Bretar telja Pútín haga sér eins og einræðisherra á miðri 20. öld

Forsetar Úkraínu og Rúss­lands, Petro Poros­henko og Vladimír Pútín, munu funda með Angelu Merkel Þýska­landskansl­ara og Francois Hollande Frakk­lands­for­seta í Minsk í Hvíta-Rúss­landi á mið­viku­dag. Þetta var ákveðið eftir að fjór­menn­ing­arnir áttu síma­fund sín á milli fyrr í dag.

Minsk hefur ákveðna merk­ingu í tengslum við borg­ara­stríðið í Úkraínu, en þar náð­ist sam­komu­lag um vopna­hlé í sept­em­ber. Vopna­hléið hélt þó ekki og átök hófust á ný mjög skömmu eftir það, en Poros­henko hefur sagt að nýtt vopna­hlé þurfi að byggja á skil­málum þess sem var sam­þykkt í Minsk.


Samkvæmt tals­manni þýsku rík­is­stjórn­ar­innar, Steffen Seibert, ræddu leið­tog­arnir ýmsar til­lögur til að reyna að ná alhliða lausn á stríð­inu í aust­ur­hluta Úkraínu á fundi sínum í dag. Ekki hefur verið greint ítar­lega frá því í hverju frið­ar­um­leit­anir Frakka og Þjóð­verja fel­ast, en Hollande Frakk­lands­for­seti hefur þó sagt að til­lög­urnar miði við að 50 til 70 kíló­metra hlut­laust svæði verði með­fram svæð­inu þar sem barist hefur verið.


Merkel og Hollande hafa tekið að sér að reyna að ná fram frið í Úkraínu fyrir hönd Vest­ur­landa. Merkel sagði í gær að það væri ekki víst að þeim tæk­ist ætl­un­ar­verkið, en hún sagð­ist telja það þess virði að reyna.


Málið hefur verið í aðal­hlut­verki á örygg­is­ráð­stefn­unni í Munchen, sem lýkur í dag. Í morgun tal­aði John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, um málið. Banda­ríkja­menn íhuga að veita stjórn­völdum í Úkraínu hern­að­ar­lega aðstoð, og sömu sögu hefur Atl­ants­hafs­banda­lagið. Veiting hern­að­ar­að­stoðar er mjög umdeild meðal leið­toga Vest­ur­land­anna, og Merkel sagði síð­ast í gær að hún væri mjög andsnúin þeirri hug­mynd. Fleiri vopn myndu bara gera ástandið verra.


Kerry vís­aði því þó á bug að það væri mis­sætti milli Vest­ur­landa­ríkja, ein­hugur ríkti um að ná frið­sam­legri lausn á deil­unni.


Philip Hammond, utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands, gæti þó hafa hleypt olíu á eld Rússa með ummælum sínum í morgun. Í við­tali við Sky News sagði hann að Vladimír Pútín hagi sér eins og ein­ræð­is­herra á miðri 20. öld­inni. „Þessi maður hefur sent her­menn yfir alþjóð­leg landa­mæri og hernumið svæði sem til­heyrir öðru ríki, á 21. öld­inni, hag­andi sér eins og ein­hver ein­ræð­is­herra á miðri 20. öld. Siðaðar þjóðir haga sér ekki þannig. Við sjáum enga ástæðu til að umbera svona sví­virði­lega og gam­al­dags hegðun frá Kreml,“ sagði utan­rík­is­ráð­herr­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár