Fjölmiðlavíti til varnaðar

Óhætt er að segja að Se og Hør málið í Danmörku hafi varpað kast­ljós­inu á verk­lag fjöl­miðla í land­inu. Borgþór Arn­gríms­son kynnti sér þetta ótrú­lega mál.

Dómar sem féllu í hinu svo­nefnda Se og Hør máli í Danmörku fyrir nokkrum dögum hafa vakið mikla athygli. Dómarnir eiga sér ekki for­dæmi á Norð­ur­löndum og munu hafa mikil áhrif á störf blaða­manna á kom­andi árum. Þetta er álit danskra fjöl­miðla­sér­fræð­inga. Sjö ein­stak­lingar voru dæmdir til refs­ingar og útgef­andi Se og Hør, fyr­ir­tækið Aller, var sektað um jafn­virði 160 millj­óna íslenskra króna.

Se og Hør skandall­inn, einsog Danir kalla málið, byrj­aði í apríl 2014 þegar Ken B. Rasmus­sen, fyrr­ver­andi blaða­maður á viku­blað­inu Se og Hør sendi frá sér bók­ina ”Livet, det for­band­ede” þar sem lýst var líf­inu á viku­blað­inu Set & Hört. Í bók­inni, sem höf­undur kall­aði skáld­sögu, er lýst vinnu­brögðum á sam­nefndu slúð­ur­blaði, sem engum gat dulist að væri í raun Se og Hör. Dag­blaðið BT hafði nokkru áður en bókin kom út fjallað nokkuð um inni­hald hennar, sem sagt var „eld­fimt”. Lög­reglan hafði veður af inni­hald­inu en hafð­ist ekki að fyrr en bókin var komin út.

Upplýsingasölumaðurinn

Það eld­fima efni sem BT hafði greint frá reynd­ist vera það að starfs­maður dansks greiðslu­korta­fyr­ir­tækis hafði selt blaða­mönnum Set og Hørt (Se og Hør) upp­lýs­ingar um greiðslu­korta­notkun margra þekktra Dana á árunum 2008 – 2011, þar á meðal sona Mar­grétar Þór­hildar drottn­ingar, Friðriks og Jóakims. Starfs­mað­ur­inn (sem kall­aður var tys-tys kilden, suss suss heim­ildin) var á þessum árum starfs­maður greiðslu­þjón­ustu­fyr­ir­tækis og hafði aðgang að upp­lýs­ing­unum sem voru trún­að­ar­mál. Fyrst eftir útkomu bók­ar­innar vildi lög­reglan ekki stað­festa að suss-suss heim­ildin væri í raun til en stuttu eftir að bókin kom út gaf maður að nafni Peter Bo Hen­rik­sen sig fram hjá lög­reglu og sagð­ist vera sá sem selt hefði Se og Hør trún­að­ar­upp­lýs­ing­arnar. Hann væri suss-suss heim­ildin.

Daginn sem bókin kom út hóf Aller fyr­ir­tækið, útgef­andi Se og Hør, inn­an­húss­rann­sókn hjá blað­inu, nokkrir starfs­menn voru sendir í ótíma­bundið leyfi. Danskir fjöl­miðlar köll­uðu þetta „Heim­send­ing­ar­þjón­ustu Aller”. Útgáfa Se og Hør stöðv­að­ist jafn­framt um tíma. Lög­reglan lagði einnig hald á tölvur, síma og margs konar gögn á skrif­stofum Se og Hør. Úgáfu­fyr­ir­tækið vildi ekki una því en Hæsti­réttur Dan­merkur heim­il­aði notkun allra gagn­anna.

Tímafrek rannsókn

Rann­sóknin á Se og Hør reynd­ist bæði flókin og tíma­frek. Gögn sem lög­reglan lagði hald á hjá blað­inu leiddu í ljós að suss-suss heim­ildin var ekki eini mað­ur­inn sem fengið hafði borgað fyrir margs konar upp­lýs­ingar. En það er önnur saga.

Í jan­úar í fyrra til­kynnti lög­reglan að rann­sókn Se og Hør máls­ins lyki á fyrri hluta þessa árs. Tólf ein­stak­lingar voru á lista grun­aðra, auk Aller útgáfu­fyr­ir­tæk­is­ins.

Átta voru ákærðir

6. júlí síð­ast­lið­inn voru ákær­urnar birtar Átta ein­stak­lingar voru ákærðir, þar á meðal Henrik Qvortrup, sem var rit­stjóri Se og Hør á árunum 2002 -2008, Kim Henn­ingsen sem var rit­stjóri frá 2009 – 2012, Ken B. Rasmus­sen, sem kom upp um málið með bók sinni og síð­ast en ekki síst suss-suss heim­ildin Peter Bo Hen­rik­sen.

Sjö voru dæmdir

Dómar í und­ir­rétti (lægsta dóm­stig af þrem) voru kveðnir upp fyrir þrem dögum, 24. nóv­em­ber. Peter Bo Hen­rik­sen fékk þyngsta dóm­inn 18 mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi og hald lagt á 365 þús­und krónur (tæpar 6 millj­ónir íslenskar). Henrik Qvortrup fékk 15 mán­aða fang­elsi, þar af þrír mán­uðir óskil­orðs­bundnir og auk þess 200 klukku­stunda sam­fé­lags­þjón­ustu. Kim Henn­ingsen fékk 12 mán­aða fang­elsi, skil­orðs­bundið og 200 klukku­stunda sam­fé­lags­þjón­ustu. Ken B. Rasmus­sen, höf­undur bók­ar­innar ”Livet, det for­band­ede” fékk fjög­urra mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi og 100 klukku­stunda sam­fé­lags­þjón­ustu. Aðrir fengu væg­ari dóma og einn, Per Ingdal útgáfu­stjóri, var sýkn­aður af ákæru. Aller fyr­ir­tækið fékk 10 milljón króna sekt (160 millj­ónir íslenskar). Peter Bo Hen­rik­sen, suss-suss heim­ildin, til­kynnti þegar dóm­ur­inn lá fyrir að hann myndi áfrýja, aðrir tóku sér umhugs­un­ar­frest.

Athygli danskra fjöl­miðla hefur einkum beinst að Henrik Qvortrup, sem var rit­stjóri Se og Hør þegar samið var við suss-suss heim­ild­ina. Henrik Qvortrup er einn þekkt­asti frétta­haukur lands­ins. Hann var, þegar bókin kom út, helsti stjórn­mála­skýr­andi sjón­varps­stöðv­ar­innar TV2 en hætti sam­stundis. Hann hefur síðan verið blaða­maður á frí­blað­inu MX, Metroex­press, og einnig stjórnað þáttum á útvarps­stöð­inni Radio24syv. Á árunum 1998 – 2000 var Henrik Qvortrup aðstoð­ar­maður (spindoktor) Anders Fogh Rasmus­sen, sem þá var for­maður Venstre.

Fjölmargar spurningar vakna

Dómarnir, einsog málið allt, hafa vakið mikla athygli í Danmörku og einnig í nágranna­lönd­unum. Danskir fjöl­miðlar kalla þetta mesta og sögu­leg­asta fjöl­miðla­hneyksli í sögu lands­ins.

Ástæður þess að málið hefur vakið svo mikla athygli eru nokkrar. Se og Hør er mjög þekkt blað sem mjög margir lesa (þótt margir þyk­ist aldrei fletta því). Að blaðið skuli hafa gengið jafn langt og raun ber vitni til að ná í „upp­slátt­ar­fyr­ir­sagnir” hefur líka komið mörgum á óvart. Fjöl­miðla­sér­fræð­ingar vilja ekki kalla það fréttir að til­teknir þjóð­þekktir ein­stak­lingar séu, eða hafi verið, á sól­ar­ströndum Spánar, slíkt flokk­ist undir slúður. Engir þjóð­ar­hags­munir séu í húfi þótt ógiftur þing­maður og ógift sjón­varps­frétta­þula hafi sést saman á götu í Róm. Það hefur líka vakið athygli að fyrst blaðið kaus að borga, í þessu til­viki suss-suss heim­ild­inni skyldi rit­stjórnin ekki sýna meiri var­kárni í sam­skiptum og reyna þannig að vernda heim­ilda­mann­inn.

Fjöl­miðla­sér­fræð­ingar undr­ast einnig að blaða­menn „óbreyttir hásetar” eins og það er orðað skuli dregnir til ábyrgðar og dæmdir fyrir það eitt að hlýða fyr­ir­skip­unum yfir­manna. Margir fjöl­miðla­sér­fræð­ingar sem danskir fjöl­miðlar hafa rætt við und­an­farna daga telja að dóm­arnir í Se og Hør mál­inu muni verða til þess að blaða­menn verði treg­ari til að takast á við og rann­saka erfið mál ef þeir eigi á hættu að vera gerðir ábyrgir fyrir því sem mið­ill­inn birtir. Sér­fræð­ing­arnir eru líka sam­mála um að dóm­arnir nú sýni að miðl­arnir geti ekki gert hvað sem er til að krækja í upp­slátt­ar­fyr­ir­sagnir, sem freista les­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár