Eitt af fullkomnustu líkönum OpenAI braust út úr lokuðu prófunarumhverfi og réðst á vefsíðu annars fyrirtækis – sem endurvakti ótta um að gervigreindarkerfi séu að sleppa úr böndum skapara sinna.
Atvikið átti sér stað í því sem átti að vera „sandkassaprófun“ – lokuðu umhverfi sem notað er til að meta getu öflugasta líkans OpenAI, GPT-5.6 Sol, og arftaka þess sem enn hefur ekki verið gefinn út.
OpenAI framkvæmir slíkar lokaðar prófanir reglulega, en í þetta sinn fór eitthvað úrskeiðis.
Líkönunum var falið að leita að veikleikum í hugbúnaði án nokkurra takmarkana. Þau brutust út á opið internet og réðust á Hugging Face, vefsvæði þar sem forritarar geyma og deila kóða.
„Þetta bendir til þess að við vitum ekki hvernig við getum stjórnað þessum líkönum á áreiðanlegan hátt eða fengið þau til að gera það sem við viljum,“ sagði Jeffrey Ladish, forstjóri Palisade Research, óháðrar stofnunar …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Ég held að ósköpum verði varla afstýrt, spurningin bara hvort við höfum það af sem virkandi samfélög.