Er árangur ríkisstjórnarinnar sögulega lélegur?

Kjarninn skoð­aði fjölda þing­mála frá rík­is­stjórnum 20 ár aftur í tím­ann í til­efni orða­skipta for­sæt­is­ráð­herra og þing­manns Bjartrar fram­tíðar.

Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, sagði á þingi á mánu­dag að henni þætti árangur rík­is­stjórn­ar­innar mjög lélegur þegar kæmi að fram­lagn­ingu þing­mála. Aðeins hefðu verið lögð fram 45 frum­vörp og 11 þings­á­lykt­un­ar­til­lögur, sem væru slá­andi tölur. „Ég hlýt að spyrja hvort ráð­herrar í þess­ari rík­is­stjórn séu starfi sínu vaxnir og hvort hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra sem á að stýra rík­is­stjórn­inni sé nógu góður verk­stjóri.“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra svar­aði því til að töl­urnar ættu nú ekki að vera slá­andi „ef hátt­virtur þing­maður hefur fylgst með sam­bæri­legum tölum und­an­farin ár, ef ekki ára­tugi.“ Hann sagði jafn­framt að rík­is­stjórnin ein­setti sér að vinna hlut­ina vel og gera færri en betri breyt­ingar. Hann sagði rík­is­stjórn­ina kynna „lista yfir öll þau mál sem við sjáum fyrir okkur að gætu komið fram“ og átti þar við þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar. Slík skrá er alltaf lögð fram yfir mál sem rík­is­stjórn hyggst leggja fram á hverju þingi. Á þing­mála­skránni fyrir þetta þing eru 184 mál.

Bryn­hildur spurði þá til hvers þing­mála­skráin væri og hvort hún væri óska­listi yfir mál sem gaman væri að leggja fram ef hugs­an­lega væri tími til þess. Hún sagði árang­ur­inn mjög lélegan. „Ég held að ég fari rétt með að þetta er sögu­lega lélegt,“ sagði Bryn­hildur í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í þing­inu.

Hvernig er samanburðurinn?

Bryn­hildur er ekki sú fyrsta til þess að vekja athygli á því að fá mál hafi komið inn til Alþingis. Eins og Kjarninn greindi frá í síð­asta mán­uði höfðu bæði stjórn­ar­and­stæð­ingar og stjórn­ar­liðar vakið máls á því að málin væru fá. Þetta var í lok nóv­em­ber og þá hafði stjórnin aðeins lagt fram 25 frum­vörp. Þar af voru 15 end­ur­flutt, þrjú voru EES frum­vörp og 2 voru vegna alþjóð­legra sátt­mála.

En í til­efni þess­ara orða­skipta Bryn­hildar og Sig­mundar ákvað Kjarninn að kanna málið á ný. Er árangur rík­is­stjórn­ar­innar sögu­lega lélegur eða eru töl­urnar ekk­ert slá­andi ef litið er til und­an­far­inna ára eða ára­tuga? 

Þegar litið er til síð­ustu 20 ára sést að aðeins tvisvar hefur rík­is­stjórn lagt fram jafnfá eða færri frum­vörp á þessum tíma árs, það er 9. des­em­ber. Rík­is­stjórnin hafði lagt fram 45 mál þann 9. des­em­ber árið 2003, jafn­mörg og hafa verið lögð fram í ár, og hru­nárið 2008 voru frum­vörpin á þessum tíma 44 tals­ins. Þegar þessi sam­an­burður er gerður verður þó að hafa í huga að allt fram til haustins 2012 var Alþingi ekki sett fyrr en í byrjun októ­ber, en frá 2012 hefur það verið sett snemma í sept­em­ber.

Meðaltal stjórn­ar­frum­varpa frá upp­hafi þings og til 9. des­em­ber hvert ár er 58,85 frum­vörp. Rík­is­stjórnin er því vel undir með­al­tali síð­ustu 20 ára.

Þegar fjöldi þings­á­lykt­ana­til­lagna frá rík­is­stjórnum til og með 9. des­em­ber hvert ár und­an­farin 20 ár er skoð­aður kemur aftur á móti í ljós að þings­á­lykt­anir frá rík­is­stjórnum hafa oft­ast verið færri á þessum tíma árs. Með­al­talið fyrir fjölda þings­á­lykt­ana frá rík­is­stjórn síð­ustu 20 þing er 6,25 til­lögur, en í ár hefur rík­is­stjórnin lagt fram 11.

Þegar frum­vörp og þings­á­lykt­un­ar­til­lögur rík­is­stjórna eru tekin saman kemur í ljós að fjórum sinnum á síð­ustu 20 árum hefur rík­is­stjórn lagt fram færri mál til og með 9. des­em­ber. Árið 2008 voru 49 mál lögð fram á þessum tíma, 50 árið 2004 og 51 árið 2003. 53 mál höfðu verið lögð fram af rík­is­stjórn árið 2001. Í ár hafa verið lögð fram 56 mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár