Fatafjallið

Tíu þús­und tonn af fötum fara í end­ur­vinnslu á hverjum degi. Borgþór Arn­gríms­son kynnti sér fata­fjallið í fata­skápum fólks.

Eru allir fata­skápar á heim­il­inu troð­fullir? Er upp undir helm­ingur þess sem þar liggur á hillum, í skúffum og hangir á slám, aldrei not­aður? Eru þar margar flíkur sem keyptar voru bara si svona og fóru beina leið í skáp­inn þegar heim var komið og hafa aldrei verið not­aðar. Veltirðu stundum fyrir þér hvers vegna þú keyptir þessa flík, því að þegar þú fórst út úr búð­inni með plast­pok­ann (þú átt líka 100 slíka) viss­irðu að þú myndir aldrei nota hana?

Mjög margir svara þessum spurn­ingum ját­andi. Og það svar er ekki byggt á ein­hvers­konar hug­lægu mati heldur stað­reyndum. Í könnun sem bresku umhverf­is­sam­tökin WRAP gerðu, árið 2016, kom í ljós að meira en þriðj­ungur allra flíka í fata­skáp­unum hafði ekki verið not­aður í heilt ár og margar reyndar aldrei. Þær flíkur höfðu ein­fald­lega verið settar inn í skáp þegar komið var með þær heim úr búð­inni og síðan ekki sög­una meir. Ýttust smám saman aftar og aftar í skáp­inn og lágu svo þar. Í könn­un­inni kom líka fram að margir höfðu algjör­lega gleymt mörgu því sem í skáp­unum var, rám­aði ekki einu sinni í að hafa keypt flík­urnar.

Nýtni var dyggð

Áður fyrr var nýtni talin dyggð. Kom til af nauð­syn. Þar sem lítið er til skiptir miklu að fara vel með, Það gildir ekki síður um fatnað en annað. Sjálf­sagt þótti að bæta götóttar buxur, setja úln­liðs­bætur á jakka og peysur, staga í sokka. Þegar barn bætt­ist í fjöl­skyld­una komu ætt­ingjar með notuð föt, dúnn og fiður úr gömlum sængum notað í nýjar sængur og svona mætti lengi telja. Kart­öfl­urnar og kjötið sem afgangs var eftir kvöld­mat­inn var geymt til morg­uns. Allt var ein­hvers virði. Það átti ekki að henda verð­mætum. Orðið neyslu­þjóð­fé­lag var ekki til. Ekki heldur orðið mat­ar­sóun.

[adspot]

Eftir síðari heimsstyrjöld breyttist margt

Eftir lok síð­ari heims­styrj­aldar urðu miklar breyt­ingar í hinum vest­ræna heimi, ekki hvað síst á Íslandi. Efna­hagur fór almennt batn­andi, vél­væð­ing í fata­iðn­aði jókst, það þýddi lægra verð. Vöru­úr­valið jókst sömu­leiðis, „allt frá hatti oní skó“ hljóm­aði aug­lýs­inga­slag­orð þekktrar herra­fata­versl­unar í Reykja­vík. Póst­versl­unin Hagkaup tók til starfa í Reykja­vík, nýr hag­kvæmur versl­un­ar­máti sagði í aug­lýs­ingum. Þar var hægt að kaupa fatnað, kventöskur, sport­vörur og margt fleira.

Þver­hand­ar­þykkum vöru­listum (ekki síst Quelle) var flett heilu kvöldin við íslensku eld­hús­borðin, spáð og spek­úlerað. Svo var send skrif­leg pöntun og eftir það tók við óþreyju­full bið eftir að pakk­inn kæmi, með póst­inum. Ferða­lögum Íslend­inga til útlanda fjölg­aði og gjarna komið heim með níð­þungar ferða­töskur, von­andi hindr­un­ar­laust fram­hjá toll­vörð­unum. Þótt hér hafi Ísland verið tekið sem dæmi gilti það sama um mörg önnur lönd, burt­séð kannski frá þungu tösk­unum og toll­vörð­unum.

Lægra verð, auknar tískukröfur

Þetta sem hér hefur verið nefnt hefur allt orðið til þess að fata­eign almenn­ings hefur stór­auk­ist. Þótt klæða­skáp­arnir hafi stækkað hefur fata­haug­ur­inn stækkað enn hraðar.

Fata­fram­leið­endur hafa ekki látið sitt eftir liggja. Þeir koma í sífellu með nýja og nýja „fata­línu“. Aug­lýs­ingar sem leggja áherslu á það nýjasta sem „þú verður að eign­ast“ því ann­ars ertu bara „púkó“ og hver vill það? Aukin vél­væð­ing og fram­leiðsla í löndum þar sem laun eru lægri hafa orðið til þess að fatn­aður verður sífellt ódýr­ari.

Kaupendahópurinn stækkar og stækkar

Fata­fram­leiðslan eykst sífellt og hefur að magni til tvö­fald­ast frá síð­ustu alda­mótum. Hluti þess fer nú í end­ur­vinnslu en hluti þess liggur í fata­skáp­unum. Sér­fræð­ingar telja að á næstu árum stækki sá hópur sem­kaupir föt í stórum stíl umtals­vert. Þar veldur miklu bættur efna­hagur fjöl­mennra þjóða eins og Kínverja og Indverja. Umhverf­is­sam­tök hafa lýst miklum áhyggjum vegna þeirra áhrifa sem sífellt meiri fata­fram­leiðsla hefur á umhverfið (til að fram­leiða einn stutt­erma bol þarf til dæmis 1.500 lítra af vatni).

Hvað með endurnýtingu?

Margar evr­ópskar og alþjóð­legar hjálp­ar­stofn­anir taka á móti fatn­aði, sem þær ýmist selja, og nota and­virðið til góðra verka, eða senda til fátækra, ekki síst í Afríku. Sum Afr­íku­lönd hafa reyndar að und­an­förnu afþakkað fata­send­ingar, þurfa ekki að þeim að halda. En það er líka hægt að end­ur­nýta fatn­að­inn með öðrum hætti, semsé að sauma nýtt úr því gamla. En efnin hafa breyst, þau eru ekki jafn vönduð og þau voru áður, það er ein afleið­ing lægra verðs. Galla­bux­urnar sem áður fyrr ent­ust kannski árum saman gera það ekki lengur. Efnið er lélegra, tvinn­inn líka. Gæðin eru ein­fald­lega ekki þau sömu og áður, fatn­að­ur­inn er ekki gerður til að end­ast árum saman.

Tíu þúsund tonn á dag

Í Evrópu fara um tíu þús­und tonn á dag um end­ur­nýt­ing­ar­stöðvar. Eitt stærsta fyr­ir­tækið á því sviði er hol­lenska fyr­ir­tækið Episod sem hefur aðsetur í nágrenni Amster­dam. Episode tekur á móti fatn­aði frá mörgum Evr­ópu­löndum. Starfs­fólkið flokkar fatn­að­inn, sumt er selt í fjöl­mörgum versl­unum fyr­ir­tæk­is­ins í Hollandi, Bret­landi, Frakk­landi, Danmörku og víðar, annað er tætt í sundur í sér­stökum vélum og selt til fata­fram­leið­enda sem nota efnið svo í nýjar flíkur. Í Hollandi eru fjöl­mörg end­ur­nýt­ingar- og end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæki, mis­stór og sum sér­hæfð. Danskir frétta­menn sem fóru til Hollands gagn­gert til að kynna sér end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæki voru orð­lausir yfir því sem þeir sáu. End­ur­nýt­ingin og end­ur­vinnslan er orð­inn stór atvinnu­vegur.

Hver Dani kaupir árlega 16 kíló af fötum

Í nýlegri nor­rænni skýrslu (Ísland og Noregur voru ekki með) kemur fram að Danir kaupa fleiri flíkur en Svíar og Finnar. Hver Dani kaupir árlega 16 kíló af fötum, fata­kaup Dana eru því sam­tals um 89 þús­und tonn, á hverju einsta ári. Það vakti sér­staka athygli skýrslu­höf­unda að stór hópur fólks á aldr­inum 18 til 29 ára hafði margoft á árinu sem rann­sóknin tók til keypt föt af því að ung­mennin töldu sig ekki eiga neitt hreint til að fara í. Margir úr þessum hópi sögð­ust oft kaupa föt til þess að nota einu sinni. Helm­ingur þess­ara 89 þús­und tonna er hvorki end­ur­nýttur né end­urunn­inn og lendir því, fyrir utan það sem bæt­ist í skápana, í tunn­unni og endar svo í fjar­varma­kyndi­stöðvum.

Umhverf­is­sér­fræð­ingar segja að fata­iðn­að­ur­inn sé næst­mesti meng­un­valdur í heimi, aðeins olíu­iðn­að­ur­inn mengi meira. Það jákvæða sé hins vegar að nú sé auk­inn áhugi á end­ur­nýt­ingu og end­ur­vinnslu, það sé ekki lengur hall­æris­legt að ganga í fötum sem ein­hver annar hefur átt og notað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár