa ein­hver sam­skipti verið við emb­ætti Rík­is­skatt­stjora eða Skatt­rann­sókn­ar­stjora á sama tíma?

7. Hefur for­seti ein­hvern tíma nýtt sér ónýttan per­sónu­af­slátt maka síns, á tíma­bil­inu 2006-2012?

Færði lögheimili sitt

Skatta­mál Dorritar hafa lengi verið óljós og tölu­verð umræða farið fram um þau í íslenskum fjöl­miðlum. Dor­rit og Ólafur Ragnar giftu sig þann 14. maí 2003. Ólafur hafði þá verið for­set­i Ís­lands í sjö ár. Á heima­síðu for­seta­emb­ætt­is­ins segir að Dor­rit hafi um „ára­bil feng­ist við skart­gripa­við­skipti með áherslu á sjald­gæfa steina og einnig stundað ýmis önnur við­skipt­i."

Tæpum níu árum síð­ar, þann 27. des­em­ber 2012, flutti Dor­rit lög­heim­ili sitt frá Bessa­stöðum til Bret­lands. Sá ­gjörn­ingur vakti mikla athygli og umræður á Íslandi þar sem íslensk lög ger­a ráð fyrir því að hjón eigi að hafa lög­heim­ili í sama landi. Eftir að Frétta­blaðið greindi frá þessu í júní 2013 sendi Dor­rit frá sér yfir­lýs­ingu þar ­sem hún sagði meðal ann­ars:

„Þegar horfur voru á að eig­in­maður minn yrði ekki lengur for­set­i ­gerði ég ráð­staf­anir til að geta sinnt meira fyrri störfum mínum í London, einkum í ljósi þess að for­eldrar mín­ir, sem stjórnað hafa ­fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu, eru nú háaldr­að­ir.“ Færslan á lög­heim­ili hafi verið gerð á grund­velli skatta­laga og í sam­ræmi við ráð­gjöf sér­fræð­inga.

Í nýj­ársávarpi sínu 2012 til­kynnti Ólafur Ragnar að hann ætl­aði ekki að bjóða sig fram aft­ur til emb­ættis for­seta Íslands. Honum snérist síðar hugur og sigr­aði í kosn­ing­um það sum­ar, nokkrum mán­uðum áður að Dor­rit færði lög­heim­ili sitt.

Ólafur Ragn­ar til­kynnti síðan í síð­asta nýj­ársávarpi að hann ætl­aði ekki að bjóða sig aftur fram til for­seta. Hann hefur gegnt emb­ætt­inu frá árinu 1996. Þann 18. apríl boð­að­i hann skyndi­lega til blaða­manna­fundar og greindi frá því að honum hafi aft­ur snú­ist hugur og ætli að sækj­ast eftir því að sitja sem for­seti í fjögur ár til­ við­bót­ar. Hann hætti síðan við að hætta við að hætta við 9. maí, líkt og áður sagði.

Nokkrum dögum áður hafði dag­blaðið The Guardian greint frá því að Dorrit væri ekki með skráð lög­heim­ili í Bret­landi líkt og fyrri yfir­lýs­ingar hennar hefðu bent til, heldur væri hún skráð án lög­heim­ilis eða heim­il­is­festu í Bret­landi vegna skatta­mála.

Fjölskylda Dorritar í Panamaskjölunum

Vikurnar á undan hafði verið fjallað um aflands­fé­lög í eigu fjöl­skyldu Dorritar í íslenskum og erlendum fjöl­miðlum. Kjarninn og Reykja­vík Grapevine greindu frá því þann 25. apríl að félag í eigu fjöl­skyldu hennar hafi átt skráð félag á Bresku Jóm­frú­areyj­unum frá árinu 1999 til árs­ins 2005. Félag­ið, sem heitir Lasca Fin­ance Limited, er að finna í gögnum frá­ panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fon­seca. Árið 2005 seld­i ­fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Moussai­eff Jewell­ers Ltd. tíu pró­senta hlut sinn í Lasca F­in­ance til hinna tveggja eig­enda þess. Þeir voru S. Moussai­eff og „Mr­s." Moussai­eff.

Nokkrum dögum áður hafði Ólafur Ragn­ar ­farið í við­tal til frétta­kon­unar Christ­i­ane Aman­po­ur, á banda­rísku ­sjón­varps­stöð­inni CNN. Aman­pour spurði Ólaf Ragnar um Panama­skjölin og hreint út hvort hann eða fjöl­skylda hans væri tengd aflands­fé­lög­um:

„Átt þú ein­hverja aflands­reikn­inga? Á eig­in­kona þín ein­hverja aflands­reikn­inga? Á eitt­hvað eftir að koma í ljós varð­andi þig og fjöl­skyld­u þína?” spurði hún. Ólafur var afdrátt­ar­laus í svörum: „Nei, nei, nei, nei, ­nei. Það verður ekki þannig.”

Fyr­ir­tæki Moussai­eff ­fjöl­skyld­unnar heitir Moussai­eff Jewell­ers Limited. Í árs­reikn­ingum félags­ins frá árunum 1999 til­ 2005 kemur fram að fyr­ir­tæki Moussai­eff-­fjöl­skyld­unnar ætti hlut í félagi sem heitir Lasca Fin­ance Limited, sem sett var á fót árið 1999. Eig­end­ur ­fyr­ir­tæk­is­ins voru S. Moussai­eff og A. Moussai­eff, sem áttu ráð­andi hlut og Moussai­eff Jewell­ers Limited sem átti tíu pró­sent.

Lasca Fin­ance er með heim­il­is­fest­i á Bresku Jóm­frú­areyj­un­um. Í skjölum sem Kjarn­inn hefur undir höndum kemur fram að félagið var á þeim tíma í umsjón panamísku lög­fræði­stof­unnar Mossack Fon­seca og greiddi árgjald fyrir þá þjón­ust­u. Í árs­reikn­ingum Moussai­eff Jewell­ers Limited, sem skilað var til fyr­ir­tækja­skrá­ar í Bret­landi, kemur fram að Lasca Fin­ance fái greitt umtals­verðar fjár­hæðir í vexti á hverju ári (e. inter­est receivable), sem gefur til kynna að Lasca hafi lánað ein­hverjum fé. Sam­an­lögð fjár­hæð þeirra vaxta sem Lasca átti að fá greitt frá árinu 2000 til 2005 er tæp­lega sjö millj­ónir punda. Á gengi dags­ins í dag er sú upp­hæð jafn­virð­i 1.262 millj­ónum íslenskra króna.

Á árinu 2005 seldi Moussai­eff Jewell­ers Ltd. tíu pró­sent hlut sinn í Lasca Fin­ance. Sam­kvæmt árs­reikn­ingi Moussai­eff Jewell­ers Limited voru kaup­end­urnir S. Moussai­eff og „Mrs." Moussai­eff. Kaup­verðið var 375 þús­und pund, eða 68 millj­ónir íslenskra króna. Eftir þann tíma er félagið ekki lengur skráð í bókum Moussai­eff Jewell­ers Limited.

Annar leki

Viku síðar, 2. maí, birt­ust fréttir víða í heims­press­unni um að Dorrit tengd­ist að minnsta kosti fimm banka­reikn­ingum í Sviss í gegnum fjöl­skyldu sína og að minnsta kosti tveimur aflands­fé­lögum. Þetta kom fram í gögnum em upp­ljóstr­arar létu Le Monde, Südd­eutshe Zeit­ung og ICJ fá og kall­ast Swiss Leaks og Panama Papers. Greint frá mál­inu í frétt á heima­síðu Reykja­vik Media.

Þar sagði einnig að Dorrit hafi ekki viljað svara spurn­ingum um hvort hún tengd­ist félög­unum þegar eftir því var leit­að. Við­skipti sín hefðu alltaf verið í sam­ræmi við lög og að þau væru einka­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár