Ólafur Ragnar hættur við framboð

Ólafur Ragnar Grímsson hélt blaðamannafund á Bessastöðum eftir fund sinn með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, þáverandi forsætisráðherra, í byrjun apríl. Í kjölfarið tilkynnti hann að hann gæfi áfram kost á sér.
Ólafur Ragnar Grímsson hélt blaða­manna­fund á Bessa­stöðum eftir fund sinn með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í byrjun apríl. Í kjöl­farið til­kynnti hann að hann gæfi áfram kost á sér. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, er hættur við að bjóða sig aftur fram til emb­ætt­is­ins. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem skrif­stofa for­set­ans sendi frá sér í dag. Þar segir Ólafur Ragnar að það hafi orðið ljóst með atburðum síð­ustu daga að þjóðin eigi nú „kost á að velja fram­bjóð­endur sem hafa umfangs­mikla þekk­ingu á eðli, sögu og verk­efnum for­seta­emb­ætt­is­ins; nið­ur­staða kosn­ing­anna gæti orðið áþekkur stuðn­ingur við nýjan for­seta og fyrri for­setar fengu við sitt fyrsta kjör. Við þessar aðstæður er bæði lýð­ræð­is­legt og eðli­legt, eftir að hafa gegnt emb­ætt­inu í 20 ár, að fylgja í ljósi alls þessa rök­semda­færslu, grein­ingu og nið­ur­stöðu sem ég lýsti í nýársávarp­inu. Ég hef því ákveðið að til­kynna með þess­ari yfir­lýs­ingu þá ákvörðun mína að gefa ekki kost á mér til end­ur­kjörs."

Ólafur Ragnar var gestur í sjón­varps­þætt­inum Eyjunni í gær, þar sem hann gaf til kynna að hann væri að hugsa um að hætta við að hætta við að hætta sem for­seti Íslands. Hann lýsti því yfir 18. apr­íl ­síð­ast­lið­inn að hann væri hættur við að hætta við fram­boð og ætl­aði að sækj­ast eftir að sitja sitt sjötta kjör­tíma­bil. Ólafur Ragnar vildi ekki svara því með já-i eða nei-i hvort hann yrði á kjör­seðl­inum í sum­ar í þætt­inum í gær en sagði að hann væri að hugsa sinn ­gang vegna þess að Guðni Th. Jóhann­es­son og Davíð Odds­son hefðu boðið sig fram til­ emb­ætt­is­ins. „Auð­vitað blasir það við með þessum tveimur fram­boð­u­m[...]er auð­vitað staðan orðin breytt að því leyti að þjóðin á nú kost á því [...) að kjósa ein­stak­linga sem hafa þessa reynslu og þekk­ingu á emb­ætt­in­u."

Í fyrstu skoð­ana­könn­un­inni sem birt hefur verið frá því að Guðni Th. til­kynnti fram­boð sitt á fimmtu­dag, könnun MMR sem birt var í dag, mælist stuðn­ingur við hann 59,2 pró­sent. Ólafur Ragnar, sem hafði mælst með 52,6 pró­sent fylgi í skoð­ana­könnun MMR sem birt var 27. apríl, mælist nú með 25,3 pró­sent fylgi. Andri Snær Magna­son mæld­ist með 8,8 pró­sent fylgi, Halla Tóm­as­dóttir með 1,7 pró­sent og Davíð Odds­son mælist með 3,1 pró­sent. Davíð var bætt inn sem svar­mögu­leika um leið og hann til­kynnti fram­boð sitt í gær, en 27 pró­sent svar­enda í könn­un­inni fengu hann sem svar­mögu­leika.

YFIRLÝSING FORSETA ÍSLANDS Í HEILD SINNI:

Í nýársávarpi mínu til íslensku þjóð­ar­innar 1. jan­úar bað ég lands­menn alla að íhuga vel lýs­ing­una á kjör­stöðu Íslands sem var meg­in­boð­skapur ávarps­ins og til­kynnti að í „ljósi hennar og á grund­velli lýð­ræð­is­ins sem er okkar aðals­merki finn­ast mér blasa við hin réttu vega­mót til að færa ábyrgð for­seta á aðrar herðar og hef því ákveðið að bjóða mig ekki fram til end­ur­kjörs.“

Í kjöl­far hinnar sögu­legu mót­mæla­öldu sem reis hátt í byrjun apríl knúðu margir á um að ég breytti þess­ari ákvörðun og gæfi kost á mér á ný þótt ég hefði þegar gegnt emb­ætti for­seta í tutt­ugu ár; höfð­uðu til umróts og óvissu og lít­ils fylgis yfir­lýstra fram­bjóð­enda.

Af skyldu­rækni og ábyrgð gagn­vart þeim sem lengi höfðu sýnt mér mikið traust til­kynnti ég 18. apríl að ég myndi verða við þessum óskum en lýsti jafn­framt yfir, að ég myndi taka því vel ef í ljós kæmi að aðrir nytu nægi­legs trausts þjóð­ar­innar til að gegna emb­ætt­inu.

Kannanir hafa síðan sýnt að fjöldi kjós­enda vildi fela mér emb­ættið á ný en það hefur líka orðið sú ánægju­lega þróun að öldur mót­mæla hefur lægt og þjóð­málin eru komin í hefð­bund­inn og frið­sam­legri far­veg.

Það er nú líka orðið ljóst með atburðum síð­ustu daga að þjóðin á nú kost á að velja fram­bjóð­endur sem hafa umfangs­mikla þekk­ingu á eðli, sögu og verk­efnum for­seta­emb­ætt­is­ins; nið­ur­staða kosn­ing­anna gæti orðið áþekkur stuðn­ingur við nýjan for­seta og fyrri for­setar fengu við sitt fyrsta kjör.

Við þessar aðstæður er bæði lýð­ræð­is­legt og eðli­legt, eftir að hafa gegnt emb­ætt­inu í 20 ár, að fylgja í ljósi alls þessa rök­semda­færslu, grein­ingu og nið­ur­stöðu sem ég lýsti í nýársávarp­inu.

Ég hef því ákveðið að til­kynna með þess­ari yfir­lýs­ingu þá ákvörðun mína að gefa ekki kost á mér til end­ur­kjörs.

Um leið þakka ég ein­læg­lega þann mikla stuðn­ing sem ég hef notið og vona að allt það góða fólk sem hvatti mig til fram­boðs sýni þess­ari ákvörðun vel­vilja og skiln­ing.

Þessi nið­ur­staða mín er studd þeirri full­vissu að þjóðin getur nú far­sæl­lega valið sér nýjan for­seta og ég er, eftir langa setu hér á Bessa­stöðum, bæði í huga og hjarta reiðu­bú­inn að ganga glaður til nýrra verka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár