Stuðningur við ríkisstjórnina dalar

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missir 3,5 pró­senta fylgi en Vinstri græn bæta við sig 3,4 pró­sentu­stigum.

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur dreg­ist saman um 3,5 pró­sentu­stig milli mæl­inga í nýrri könnun MMR. Flokk­ur­inn mælist nú með 22,3 pró­sentu stuðn­ing en var síð­ast með 25,8 pró­sent. Vinstri græn mæld­ust með 18,4 pró­senta fylgi og bæta við sig 3,4 pró­sentu­stigum milli mæl­inga. Sam­fylk­ingin mælist nú með 14,9 pró­senta fylgi og bætir við sig einu pró­sentu­stigi milli mæl­inga.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina dalar, nú segj­ast 60,6 pró­sent styðja rík­is­stjórn­ina, 64,7 pró­sent í síð­ustu mæl­ingu í jan­úar og 66, pró­sent í des­em­ber 2017.

Fylgi Pírata mæld­ist nú 12,9 pró­sent og mæld­ist 12,2 pró­sent síð­ast. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fær nú 11,2 pró­sent sem er nákvæm­lega það sama og síð­ast. Fylgi Mið­flokks­ins er nú 7,7 pró­sent en var síð­ast 6,9 pró­sent. Fylgi Við­reisnar fer niður um 0,2 pró­sent og er nú 6,0. Fylgi Flokks fólks­ins mæld­ist nú 4,2 pró­sent en var 6,1 pró­sent í síð­ustu könnun. Fylgi ann­arra flokka mæld­ist 2,4 pró­sent sam­an­lagt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár