Allir féllust á kosningar 4. nóvember – stjórnmálaleiðtogar funduðu með forseta

Kosn­ingar munu að öllum lík­indum fara fram 4. nóv­em­ber. Bjarni Bene­dikts­son baðst lausnar og for­set­inn skip­aði starfs­stjórn. Viðreisn gefur svar eftir helgi um sam­starf í starfs­stjórn.

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir, Birgitta Jónsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Óttarr Proppé, Benedikt Jóhannesson, Logi Már Einarsson.
Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands, Bjarni Bene­dikts­son, Katrín Jak­obs­dóttir, Birgitta Jóns­dóttir, Sigurður Ingi Jóhanns­son, Óttarr Proppé, Benedikt Jóhann­es­son, Logi Már Ein­ars­son. Mynd: Samsett mynd

Formenn þeirra stjórn­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi fund­uðu með Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands, á Bessa­stöðum í dag. Fyrstu kom Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og baðst lausnar fyrir ráðu­neyti sitt.

[links]For­set­inn veitti ráðu­neyti hans lausn en óskaði eftir því, eins og venja er, að rík­is­stjórnin myndi starfa áfram í starfs­stjórn. Bjarni varð við því, en óvissa er um þátt­töku ráð­herra Við­reisnar í starfs­stjórn­inni, enda gaf Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, for­set­anum ekki svar. Svarið mun ber­ast eftir helgi, þegar flokk­ur­inn hefur ráðið ráðum sínum.

Allir for­menn flokk­ana sögð­ust reiðu­búnir að sam­þykkja til­lögur um að kosn­ingar verði haldnar 4. nóv­em­ber næst­kom­andi. Þangað til eru 49 dagar, eða sjö vikur. Þess vegna er ljóst að kosn­inga­bar­áttan verður snörp.

Kosn­ing­arnar virt­ust jafn­framt leggj­ast vel í alla for­menn flokk­ana. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur und­ir­bún­ings­vinna og hug­mynda­starf um mönnun lista og mál­efna­und­ir­bún­ingur þegar haf­ist í kjör­dæma­nefndum flokk­ana.

Hér að neðan er sam­an­tekt úr við­tölum og yfir­lýs­ingum allra for­mann­anna sem fund­uðu með Guðna í dag. Röð for­manna er í þeirri röð sem þeir komu til fundar við for­setan.

Bjarni Benediktsson – Sjálfstæðisflokkurinn

Bjarni Bene­dikts­son gekk á fund for­seta Íslands í morgun og baðst lausnar fyrir sig og sitt ráðu­neyti. Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, féllst á það og óskaði eftir því að rík­is­stjórnin myndi starfa í starfs­stjórn þar til ný rík­is­stjórn verði mynduð.

Ný rík­is­stjorn verður ekki mynduð fyrr en eftir kosn­ingar, sem Bjarni hefur lagt til að fari fram 4. nóv­em­ber næst­kom­andi. Bjarni von­ast til þess að geta samið um þá dag­setn­ingu við þing­flokka á Alþingi.

Spurður hvort honum sé stætt í rík­is­stjórn segir Bjarni að það sé venjan að ráð­herrar eru beðnir um að sitja áfram. Ráð­gjafa­ráð Við­reisnar hefur ályktað um að Viðreisn geti ekki starfað í rík­is­stjórn þar sem Bjarni og Sigríður Andersen gegna ráð­herra­emb­ætti. Bjarni seg­ist ekki sækja umboð sitt til ráð­gjafa­ráðs­ins.

„Menn verða að rísa undir þeirri skyldu að starfa áfram,“ segir Bjarni. Spurður um hvað þeir Guðni hafi rætt sagði Bjarni: „Við áttum bara mjög fínan fund, ræddum um stjórn­málin og þessa atburði sem hafa verið á und­an­förnum árum.“

[quote]Mín von­brigði eru ekki per­sónu­leg von­brigði.[/quote]Spurður hvort þetta mál hafi haft per­sónu­leg áhrif á Bjarna og fjöl­skyldu hans, þar sem faðir hans hefur verið til umfjöll­unar vegna þess að hann vott­aði með­mæli fyrir dæmdan barn­a­níð­ing. „Það getur ekk­ert mál komið upp á milli okkar feðganna, sem truflar okkar trúnað og traust,“ svar­aði Bjarni.

„Mín von­brigði eru ekki per­sónu­leg von­brigði. Ég er ekki í stjórn­málum til þess að upp­fylla per­sónu­legan metnað. Mín von­brigði eru ein­fald­lega brostnar vonir fyrir það ráðu­neyti sem ég var að skila inn umboði fyrir núna.“

Guðni Th. Jóhannesson – Forseti Íslands

Það er „skylda og ábyrgð þing­manna að bregð­ast við þess­ari stöðu“ sagði Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, þegar hann ávarp­aði blaða- og frétta­menn eftir fund sinn með Bjarna Bene­dikts­syni. „Það er í líka í mínum verka­hring,“ sagði hann enn fremur.

„Ég segi engum fyrir verkum í þessum efnum en ég minni á að þegar for­sæt­is­ráð­herra hefur beðist lausnar að þá er venjan sú og hefðin að ráð­herrar sinni sínum skyldum í sínum ráðu­neyt­unum þar til ný stjórn hefur verið mynduð. Ef þau telja það ómögu­legt þá er að taka því.“

Til­gang­ur­inn með fundi við leið­toga ann­ara flokka er að fá stað­fest sjón­ar­mið þeirra um þing­rof og kosn­ingar, útskýrði for­set­inn.

„Sé vilji til þess innan þings, að mynda nýja rík­is­stjórn, sem getur að minnsta kostið varist van­trausti, þá verður brugð­ist við því,“ sagði Guðni.

For­set­inn var beð­inn um að bregða sér í hlut­verk sagn­fræð­ings­ins og útskýra þá stöðu sem komin væri upp og hver næstu skref væru. Hann sagði að ætl­ast væri til þess starf­stjórn taki engar stefnu­mark­andi ákvarð­anir. Við slíkt ástand væri ekki að vænta stórra tíð­inda af Alþingi, fyrir utan það að for­sæt­is­ráð­herra þarf að leggja fram til­lögu um þing­rof og for­seti þarf að taka afstöðu til þeirra.

Spurður hvort það væru von­brigði að sjá þessa rík­is­stjórn falla sagði Guðni: „Já, vissu­lega. En þetta er gangur stjórn­skip­an­ar­innar í okkar landi.“

Katrín Jakobsdóttir – Vinstri græn

Það kom Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs, ekki á óvart að rík­is­stjórnin hafi fallið. Hún gekk á fund for­seta Íslands eftir hádegið í dag. Katrín sagð­ist ekki búast við því að þing yrði að störfum fram að kosn­ingum enda sitji starfs­stjórn í stjórn­ar­ráð­inu og flokk­arnir farnir að und­ir­búa sig fyrir kosn­ingar.

Spurð um þá stöðu sem er í stjórn­mál­unum í dag með það í huga hvernig nið­ur­stöður síð­ustu kosn­inga urðu sagð­ist Katrín vona að stjórn­mála­menn hefðu lært af þeirri reynslu. Hún hvatt til þess að breið­ara sam­starf yrði haft um mál­efni á Alþingi. Sam­starfsvilj­ann hafi skort í þeirri rík­is­stjórn sem var að falla, þrátt fyrir að sú stjórn hafi aðeins haft eins manns meiri­hluta á þingi.

„Flokk­arnir verða að gera það upp við sig fyrir kosn­ingar hvaða mála­miðl­anir þeir eru til­búnir að gera,“ sagði Katrín eftir fund­inn með for­set­anum.

Birgitta Jónsdóttir – Píratar

Birgitta Jóns­dóttir sagð­ist hafa átt gott sam­tal við Guðna for­seta. „Það er verið að fara yfir mögu­legan kosn­inga­dag, þing­rof og annað. Það kemur svo í ljós hvort fólk sé að tala saman.“

Hún sagði pírata ekki eiga aðild að neinum þreif­ingum um nýja rík­is­stjórn. Birgitta seg­ist hafa heyrt að ein­hverjir flokkar séu nú að ræða saman um hugs­an­legt stjórn­ar­sam­starf.

Spurð hvort henni hugn­ist kosn­ingar 4. nóv­em­ber segir Birgitta: „Mér finnst það bara fín dag­setn­ing. Ég vona að það verði ekki kosn­ingar á hverju ári því það þýðir að mörg mál munu falla á milli.“

Birgitta hvatti kjós­endur til að láta ekki blekkj­ast af ástand­inu og sagð­ist vilja að hér verði reistar stjórn­mála­blokkir eins og gerst hefur í lönd­unum í kringum okkur. Á Birgitta að öllum lík­indum við að það verði skýrt fyrir kosn­ingar hver hugs­an­leg stjórn­ar­mynstur verði að kosn­ingum loknum.

Sigurður Ingi Jóhannsson – Framsóknarflokkurinn

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, telur eðli­legt að starfs­stjórn sitji við þær aðstæður sem nú er komin upp í íslenskri póli­tík. Heppi­leg­ast sé að ganga til kosn­inga sem fyrst.

Hann seg­ist heyra að það sé sam­hljómur með öllum for­mönnum stjórn­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi að kosn­ingar eigi að fara fram í byrjun nóv­em­ber.

Sigurður Ingi sagði algeran ein­huga ríkja meðal fram­sókn­ar­manna að flokk­ur­inn myndi ekki taka laus sæti í rík­is­stjórn­inni.

Benedikt Jóhannesson – Viðreisn

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, seg­ist ætla að gefa Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands, svar eftir helgi um það hvort ráð­herrar flokks hans taki sæti í starfs­stjórn­inni fram að kosn­ingum.

Ráð­gjafa­ráð Við­reisnar hefur ályktað að núver­andi for­sæt­is­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra, þau Bjarni Bene­dikts­son og Sigríður Andersen, geti ekki setið áfram á ráð­herra­stólum á meðan rann­sókn máls­ins stendur. Viðreisn muni ekki starfa í rík­is­stjórn þar sem Bjarni og Sigríður starfa einnig.

Guðni félst á lausn­ar­beiðni Bjarna Bene­dikts­sonar í hádeg­inu og óskaði eftir því að ráð­herrar í ráðu­neyti hans myndi starfa áfram í svo­kall­aðri starfs­stjórn fram að kosn­ingum. Benedikt seg­ist ekki hafa gefið svar af eða á um þetta á fundi sínum með for­set­anum í dag. Það muni hann gera eftir helgi.

„Við munum taka þátt í starfs­stjórn­inni að minnsta kosti um helg­ina. Það þarf að vega og meta þetta. Starfs­stjórn er allt annað en venju­leg rík­is­stjórn. Starf­stjórn felst í því að manna ráðu­neytin,“ sagði Benedikt og ítrek­aði að póli­tísku sam­starfi þess­arar rík­is­stjórnar væri lokið. „Þessu meiri­hluta­sam­starfi er lokið. Það verða ekki einu sinni haldnir rík­is­stjórn­ar­fundir á þessu tíma­bili [fram að kosn­ingum]. Við verðum að gera þennan skýra grein­ar­mun.“

Ráð­gjafa­ráð Við­reisnar er skipað stjórn Við­reisn­ar, þing­flokkn­um, for­mönnum mál­efna­nefnda og stjórnum lands­hluta­ráða. Ráðið var kallað saman í dag. Í ljósi „þeirrar alvar­legu stöðu og trún­að­ar­brests sem kom­inn er upp,“ telur ráð­gjafa­ráðið far­sæl­ast fyrir þjóð­ina að þing sé rofið og gengið sé til kosn­inga að nýju.

Óttarr Proppé – Björt framtíð

Óttarr Proppé, for­maður Bjartar fram­tíðar, segir það skrýtna til­finn­ingu að sitja í starfs­stjórn eftir að hafa gert til­raunir til að láta rík­is­stjórn­ar­sam­starfið ganga upp við erf­iðar aðstæður.

Björt fram­tíð ætlar að taka þátt í starfs­stjórn. „Við gerum það að beiðni for­seta Íslands að það sé skylda okkar að manna þessa pósta fram að kosn­ingum,“ sagði Óttarr þegar hann gekk af fundi for­set­ans.

Spurður hvort það kæmi til greina fyrir Bjarta fram­tíð að taka aftur þátt í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokknum sagði Óttarr það ekki koma til greina eins og stendur.

Logi Már Einarsson – Samfylkingin

Logi Már Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, var síð­asti for­mað­ur­inn sem gekk á fund for­seta á Bessa­stöðum í dag. Hann sagði for­set­ann hafa spurt um afstöðu hans til kosn­inga og hvort hægt væri að mynda meiri­hluta á því þingi sem nú situr.

Logi sagð­ist vera til­bú­inn í kosn­ingar 4. nóv­em­ber, eini gall­inn á þeirri dag­setn­ingu væri að það væri sama helgi og Iceland Airwaves-tón­lista­há­tíðin færi fram í Reykja­vík.

Sam­fylk­ingin fyr­ir­hugar að halda lands­fund flokks­ins í lok októ­ber. Logi segir fram­kvæmda­stjórn flokks­ins ætla að koma saman á morgun og ákveða hvort lands­fund­inum verði flýtt vegna snemm­bú­inna kosn­inga.

„Ég er ágæt­lega stefndur,“ sagði Logi um skoðun sína á kosn­ing­unum sem fram undan eru. Hann telur mörg sókn­ar­færi vera fyrir Sam­fylk­ing­una fyrir kosn­ingar.

Logi sagð­ist „ekki ætla að hafa stór orð“ um starfs­stjórn­ina sem mun að óbreyttu sitja fram að kosn­ingum. Um það hvort Logi úti­loki sam­starf með ein­hverjum flokkum að loknum nýjum kosn­ingum og hvort Sam­fylk­ingin verði í kosn­inga­banda­lagi með nokkrum flokki sagð­ist Logi ekki vera til­bú­inn að tjá sig um það núna.

„Við munum hins vegar ekki fara í stjórn með flokkum sem setja á odd­inn mann­fjand­sam­leg við­horf,“ sagði hann og bætti við að hjarta hans slægi til vinstri. Hann seg­ist frekar vilja starfa í rík­is­stjórn undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur en nokk­urs ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár