Þeim sem hafa verið án atvinnu í meira en ár hefur fjölgað um fjögur þúsund milli ára

Atvinnu­leysi dróst lít­il­lega saman í síð­asta mán­uði og Vinnu­mála­stofnun spáir að það muni halda áfram að minnka í apríl vegna árs­tíða­sveiflu og sér­stakra atvinnu­á­taka stjórn­valda. Lang­tíma­at­vinnu­leysi heldur þó áfram að aukast.

Atvinnu­leysi á Íslandi dróst lít­il­lega saman í mars­mán­uði og mæld­ist heilt yfir 12,1 pró­sent. Þar af var almennt atvinnu­leysi, sem mælir þá sem voru að öllu leyti án atvinnu, alls ell­efu pró­sent sem þýðir að 21.019 manns voru atvinnu­lausir í lok síð­asta mán­aðar. Það minnk­aði um 0,4 pró­sentu­stig á milli mán­aða. Til við­bótar voru svo 4.186 á hluta­bótum sem bætti 1,1 pró­sentu­stigi við heild­ar­at­vinnu­leysið.

Þetta kemur fram í nýjum tölum um vinnu­mark­að­inn á Íslandi sem Vinnu­mála­stofnun birti í gær.

Þar kom enn fremur fram að alls höfðu 6.207 almennir atvinnu­leit­endur verið án atvinnu í meira en eitt ár í lok síð­asta mán­aðar. Þeim fjölg­aði um 1.488 milli mán­aða og hefur fjölgað um 4.009 frá því í mars í fyrra.

Þegar hóp­ur­inn sem hefur verið atvinnu­laus í hálft ár eða meira er skoð­aður þá taldi hann 13.647 um síð­ustu mán­aða­mót. Alls fjölg­aði í þeim hópi um 886 milli mán­aða.

Markmiðið að skapa sjö þúsund störf

Vinnu­mála­stofnun spáir því að almennt atvinnu­leysi minnki áfram í apríl meðal ann­ars vegna árs­tíða­sveiflu og sér­stakra atvinnu­á­taka stjórn­valda og verði á bil­inu 9,8 til 10,2 pró­sent.

Rík­is­stjórnin setti í síð­asta mán­uði af stað sér­stakt atvinnu­á­tak undir yfir­skrift­inni „Hefjum störf“. Mark­miðið er að skapa allt að 7.000 tíma­bundin störf hjá einka­fyr­ir­tækj­um, félaga­sam­tökum og hinu opin­bera. Áætl­aður kostn­aður við þessar aðgerðir eru 4,5-5 millj­arðar króna.

[adspot]Með aðgerð­unum voru svo­kall­aðir ráðn­ing­ar­styrkir víkk­aðir út þannig að lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki, með undir 70 starfs­menn, geta sótt um ráðn­ing­ar­styrki til þess að ráða starfs­menn sem hafa verið atvinnu­lausir í meira en eitt ár. Þannig mynd­ast hvati fyrir fyr­ir­tæki til þess að ráða fólk til starfa sem hefur verið lengi án vinnu.

Hverjum nýjum starfs­manni fylgir allt að 472 þús­und króna stuðn­ingur á mán­uði, auk 11,5 pró­sent fram­lags í líf­eyr­is­sjóð, í allt að sex mán­uði og getur fyr­ir­tækið ráðið eins marga starfs­menn og það þarf þangað til heildar starfs­manna­fjöldi hefur náð 70. Ráðn­ing­ar­tíma­bilið er sex mán­uðir á tíma­bil­inu frá apríl til des­em­ber 2021.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði á Alþingi í gær að af þeim 1.583 nýjum störfum sem voru aug­lýst í vinnu­miðlun Vinnu­mála­stofn­unar í mars væru 88 pró­sent þeirra komin til vegna aðgerða stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár