The Guardian fullyrðir að Dorrit sé skráð utan lögheimilis í Bretlandi

Fullyrt er á vef Guardian að Dorrit Moussaieff sé skráð utan lög­heim­ilis í Bret­landi þó að hún búi þar. Ástæðan er lægri skatt­greiðslur. For­seta­emb­ættið segir engar upp­lýs­ingar hafa aðrar en þær að Dorrit búi í Bret­landi og borgi þar sína skatta.

Dorrit Moussaieff flutti lögheimili sitt frá Íslandi árið 2012 en sagði raunar hvergi hvert hún mundi flytja það.
Dorrit Moussaieff flutti lög­heim­ili sitt frá Íslandi árið 2012 en sagði raunar hvergi hvert hún mundi flytja það. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Dorrit Moussaieff er skráð án lög­heim­ilis eða heim­il­is­festu í Bret­landi vegna skatta­mála. Þetta er full­yrt í frétt á vef Guardian sem birt­ist í gær. Orðrétt segir í frétt­inni:

„Að auki benda HSBC skrárnar til þess að Moussaieff, sem er skráð utan lög­heim­ilis í Bret­landi (e. non-domicile) vegna breska skatts­ins, átti að erfa stærri hlut af aflandsauð­æfum fjöl­skyld­unnar þegar móðir hennar, hin 86 ára Alisa, deyr.”

Embættið segir Dorrit borga sína skatta í Bretlandi

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn til for­seta­emb­ætt­is­ins í morgun vegna máls­ins og spurði hvort þetta væri rétt: Að Dorrit væri ekki með lög­gilda heim­il­is­festu í Bret­landi eins og gert hefur verið ráð fyrir.

Þau svör feng­ust frá emb­ætt­inu að Dorrit væri vissu­lega skráð með búsetu í Bret­landi (e. res­ident) og borgi þar sína skatta, sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem emb­ættið hefði fengið. Annað fékkst ekki full­yrt frá emb­ætt­inu varð­andi frétt Guardian.

Færði lögheimilið frá Íslandi en tilgreindi ekki hvert

Dorrit flutti lög­heim­ili sitt frá Íslandi í des­em­ber 2012 og voru fréttir fluttar af því í júní 2013. Hún sendi frá sér yfir­lýs­ingu í kjöl­farið að flutn­ing­ur­inn væri gerður á grund­velli skatta­laga, til að geta sinnt vinnu sinni og öldruðum for­eldrum í London. Þetta gerði hún þegar horfur voru á að Ólafur Ragnar yrði ekki lengur for­seti. Hún sagði þó ekki hvert hún væri að flytja lög­heim­ili sitt, heldur gengu íslenskir fjöl­miðlar bara út frá því þar sem hún var skráð þar í Þjóðskrá. Hún greiddi ekki auð­legð­ar­skatt hér á landi. Það kom þó skýrt fram að hún væri að flytja til Bret­lands.

Fram kom í yfir­lýs­ingu Dorritar frá þeim tíma að að svo geti verið ástatt hjá hjónum að annar mak­inn sé skatt­skyldur ótak­markað vegna heim­il­is­festi hér á landi, en hinn mak­inn með tak­mark­aða skatt­skyldu, það er ekki með lög­heim­ili. Ákvæðin eigi einkum við erlenda rík­is­borg­ara og tví­skött­un­ar­samn­inga.

Samkvæmt Þjóðskrá er Dorrit skráð í Bret­landi. Utan lög­heim­ilis (e. non-domicile) er skil­greint á vef bresku rík­is­stjórn­ar­innar sem staða breskra rík­is­borg­ara sem hafa aðal­að­setur utan Bret­lands og þurfa því mögu­lega ekki að greiða tekju­skatt af erlendum tekjum.

Í umfjöllun Guardian um fólk utan lög­heim­ilis segir: „Þetta er ein­stök staða fólks sem þekk­ist hvergi utan Bret­lands. Þetta gerir millj­arða­mær­ingum (e. ultra-wealthy) kleyft að fæð­ast, alast upp og búa á Bret­landi, og borga samt mun lægri skatta heldur en aðrir breskir rík­is­borg­arar, á full­kom­lega lög­legan hátt.”

Dorrit tengist sjálf aflandsfélögum

Frétt Guardian var birt að til­efni fregna gær­dags­ins um að Dor­rit hafi tengst minnst fimm banka­reikn­ingum í Sviss í gegnum fjöl­skyldu sína og að minnsta kosti tveim aflands­fé­lög­um. Það kom fram í gögnum sem upp­ljóstr­arar létu Le Monde, Südd­eutshe Zeit­ung og ICJ fá og kall­ast Swiss Leaks og Panama Papers. Greint frá þessu í frétt á heima­síðu Reykja­vik Media í gær. Auk þess birt­ist fréttin víða ann­ars­staðar í heims­press­unni, meðal ann­ars á vef The Guar­dian og á vef Sudd­eutche Zeit­ung.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár