Aðlaganir og undanþágubeiðnir EES-ríkjanna áhyggjuefni

Evr­ópu­þingið hefur áhyggjur af því að EES-ríkin þrjú, Ísland, Noregur og Lichtenstein, óski í auknum mæli eftir aðlög­unum og und­an­þágum frá EES-gerðum sem þeim er skylt að taka upp sam­kvæmt samn­ingnum um Evrópska efna­hags­svæðið. Þingið telur þessar beiðnir leiða til óþarfra tafa og valdi sprungum á innri mark­aðnum.

Þetta kemur fram í fyrstu drögum að þings­á­lyktun sem nefnd Evr­ópu­þings­ins um innri mark­að­inn og neyt­enda­vernd vinnur nú að um EES-samn­ing­inn og sam­skipti Evr­ópu­sam­bands­ins við Sviss.

Evr­ópu­þing­mað­ur­inn Andreas Schwab er skýrslu­gjafi nefnd­ar­innar en hann mun fjalla um þessi mál á fundi Alþjóða­mála­stofn­unar á morgun.

Í skýrslu­drög­unum er áhyggjum lýst af þessu ástandi og Ísland, Noregur og Liechtenstein eru sterk­lega hvatt til þess að bæta úr þessu ástandi þannig að jöfn tæki­færi allra séu tryggð á innri mark­aðnum.

Áhyggjur af innleiðingarhalla Íslands


Í skýrsl­unni er einnig vikið að inn­leið­ing­ar­halla EES-ríkj­anna, sem er stuð­ull sem mælir hversu margar EES-gerðir ríkin inn­leiða ekki á réttum tíma. Hallinn hefur und­an­farin ár verið lang­mestur hjá Íslandi og sam­kvæmt síð­asta frammi­stöðu­mati Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, ESA, var hall­inn um mitt ár í fyrra 3,1 pró­sent. Á sama tíma var inn­leið­ing­ar­hall­inn 1,9 pró­sent í Noregi og 0,7 pró­sent í Liechtenstein.

Áhyggjum er lýst yfir vegna þessa halla, bæði á Íslandi og í hinum ríkj­unum, þar sem hann hefur auk­ist mikið und­an­farin ár. Nauð­syn­legt sé að EES-lög­gjöf sé tekin upp í ríkj­unum eins skömmu eftir að hún er tekin upp í ESB-ríkj­unum og hægt er. Ríkin eru hvött til þess að leggja meira á sig til þess að ná tökum á inn­leið­ing­ar­hall­anum.

Vikið er sér­stak­lega að Íslandi í skýrslu­drög­unum og kemur fram þar að Evr­ópu­þingið taki bréf íslensku rík­is­stjórn­ar­innar um stöðu Íslands sem umsókn­ar­ríkis að ESB til greina. Í ljósi þess eru Íslend­ingar sterk­lega hvattir til þess að spýta í lóf­ana og upp­fylla skuld­bind­ingar sínar sam­kvæmt EES-samn­ingnum.

Íslensk stjórn­völd hafa lýst yfir vilja sínum til þess að taka á inn­leið­ing­ar­hall­anum. Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum und­an­farna daga hefur málum ESA gegn Íslandi fjölgað mikið und­an­farið, en þau eru til komin vegna tafa á inn­leið­ingum. Í skýrslu utan­rík­is­ráð­herra um utan­rík­is­mál, sem hann lagði fyrir þingið í síð­asta mán­uði, kemur fram að ell­efu dómar hafa fallið gegn Íslandi á síð­asta ári. Fjögur mál til við­bótar eru til með­ferðar. Í skýrsl­unni kemur einnig fram að þessi staða sé ríkt áhyggju­efni fyrir stjórn­völd.

Samkvæmt Evr­ópu­stefnu stjórn­valda á að bæta úr þessum málum og skip­aður hefur verið starfs­hópur sem á að fara yfir þessi mál. Samkvæmt sömu stefnu áttu ekki að vera nein dóms­mál af þessu tagi fyrir dóm­stólum á fyrri hluta þessa árs, og inn­leið­ing­ar­hall­inn átti að vera kom­inn niður fyrir 1 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár