Hrollvekjan Makt myrkranna: Drakúla heillar enn

Vampírur fara gjarnan á kreik í kringum hrekkja­vöku þann 31. októ­ber ár hvert. Þær valda ótta og hræðslu en ekki síst vekja þær for­vitni og dulúðin sem umlykur þær heillar.

Bela Lugosi í hlutverki Drakúla úr samnefndri mynd frá árinu 1931.
Bela Lugosi í hlut­verki Drakúla úr sam­nefndri mynd frá árinu 1931.

Hrekkja­vaka er á næsta leiti og hafa Íslend­ingar tekið hátíð­ina upp á sína arma. Nú fara börn í bún­inga og á ýmsum stöðum á land­inu er gengið á milli húsa og spurt um „grikk eða gott“, svo ekki sé talað um þau fjöl­mörgu teiti þar sem full­orðið fólk klæðir sig upp og heldur upp á hátíð­ina. Í til­efni þess er upp­lagt að skoða og líta betur til einnar áhuga­verð­ustu, dul­ar­fyllstu og vin­sæl­ustu goð­sagn­ar­per­són­unnar í heimi hryll­ings­ins: Drakúla. 

Vin­sældir vam­p­íra hafa sjaldan eða aldrei verið meiri. Þættir á borð við Buffy the Vampire Slayer og True Blood hafa ýtt undir menn­ing­ar­fyr­ir­bærið og myndir eins og Interview with the Vampire og Blade. En hvað er það sem heillar svo við vam­p­ír­urnar og hvaðan kemur goð­sögnin?

Atburðir áttu sér „sannarlega“ stað

Frægasta vam­p­íran er án efa fyrr­nefndur Drakúla frá Tran­syl­vaníu en sögu hans þekkja flestir. Hann sprettur úr hug­ar­kimum írska rit­höf­und­ar­ins Bram Stoker en skáldsagan Drakúla kom út árið 1897. Bókin var nýlega gefin út í heild sinni á Íslandi en Gerður Sif Yngv­ars­dóttir tók að sér þýð­ingu sem kom út árið 2013. Makt myrkr­anna er önnur íslensk þýð­ing bók­ar­innar sem mætti bein­línis útlista sem Djöf­ull­inn. Sú bók er tölu­vert eldri en hún kom út á Íslandi árið 1901 í þýð­ingu Valdi­mars Ásmunds­sonar.

Í tíma­rit­inu Fjall­konan árið 1900 var for­máli Stoker þýddur og birtur. Höfundur hélt því sjálfur fram að hér væri um sanna atburði að ræða. „Samkvæmt minni sann­fær­ingu er það ekk­ert efa­mál, að þeir við­burðir, sem hér er lýst, hafi sann­ar­lega átt sér stað, hversu ótrú­legir og óskilj­an­legir sem þeir kunna að sýn­ast, skoð­aðir eftir almennri reynslu,“ lýsir Stoker í text­anum. Hann flétt­aði saman frá­sögnum, blaða­úr­klippum og dag­bók­ar­brotum til þess að gefa frá­sögn­inni trú­verð­ugan blæ.

[quote font="0" align="right“]Samkvæmt minni sann­fær­ingu er það ekk­ert efa­mál, að þeir við­burðir, sem hér er lýst, hafi sann­ar­lega átt sér stað, hversu ótrú­legir og óskilj­an­legir sem þeir kunna að sýn­ast, skoð­aðir eftir almennri reynslu[/quote]

Einkennilegur gestgjafi

Sögu­sviðið er að mestu England og Tran­syl­vanía en aburð­irnir eiga að hafa átt sér stað á síð­asta hluta 19. aldar. Ungur lög­fræð­ingur, Jonathan Harker, fær það verk­efni að afhenda greif­anum í Tran­syl­vaníu afsal á húsi í London. Hann verður þannig gestur Drakúla í kast­ala hans en gerir sér þó fljótt grein fyrir því að hann sé frekar fangi hans. Og þrátt fyrir kurt­eis­is­legt yfir­bragð greifans áttar Harker sig á því að eitt­hvað stór­und­ar­legt sé við hann. Hann er einnig afar ein­kenni­legur í útliti, grannur og beina­ber, og við­koma handa­bands hans er kalt eða eins og að koma við dauðan mann.

„Greifinn tók greini­lega eftir því og hörf­aði. Hann glotti fremur grimmi­lega og sýndi meira af fram­stæðum tönn­unum en hann hafði áður sýnt. Hann sett­ist aftur niður sín megin við eld­stæðið. Við þögðum báðir um stund og þegar ég leit í átt að glugg­anum sá ég fyrstu ljós­glætu kom­andi dags. Yfir öllu var und­ar­leg kyrrð. Þrátt fyrir það varð ég var við marga úlfa spangóla neðar í dalnum. Augu greifans blik­uðu og hann sagði: „Hlýðið á börn næt­ur­innar. Hve tón­list þeirra er töfr­andi!“,“ segir í nýrri þýð­ingu Gerðar Sifjar.

Harker kemst að leynd­ar­máli greifans sem er að hann nær­ist á blóði mann­fólks og ásetur sér þá að drepa greifann. Sú til­raun fer í vaskinn og Drakúla nær að flýja út á sjó þar sem för­inni er haldið til London. Harker verður eftir í kast­al­anum, veikur og þrótt­lít­ill. Drakúla nær til London þar sem ýmsir ein­kenni­legir atburðir eiga sér stað sem við­koma unn­ustu Harker, Minu Murray og fleiri sögu­per­sónum. Harker kemst til baka á end­anum en í milli­tíð­inni er greif­inn búinn að valda miklum usla, morðum og sér­kenni­legum atburðum. Baráttan við greifann endar í Tran­syl­vaníu eftir mikið blóð­bað, þar sem Harker afhöfðar hina illu vam­p­íru og ræður þannig nið­ur­lögum hennar.

Ævi og störf rithöfundar

Bram Stoker var fæddur í Dublin á Írlandi árið 1847. Hann starf­aði sem blaða­maður, rit­höf­undur og aðstoðar- og umboðs­maður þekkts leik­ara á þessum tíma, Henry Irving. Blaða­mennskan átti eftir að nýt­ast honum vel við skrif á Drakúla, þar sem frá­sögnin er meðal ann­ars sett upp á því frá­sagn­ar­formi. Hann ferð­að­ist mikið um ævina en þó aldrei til hinnar dul­ar­fullu Austur-Evrópu þar sem sögu­svið greifans af Tran­syl­vaníu átti að vera.

Hann var með B.A.- gráðu í stærð­fræði og var alla tíð fram­farasinni. Hann trúði á fram­farir í vís­indum og gaf lítið fyrir yfir­skil­vit­leg fyr­ir­bæri sem hlýtur að telj­ast heldur kald­hæðið miðað við skrif hans. Þannig að það má með sanni segja að ímynd­un­ar­afl hans og frá­sagn­ar­stíll hafi ekki verið í sam­ræmi við heim­speki hans, sem gerir hann auð­vitað ekki að verri rit­höf­undi fyrir vikið.

Fornt sagnaminni

Stoker sótti í gam­alt rúm­enskt sagna­minni um fólk sem drakk blóð úr öðrum. Hug­mynd­ina um Drakúla hefur hann sótt til Vlads stjak­setj­ara (e. Vlad the Impaler) eða Vlad Drakúla. Sá náungi var prins í Wallachia á 15. öld. Hann var annar sonur Vlads II sem réði ríkjum í Wallachia þar sem nú er Rúmenía. Blóðug stríð geisuðu á svæð­inu milli Tyrkja og Ungverja og lenti Vlad stjak­setj­ari mitt á milli. Hann varð fljótt alræmdur fyrir grimmd og gengu sögur út um alla Evrópu um harð­lyndi hans og ómann­eskju­legar aðferðir. Hann er sagður hafa stjak­sett fólk í hrönnum en þaðan kemur við­ur­nefni hans.

Vinsældir á hvíta tjaldinu

Ekki verður annað sagt en að saga Drakúla sé vin­sæl til kvik­mynda­gerðar. Sagan hefur verið kvik­mynduð marg­sinnis og sett á svið.

Fyrst ber að nefna þöglu kvik­mynd­ina Nos­feratu eftir F. W. Murnau frá 1922. Nöfnum var breytt í mynd­inni til að kom­ast fram­hjá höf­unda­rétti en ekkja Stokers, Florence Stoker, fór engu að síður í mál við fram­leið­and­ann og vann.

Þó er lík­leg­ast fræg­asta útgáfa sög­unnar kvik­myndin Dracula frá árinu 1931. Bela Lugosi fór þar á kostum og er sú mynd löngu orðin költ. Önnur fræg útfærsla er Bram Stoker's Dracula í leik­stjórn Francis Ford Coppola frá árinu 1992. Þar leikur Gary Oldman hinn dul­ar­fulla Drakúla, og með honum í leik­ara­lið­inu eru Wynona Ryder, Anthony Hopkins og Keanu Reeves. Myndin hlaut þrjú Ósk­arsverð­laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár