Verjandi Hannesar líkti gagnaleka lögreglu við lekamálið

Sér­stakur sak­sókn­ari telur hæfi­legt að Hannes Smárason verði dæmdur í tveggja til þriggja ára fang­elsi fyrir fjár­drátt í Sterling-mál­inu, en munn­legum mál­flutn­ingi í mál­inu lauk fyrir hér­aðs­dómi í morgun. Verjandi Hannesar sak­aði Helga Magnús Gunn­ars­son, fyrrum sak­sókn­ara efna­hags­brota­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra og núver­andi vara­rík­is­sak­sókn­ara, um að hafa lekið gögnum í mál­inu til þriðja aðila. Þau gögn hafi síðan ratað til fjöl­miðla. Til­gang­ur­inn hafi verið að skapa „réttu stemmn­ing­una“ í kringum málið. Verj­and­inn, Gísli Guðni Hall, líkti þessu við leka­málið svo­kall­aða og sagði að um skýrt lög­brot hafi verið að ræða. Með þessu hafi ákæru­valdið haft óeðli­leg áhrif á rann­sókn máls­ins. Frá þessu er greint á vef Vísis.is. Hann byggir vörn Hannesar á að ekki hafi verið sýnt fram á að bind­andi fyr­ir­mæli hafi verið gefin um milli­færsl­una eða ekki. Hannes sagð­ist sjálfur vera sak­laus af ákærunni og að ekk­ert benti til þess að milli­færslan hefði yfir höfuð átt sér stað.

Gísli Guðni Hall minnt­ist einnig á frétta­skýr­ingu sem birt­ist í hér, hér og hér.

Hannes Smárason kærði Valtý Sig­urðs­son, þáver­andi rík­is­sak­sókn­ara, og Helga Magnús Gunn­ars­son fyrir brot á þagn­ar­skyldu í opin­beru starfi vegna þess að gögnin voru afhent fyrr­ver­andi hlut­hafa í FL Group. Málið var fellt niður sum­arið 2011. Lög­reglu­rann­sókn fór auk þess fram á því hvernig gögnin röt­uðu í fjöl­miðla og var grein­ar­höf­undur meðal ann­ars beð­inn um að upp­lýsa um hver hefði látið hann fá gögnin. Þeirri beiðni var neitað.

[caption id="attachment_774" align="alignnone" width="720"] Milli­færslan sem Hannes er sak­aður um að hafa fyr­ir­skipað á að hafa verið notuð til að borga fyrir danska flug­fé­lagið Sterling.[/caption]

Millifærsla á tæpum þremur milljörðum króna


Hannes, sem er fyrrum for­stjóri og stjórn­ar­for­maður FL Group, var í lok októ­ber 2013 ákærður fyrir fjár­drátt fyrir að láta milli­færa tæp­lega þrjá millj­arða króna af banka­reikn­ingi FL Group í úti­búi Danske Bank í New York og inn á nýjan banka­reikn­ing FL Group hjá Kaup­þingi í Lúx­em­borg sem Hannes hafði látið stofna fimm dögum áður. Samkvæmt sér­stöku umboði hafði Hannes fullt og ótak­markað umboð til ráð­staf­ana á fjár­munum félags­ins á þeim banka­reikn­ing.

Millifærslan sem Hannes er sakaður um að hafa fyrirskipað á að hafa verið notuð til að borga fyrir danska flugfélagið Sterling.
Milli­færslan sem Hannes er sak­aður um að hafa fyr­ir­skipað á að hafa verið notuð til að borga fyrir danska flug­fé­lagið Sterling.

Fjár­mun­irnir voru sama dag færðir frá nýja banka­reikn­ingnum yfir á banka­reikn­ing Fons eign­ar­halds­fé­lags, í eigu Pálma Har­alds­sonar og Jóhann­esar Krist­ins­sonar. Þar var fjár­hæð­inni skipt í danskar krónur og í kjöl­farið lagðar inn á félagið Fred. Olsen & Co., þáver­andi eig­anda flug­fé­lags­ins Sterling Airlines. Millj­arð­arnir þrír mynd­uðu því stóran hluta af þeim fjórum millj­örðum króna sem Fons greiddi fyrir kaup á Sterling á þessum tíma.

Kjarninn fór yfir málið í frétta­skýr­ingu sem birt­ist á mánu­dag.

Segir ekki sýnt fram á að millifærslan hafi átt sér stað


Samkvæmt frétt mbl.is af mál­flutn­ingnum byggir verj­andi Hannesar vörn hans á að ekki hafi verið sýnt fram á að milli­færslan hafi raun­verlu­ega átt sér stað. Til þess að svo hefði verið hefðu ýmis skjöl þurft að liggja fyrir lögum sam­kvæmt. Þau skjöl hafa aldrei fund­ist.

Finnur Þór Vil­hjálms­son sak­sókn­ari vill að Hannes verði dæmdur í 2-3 ára fang­elsi og sagði í munn­legum mál­flutn­ingi sínum að sekt Hannesar væri óyggj­andi. Alveg ljóst væri að milli­færslan hefði átt sér stað og að Hannes hafi haft for­ræði á því máli og verið drif­kraft­ur­inn að baki þess. „Starfs­menn Kaup­þings í Lúx­emburg hafi stað­fest það og starfs­menn og stjórn­end­ur FL Group sem reynt hafi að fá upp­lýs­ing­ar um reikn­ing­inn og stöðu hans hafi verið neitað um þær með vís­an í banka­leynd og að sá eini sem hefði rétt á þeim væri Hann­es,“ er haft eftir Finni í frétt mbl.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár