Ráðuneyti breytir ekki tollum vegna tæknilegs eggjaskorts

Tækni­legur eggja­skortur er á Íslandi, en fyr­ir­tæki eiga í miklum vand­ræðum með að þjón­usta við­skipta­vini þegar kemur að eggjum. Bændur eru and­vígir því að fella niður inn­flutn­ings­tolla tíma­bundið og atvinnu­vega­ráðu­neytið hefur tekið undir þau sjón­ar­mið.

Skortur
Skortur Eggja­bændur hafa ekki haft undan að fram­leiða egg und­an­farin miss­eri. Mynd: EPA

Atvinnu­vega­ráðu­neytið hefur hafnað beiðni Félags atvinnu­rek­enda (FA) um að fella niður tíma­bundið tolla vegna inn­flutn­ings á eggjum til Íslands. Tækni­legur eggja­skortur er hér á landi þótt neyt­endur verði lítið varir við skort­inn. Fyr­ir­tæki hafa hins vegar neyðst til þess að flytja inn egg frá Danmörku til þess að anna eft­ir­spurn, með til­heyr­andi kostn­aði. Vara­for­maður deildar eggja­bænda innan Bænda­sam­taka Íslands, sem eru hags­muna­sam­tök þeirra sem stunda eggja­fram­leiðslu í atvinnu­skyni, von­ast til þess að fram­leiðsla íslenskra eggja verði meiri fyrir lok sum­ars og slái þar með á skort­inn.

Tollar leiða til hækkana

„Það er deg­inum ljós­ara að inn­lend fram­leiðsla á eggjum hefur ekki annað eft­ir­spurn, langt því frá. Neyt­endur hafa kannski orðið minna varir við þetta en fyr­ir­tækin, því inn­lendir fram­leið­endur reyna að beina fram­leiðsl­unni í versl­anir,“ segir Ólafur Þ. Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, sem gagn­rýnir ákvörðun ráð­herra um að hafna tíma­bund­inni nið­ur­fell­ingu á eggja­tollum. Tollar valda verð­hækk­unum, að sögn …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SGIG
    Sigurlaug Guðrún I Gísladóttir skrifaði
    Held að það sé alveg óþarfi að flytja inn egg, þetta kemur hjá bændum fljótlega. Heildsölubirgjar, sem er reyndar rangnefni, því miðað við verðin hjá þeim, eru alvöru heildsölur ekki til lengur. Því þessar heildsölur eru oft með hærri verð en Bónus, Krónan , Prís og hvað þetta heitir allt saman.
    Þetta eru hins vegar þjónustuaðilar sem safna saman vörum og senda verslunum.
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Er lítið fyrir blessuð eggin svo mer er sama með það hvort þau eru til eða ekki
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Ég hef fengið ýmislegt að smakka þegar ég vari Kaupmannahöfn á meðan hún mútta mín var að læra þar bæði hárgreiðslu og fótsnyrtíngu blessuð konan sú gamla fékk einhverja danska fjölskyldu til að hugsa um mig á meðan hún var í læri í danaveldi þar var á borðum svínakjöt og seinn las ég mer það til að það kjötmeti væri fátækrafæða þar í landi
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár