Katrín sagði forseta frá gangi viðræðna við Bjarna og Sigurð Inga

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna hélt til Bessa­staða á fund for­seta Íslands í morgun.

Katrín og Guðni Th. á Bessastöðum í morgun.
Katrín og Guðni Th. á Bessa­stöðum í morgun. Mynd: Forsetaembættið

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna fund­aði í morgun með Guðna Th. Jóhann­essyni for­seta Íslands.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá for­seta­emb­ætt­inu var rætt um við­ræður hennar, Bjarna Bene­dikts­sonar for­manns Sjálf­stæð­is­flokks og Sigurðar Inga Jóhann­sonar for­manns Fram­sókn­ar­flokks und­an­farna daga, og þau áform að þessir þrír flokkar haldi rík­is­stjórn­ar­sam­starfi sínu áfram.[links]

„Forseti mun áfram fylgj­ast með gangi mála eftir þörfum,“ segir í til­kynn­ingu emb­ætt­is­ins, en eins og sagt var frá á Kjarn­anum í gær hafa stjórn­ar­flokk­arnir rætt óform­lega um verka­skipt­ingu, fjölgun ráðu­neyta og hvaða mál­efni eigi að vera fyr­ir­ferða­mest í stjórn­ar­sátt­mála næstu rík­is­stjórnar, náist sam­komu­lag um áfram­hald­andi sam­starf.

Í við­ræðum flokk­anna er gengið út frá því að Katrín verði áfram for­sæt­is­ráð­herra, en Sigurður Ingi sæk­ist sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans eftir því að fá fjár­mála­ráðu­neytið á grund­velli auk­ins styrks Fram­sókn­ar­flokks­ins eftir kosn­ing­ar. Við­mæl­endur Kjarn­ans hafa sagt að Bjarni sé ekki afhuga þess­ari nið­ur­stöðu fái Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fleiri ráðu­neyti í sinn hlut í stað­inn. Sjálfur myndi hann þá senni­leg­ast setj­ast í stól utan­rík­is­ráð­herra.

[adspot]

Hvernig skipt­ing ráðu­neyta verður á milli flokk­anna að öðru leyti liggur enn ekki fyr­ir, en búast má við að ráðu­neytum verði fjölgað til að höggva á þá hnúta sem gætu komið upp í þeim samn­inga­við­ræðum og til að leggja áherslu á helstu stefnu­mál nýrrar rík­is­stjórn­ar.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur þegar kallað eftir því að sér­stakt inn­við­a­ráðu­neyti verði að veru­leika með því að hús­næð­is­mál verði flutt yfir til sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráðu­neytið og jafn­vel ein­hver verk­efni sem verið hafa inni í atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu.

Þá er vilji innan þess flokks að skipta aftur upp sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu í tvennt þannig að land­bún­aði verði gert hærra undir höfði í sér­stöku ráðu­neyti sem kennt verði við land­búnað og mat­væli. Sér­stakt lofts­lags­ráðu­neyti kemur einnig til greina.

Því gætu ráðu­neytin, í nýrri rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, orðið allt að tólf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár