Katrín Atladóttir ekki í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í vor

Tveir af átta borg­ar­full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks hafa nú til­kynnt að þeir muni ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri. Katrín Atla­dóttir lýsir yfir stuðn­ingi við Hildi Björns­dóttur.

Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks.
Katrín Atla­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Atla­dóttir, sem kjör­inn var í borg­ar­stjórn fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018, ætlar ekki að gefa kost á sér til áfram­hald­andi setu. Frá þessu greinir hún í Morg­un­blað­inu í dag en orðrómur um þessa ákvörðun hennar hefur lengi verið í gangi. Katrín mun hefja störf hjá Dohop á vor­mán­uðum.

Katrín sat í sjötta sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks í borg­inni fyrir síð­ustu kosn­ingar og hefur stað­sett sig með Hildi Björns­dóttur í lyk­il­málum sem óein­ing hefur ríkt um innan borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili, sér­stak­lega þegar kemur að sam­göngu­málum. Í við­tal­inu við Morg­un­blaðið segir Katrín að hún styðji Hildi í leið­toga­próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem er framundan.

Katrín hóf form­lega stjórn­mála­þátt­töku með því að setj­ast neð­ar­lega á fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík suður fyrir þing­kosn­ing­arnar 2016 og 2017. Hún úti­lokar ekki end­ur­komu í póli­tík en segir að það muni ekki ger­ast á næst­unni.

Eyþór heldur ekki í framboði

Það eru fleiri úr borg­ar­stjórn­ar­flokki Sjálf­stæð­is­flokks sem verða ekki í fram­boði í vor. Skömmu fyrir jól til­kynnti Eyþór Arn­alds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík, að hann væri hættur við að gefa kost á sér til að leiða lista flokks­ins í borg­inni fyrir kom­andi kosn­ing­ar, sem fara fram í maí. Áður hafði Eyþór gefið út að hann sækt­ist áfram eftir odd­vita­sæt­inu að óbreyttu. Auk hans hafði Hildur Björns­dótt­ir, sem var í öðru sæti á list­anum í kosn­ing­unum 2018, til­kynnt að hún vildi leiða list­ann. Eng­inn annar hefur sem stendur til­­kynnt fram­­boð í leið­­toga­­sæt­ið.

[adspot]Í stöðu­upp­færslu á Facebook sagði Eyþór að honum hafi snú­ist hug­ur. Hann muni gegna skyldum sínum út kjör­tíma­bilið og láta síðan af þátt­töku í stjórn­málum að sinn­i.

Ákvörð­unin væri tekin af per­sónu­legum ástæð­um, ekki póli­tísk­um. „Ég er þess full­viss að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun vinna góðan sigur í vor og þeir sem þekkja mig vita að ég ótt­ast ekki nið­ur­stöður í nokkru próf­kjöri. Eins er rétt að árétta að ákvörð­unin er algjör­lega óháð því hvaða fyr­ir­komu­lag sjálf­stæð­is­menn í Reykja­vík kjósa að við­hafa við val á fram­boðs­lista eða hvaða ein­stak­lingar munu gefa kost á sér í því vali.“

Könnun gerð um hver ætti að leiða

Kjarninn hefur rætt við fólk sem tók þátt í skoð­ana­könnun sem Prósent gerði skömmu áður en Eyþór til­kynnti um breytta ákvörðun þar sem meðal ann­ars var spurt hvort fólki hugn­að­ist betur að Eyþór eða Hildur myndu leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn í borg­inni. Nið­ur­staða könn­un­ar­innar hefur ekki verið gerð opin­ber og ekki liggur fyrir hver greiddi fyrir hana.

Eyþór sagði hins vegar við Kjarnann að ákvörðun hans um að sækj­ast ekki eftir end­ur­kjöri byggði ekki á því að hann eða aðrir hafi verið að láta fram­kvæma ein­hverjar skoð­ana­kann­anir þar sem afstaða til hans sjálfs í sam­an­burði við aðra fram­bjóð­endur hafi verið mæld á meðal borg­ar­búa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár