50 tillögur til að fækka sjálfsvígum

Stjórn­völd kynntu nýlega aðgerðar­áætlun sem á að leiða til umbóta í geðheil­brigðis­þjónustu. 25 milljónir króna eru eyrna­merktar í áætlunina.

Ríflega tvöfalt fleiri falla fyrir eigin hendi á Íslandi en láta lífið í umferðinni og sjálfsvíg eru lang­algengasta dánar­orsök ungra karlmanna. Þrátt fyrir það hefur lengi staðið á fjár­veitingum til forvarna­verkefna og geðheil­brigðis­mála almennt.

Svandís Svavars­dóttir heilbrigðis­ráðherra tilkynnti nýlega að hún hefði samþykkt allar 50 tillögur starfs­hóps sem vann aðgerðar­áætlun til að fækka sjálfs­vígum á Íslandi. Sem komið er hefur ráðherra aðeins eyrna­merkt þessu verkefni 25 milljónir króna, eða 500 þúsund á hverja tillögu. Kostnaður við að innleiða allar þessar metnaðar­fullu tilraunir myndi þó frekar hlaupa á milljörðum og ekki er ljóst hvenær eða hvernig tillögurnar verða fjár­magnaðar.

Sjö skipuðu hópinn: Tveir verkefna­stjórar Land­læknis­embættisins, fagstjóri sálfræði­þjónustu hjá Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins, framkvæmda­stjóri Geðhjálpar, yfir­læknir BUGL, yfir­læknir öryggis- og réttar­geðþjónustu Land­spítala og félags­þjónustu­fulltrúi frá Sambandi íslenskra sveitar­félaga.

Tillögur þeirra, alls 50 talsins eins og áður segir, eiga að stuðla að fækkun sjálfs­víga í mjög víðum skilningi. Þær taka á öllu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár