Leyniskjöl frá Wikileaks: Google afhenti stjórnvöldum tölvupósta starfsmanna

Google afhenti banda­rískum stjórn­völdum aðgang að tölvu­póstum og öðrum gögnum þriggja starfs­manna Wikileaks í tengslum við rann­sókn á Wikileaks og stofn­anda þess, Julian Assange. Blaða­menn­irnir sem um ræðir eru Sarah Harrison, Joseph Farrel og Kristinn Hrafns­son.

Þetta kemur fram í gögnum sem Wikileaks hefur undir höndum og birt­ast nú í Kjarn­anum einum íslenskra fjöl­miðla, ásamt völdum erlendum fjöl­miðlum.

Samkvæmt skjöl­unum sem birt­ast nú, sem eru meðal ann­ars dóms­úr­skurðir um leit­ar­heim­ildir, bein­ist málið að „stofn­endum, stjórn­endum og eig­endum Wikileaks.“ Leit­ar­heim­ild­irnar eru meðal ann­ars byggðar á grun um njósnir, sam­særi og þjófn­aði á eigum banda­rískra stjórn­valda, og telur Wikileaks að málið bein­ist að Julian Assange en mögu­lega einnig gegn fleiri starfs­mönnum Wikileaks.

Lestu skjölin hér:

Leit­ar­heim­ild í tölvu­pósti Kristins Hrafns­sonar

Leit­ar­heim­ild í tölvu­pósti Sarah Harrison

Leit­ar­heim­ild í tölvu­pósti Joseph Farrel

Bréf lög­manna Wikileaks til Google

Gríðarlega miklar upplýsingar látnar af hendi

Eftir dóms­úr­skurð lét Google banda­rísku alrík­is­lög­regl­unni, FBI, í té öll gögn tengd reikn­ingum blaða­mann­anna þriggja hjá Google. Á meðal gagn­anna eru allir tölvu­póstar þeirra og allt sem þeim teng­ist, þar með talið allir eyddir póstar og drög að póstum sem og upp­lýs­ingar um hvenær og hvert póstar voru sendir og hversu stórir og langir þeir voru.

Þá fengu stjórn­völd fullt nafn, heim­il­is­fang, síma­númer og ann­ars konar auð­kenni sem tengd­ust reikn­ingum þeirra, gögn um það hversu oft og lengi þau not­uðu reikn­ing­ana, IP-tölur sem not­aðar voru til að kom­ast inn á þá og banka- og kredit­korta­upp­lýs­ingar. Einnig var veittur aðgangur að daga­tölum, myndum og skjölum sem tengd­ust Google-reikn­ingum.

Fengu ekkert að vita í tæp þrjú ár


[caption id="attachment_18122" align="alignnone" width="442"] Kristinn Hrafns­son og Julian Assange.[/caption]

Google greindi blaða­mönn­unum frá aðgerð­unum gegn þeim þann 23. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Samkvæmt skjöl­unum voru leit­ar­heim­ild­irnar þó sam­þykktar tæpum þremur árum fyrr, eða þann 22. mars 2012, af John F. Anderson, dóm­ara í Alex­andriu í Virginíu-fylki í Banda­ríkj­unum. Anderson þessi gaf út hand­töku­skipun á hendur upp­ljóstr­ar­anum Edward Snowden á sínum tíma. Google þurfti sam­kvæmt úrskurð­inum að afhenda lög­reglu gögnin um blaða­menn­ina fyrir 5. apríl sama ár.

Fyr­ir­tækið seg­ist í bréfum sem send voru til blaða­mann­anna þriggja þann 23. des­em­ber að sam­kvæmt úrskurð­inum hafi það ekki mátt greina þeim frá því að aðgangur var veittur að öllum gögnum þeirra þegar það átti sér stað. Nú hafi hins vegar annar úrskurður geng­inn þar sem fyr­ir­tæk­inu hafi verið heim­ilað að segja frá mál­inu. Þó virð­ist ekki vera ljóst hvenær nákvæm­lega fyr­ir­tækið mátti segja þeim frá mál­inu.

Krefjast upplýsinga um málið


Lögmenn Wikileaks og blaða­mann­anna þriggja hafa sent Google bréf þar sem þess er kraf­ist að þre­menn­ing­arnir fái allar upp­lýs­ingar um málið, hvað banda­rísk stjórn­völd fengu nákvæm­lega frá Google og hvers vegna þeim var ekki greint frá mál­inu fyrr. Einnig hvort ein­hverjar aðrar kröfur hafi komið fram frá stjórn­völdum um að veita upp­lýs­ingar um blaða­menn­ina.

Þá er þess kraf­ist að Google upp­lýsi um það hvort fyr­ir­tækið hafi gert ein­hverjar til­raunir til að hnekkja dóms­úr­skurð­inum til þess að þurfa ekki að veita aðgang að gögn­unum eða að mega láta blaða­menn­ina vita af mál­inu.

[caption id="attachment_18124" align="alignnone" width="601"] Sarah Harrison.[/caption]

Bent er á það í bréf­inu að sam­fé­lags­mið­ill­inn Twitter hafi barist fyrir því að upp­lýsa fólk tengt Wikileaks um það þegar banda­rísk stjórn­völd vildu aðgang að reikn­ingum þeirra á miðl­inum árið 2011. Julian Assange, stofn­andi Wikileaks, hafi komið þessum ábend­ingum á fram­færi við for­svars­menn Google og óskað eftir því að fyr­ir­tækið gerði slíkt hið sama. Það hafi því komið á óvart að fyr­ir­tækið hafi ekki brugð­ist við þessu.

Wikileaks segir banda­rísk stjórn­völd beina spjótum sínum að blaða­mönnum með þessum aðgerðum og lík­lega hafi útgáfa aldrei verið rann­sökuð með svo umfangs­miklum hætti og verið hefur með Wikileaks. Saka­mála­rann­sókn hefur verið í gangi í meira en fjögur ár. Rann­sókn­inni á Wikileaks hefur verið mót­mælt af blaða­mönnum og mann­rétt­inda­sam­tökum. Í júní síð­ast­liðnum hvöttu rúm­lega fimm­tíu sam­tök til þess að málið yrði látið niður falla, enda gæti áfram­hald­andi rann­sókn á Wikileaks gert frétta­öflun að glæp og gert alla blaða­menn og rit­stjóra ber­skjald­aða fyrir mál­sóknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár