Meirihluti verkefna varðandi náttúruvá vanfjármögnuð

Í nýbirtri skýrslu starfs­hóps um stöðu og áskor­anir varð­andi til­högun hættu­mats og vökt­unar vegna nátt­úru­vár kemur fram að brýn verk­efni sem hóp­ur­inn leggur til að farið verði í „hafa ekki trygga fjár­mögnun“. Í þeim sex mála­flokkum sem eru til­teknir telj­ast fjórir í „umfangs­mik­illi fjár­þörf“ á ein­hverju sviði og einn á öllum þremur sviðum sem eru til­tekin. Af þeim 18 liðum sem eru til­teknir varð­andi fjár­þörf eru 14 í veru­legri eða umfangs­mik­illi fjár­þörf og aðeins einn þeirra í lít­illi fjár­þörf.

Mun taka mörg ár að ljúka nauðsynlegum verkefnum
Mun taka mörg ár að ljúka nauð­syn­legum verk­efnum Miðað við núver­andi fyr­ir­komu­lag mun það taka mörg ár að koma á dag­skrá og ljúka nauð­syn­legum hættu­mats­verk­efnum vegna nátt­úru­vár. Þetta kemur fram í skýrslu starfs­hóps sem meta átti stöðu og áskor­anir varð­andi til­högun hættu­mats og vökt­unar vegna nátt­úru­vár á Íslandi. Mynd: Davíð Þór

Starfs­hópur á vegum umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­is­ins sem meta átti stöðu og áskor­anir varð­andi til­högun hættu­mats og vökt­unar vegna nátt­úru­vár segir „umfangs­mikla fjár­þörf“ liggja fyrir í mála­flokknum, sér­stak­lega í ljósi þess að mörg af þeim verk­efnum sem ráð­ast þarf í til að koma í veg fyrir tjón þurfi trygga fjár­mögnun. Í þeim sex mála­flokkum sem eru til­teknir í skýrsl­unni er í þremur þeirra fjár­þörfin metin sem veru­leg eða umfangs­mikil. Flokk­unum er skipt síðan niður í liði, af þeim 18 liðum sem kynntir eru eru 14 þeirra í veru­legri eða umfangs­mik­illi fjár­þörf.

„Miðað við núver­andi fyr­ir­komu­lag mun það taka mörg ár að koma á dag­skrá og ljúka nauð­syn­legum hættu­mats­verk­efnum vegna nátt­úru­vár og lofts­lags­breyt­inga auk aðlög­un­ar­að­gerða,“ segir í skýrslu starfs­hóps­ins sem kynnt var í Hörpu í dag.

FjárþörfEf horft er til ákveð­inna þátta er hægt að áætla gróf­lega fjár­þörf hvers mála­flokks með til­liti til þriggja þátta; mannauðs, rekst­urs og fjár­fest­ingar í meðal ann­ars tækjum, bún­aði og aðstöðu.

Áskor­anir sem hóp­ur­inn kynnti eru yfir 20 tals­ins og tæp­lega 60 meg­in­verk­efni tengj­ast þeim. „Erfitt er að for­gangs­raða þeim þar sem þau eru öll mik­il­væg,“ en hóp­ur­inn leggur til að lögð verði fram stefna um nátt­úruvá á Íslandi sem muni fela í sér skýra for­gangs­röðun verk­efna sem væri þá und­ir­staða fyrir stjórn­völd til að ákvaða fjár­heim­ildir til þeirra. 

Framkvæmd verkefna óásættanleg

Þar segir einnig að þrátt fyrir að hlut­verka­skipt­ing opin­berra stofn­ana og sveit­ar­fé­laga varð­andi nátt­úruvá liggi fyrir með við­eig­andi fjár­mögnun hafi skort á það að hægt sé að fram­kvæma verk­efni og að fram­vinda þeirra sé með „ásætt­an­legum hætti“.

Víða þurfi að huga að end­ur­nýjun á bún­aði og styrkja mæli­kerfi til þess að koma til móts við kröfur um ásætt­an­lega vöktun á nátt­úruvá. „Þetta á til dæmis við um vatns- og sjáv­ar­flóð, ofan­flóð og úrkomu­mæl­ingar.“ Einnig er tekið fram að þrátt fyrir að fjöldi mæla sé umtals­verður séu enn „gloppur í kerf­inu sem fylla þarf í til að það verði af þeim gæðum sem talið er ásætt­an­legt og í sam­ræmi við það sem er gert í lönd­unum sem við berum okkur saman við. Ekki er nóg að byggja upp mæla­kerfi heldur þarf að tryggja eðli­lega end­ur­nýjun og rekstur þess til ókom­innar fram­tíðar.“

„Miðað við núver­andi fyr­ir­komu­lag mun það taka mörg ár að koma á dag­skrá og ljúka nauð­syn­legum hættu­mats­verk­efnum vegna nátt­úru­vár.“

Þá er bent á mik­il­vægi þess að það sé til sam­bæri­leg lög­gjöf og til eru um ofan­flóð um hættu­mat, varnir og við­brögð vegna ann­arrar nátt­úru­vár og að koma því í kring að stofn­anir geti ráðið við aukin verk­efni. 

Nauðsynlegt að endurskoða hættumat vegna ofanflóða

Þrátt fyrir að til sé lög­gjöf um ofan­flóð, hættu­mat vegna þeirra, varnir og við­brögð segir í skýrsl­unni að nauð­syn­legt sé að end­ur­skoða hættu­mat þar sem varn­ar­virki hafa verið reist. Ofanflóð sam­kvæmt skýrsl­unni, ásamt ofsa­veðri, er sú nátt­úruvá sem veldur mestu tjóni og mann­skaða á Íslandi og þá er til­tekið að frá alda­mót­unum 1900 hafi 171 lát­ist í snjó­flóðum. Auk þess sé eld­gosa­hættu­mat „langt frá því að vera lokið“ og gerð hættu­mats vegna vatns- og sjáv­ar­flóða „stutt á veg komin.“ Og svo er bætt við: „auk þess sem skortur á sér­hæfðu starfs­fólki og fjár­magni spilar stóra rullu hér.“

Sér­stak­lega er tekið fram að skortur á sér­hæfðu starfs­fólki sé „ógn við starf­semi stofn­ana sem tengj­ast nátt­úruvá.“ Störfin séu afar sér­hæfð og sam­keppni um sér­hæft starfs­fólk mikil auk þess sem stór hluti þeirra sem hafa slíka þekk­ingu sé að kom­ast á eft­ir­launa­aldur. Það þurfi að auka þekk­ingu og mannauð á þeim stofn­unum sem sinna miðlun í nátt­úruvá, það þurfi að tryggja til þess nægan fjölda sér­fræð­inga og svo er sér­stak­lega tekið fram að auka þurfi getu stofn­ana til að miðla upp­lýs­ingum á nokkrum tungu­málum. 

„Þetta er veik­leiki sem Veð­ur­stofan hefur bent á, meðal ann­ars til þjóðar­ör­ygg­is­ráðs.“

Þá unnu fáir fram­halds- og nýdokt­or­snemar að verk­efnum tengdum nátt­úruvá síð­asta ára­tug­inn auk þess sem ekk­ert þeirra fáu verk­efna sem þó voru fjöll­uðu um ofan­flóð, þá nátt­úruvá sem veldur mestu tjóni og mann­skaða. Þrátt fyrir að ofan­flóða­hættu­mat hafi verið unnið fyrir nán­ast alla þétt­býl­is­staði lands­ins sem búa við ofan­flóða­hættu er sam­kvæmt hópnum „verk­efn­inu langt frá því lokið“. Fram­kvæmdir við varnir vegna ofan­flóða eða upp­kaupa hús­eigna hefur átt sér stað á 15 þétt­býl­is­stöðum en er aðeins lokið á 6 þeirra. 

Ekkert hættumat til vegna jarðskjálfta

Í skýrsl­unni segir að þrátt fyrir að Ísland búi við mikla jarð­skjálftavá hefur ekk­ert hættu­mat verið unnið vegna jarð­skjálfta og engar áætl­anir til vegna þeirra. „Þetta er veik­leiki sem Veð­ur­stofan hefur bent á, meðal ann­ars til þjóðar­ör­ygg­is­ráðs.“ Sem dæmi um tjón af völdum jarð­skjálfta á Íslandi má nefna að heild­ar­tjón vegna Suð­ur­lands­skjálft­ans, sem varð árið 2008, er metið á rétt tæp­lega 21 millj­arð á núvirði. Tjón­staðir vegna tjóns á hús­eignum voru til dæmis rúm­lega fjögur þús­und. 

Þegar dregin er saman staðan varð­andi gerð hættu- og áhættu­mats vegna nátt­úru­vár hér á landi og hún skoðuð í sam­an­burði við Norð­ur­löndin kemur fram að við „stöndum höllum fæti.“ Hin Norð­ur­löndin hafi unnið sam­kvæmt flóða­til­skipun ESB óháð því hvort hún hafi verið inn­leidd í við­kom­andi ríki eða ekki. Vöktun, rann­sókn og hættu­mat á gróð­ur­eldum, jarð­skjálftum, hafís, ofsa­veðri og fjöl­þátta ógnum hafa ekki verið fjár­magn­aðar.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár