„Getum ekki verið með fólk hérna sem bara ráfar um göturnar tekjulaust“

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Mið­flokks­ins ræddu á þingi kostnað við þjón­ustu hæl­is­leit­enda og þeirra sem sækja um dval­ar­leyfi hér á landi. Ráð­herr­ann sagði að ef Íslend­ingar ykju rétt­indi fólks til að fá stuðn­ing þá myndi það kosta pen­inga.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir að það þurfi að vera ein­hver sýn á það hvaða aðstæður séu boð­legar fyrir hæl­is­leit­endur að búa við á milli þess sem þeim er synjað um hæli og mál þeirra tekið upp að nýju eða þeim vísað úr landi. „Við getum ekki verið með fólk hérna sem bara ráfar um göt­urnar tekju­laust á meðan það bíður úrlausnar sinna mála.“

Þetta sagði hann í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í gær en Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, spurði hann meðal ann­ars hvort það hefði engan kostnað í för með sér að marg­falda þann fjölda sem á rétt á þeirri fjár­hags­að­stoð og þjón­ustu sem Íslend­ingar veita kvótaflótta­mönnum.

Kjarninn greindi frá því í vik­unni að fjórtán manns hefðu misst þjón­ustu á vegum Útlend­inga­stofn­unar eftir að hafa neitað að fara í COVID-19 próf þegar til stóð að vísa þeim úr landi til Grikk­lands. Nú stendur yfir neyð­ar­söfnun fyrir þessa flótta­menn sem margir eru frá Palest­ínu.

„Ég veit að þegar er veitt mikil þjón­usta öllum þeim sem fá hér hæli eða dval­ar­leyfi, lík­lega ein­hver sú mesta sem fyr­ir­finnst og að því marki að ásókn í hæli hér er orðin hlut­falls­lega sexfalt meiri en í Danmörku og Noregi. Við höfum hins vegar ein­beitt okkur að því og lagt metnað í það að taka vel á móti kvótaflótta­mönnum sem eiga meðal ann­ars rétt á fjár­hags­að­stoð, félags­legri ráð­gjöf, hús­næði, menntun, leik­skóla­kennslu, tóm­stunda­starfi, heil­brigð­is­þjón­ustu, tann­lækn­ingum, þjón­ustu túlka, síma og svo fram­vegis,“ sagði þing­mað­ur­inn í fyr­ir­spurn sinni í gær.

[links]Sig­mundur Davíð spurði þar af leið­andi ráð­herr­ann hvort það væri hans skoðun að það hefði engan kostnað í för með sér að marg­falda þann fjölda sem á rétt á þeirri fjár­hags­að­stoð og þjón­ustu sem Íslend­ingar veita kvótaflótta­mönnum. Jafn­framt spurði hann hvort Bjarni teldi að þetta myndi ekki hafa nein áhrif á þann fjölda sem myndi leita hingað umfram önnur lönd á sama tíma og önnur Norð­ur­lönd væru að reyna að hindra hæl­is­um­sóknir og beina öllum í kvótaflótta­manna­kerfið.

Höfum „opnað of víða í kerfinu“ fyrir kærur

Bjarni svar­aði og sagði að þessum spurn­ingum væri auðsvarað. „Ef við aukum rétt­indin til að fá stuðn­ing þá mun það kosta pen­inga,“ sagði hann og bætti því við að Íslend­ingar þyrftu að horfast í augu við það að í þessu kerfi hefði máls­með­ferð­ar­tím­inn á und­an­förnum árum kostað rík­is­sjóð „óheyri­lega mikla pen­inga“ – eða marga millj­arða á hverju ári.

„Þess vegna hef ég talað fyrir því að við skerpum á þeim til­fellum þar sem við eigum að geta kom­ist hratt að nið­ur­stöðu, við ein­földum ferlið til að klára hraðar mál sem allan tím­ann voru lík­leg til að enda með höfnun. Við höfum opnað of víða í kerf­inu fyrir kærur sem geta dregið málin og end­an­lega nið­ur­stöðu þeirra á lang­inn og ég held að það sé kannski einkum þar sem við skerum okkur úr í sam­an­burði við önnur ríki sem vinna að þessum málum á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar, að mögu­leik­arnir til að fá end­ur­upp­töku og frek­ari skoðun sinna mála séu fleiri í íslenska kerf­inu. Það getur valdið alveg sér­stak­lega miklum kostn­aði,“ sagði Bjarni.

Biðin gæti aukist enn meira

Sig­mundur Davíð sagði í fram­hald­inu að það væri ágætt að ráð­herra við­ur­kenndi að þetta fæli í sér kostnað en þá þyrfti að reyna að meta þann kostnað sam­hliða þessum breyt­ingum sem myndu hafa mjög veru­leg áhrif.

„Ef ásóknin eykst gerir það kerf­inu erf­ið­ara fyrir að afgreiða umsóknir og biðin getur þar af leið­andi orðið lengri og sá kostn­aður eykst þá líka fyrir vikið. Það er því mjög sér­kenni­legt – í ljósi þess að hæst­virtur ráð­herra við­ur­kennir að ýmsir gallar eru á kerf­inu, það er ekki að virka sem skyldi og ekki hefur tek­ist að ráða bót á því enn sem komið er – að stjórn­völd skuli ekki byrja á að laga þá galla heldur ráð­ast í aðgerðir sem eru til þess fallnar að auka vand­ann meira, fá enn meiri fjölda umfram­um­sókna, sér­stak­lega þegar þetta ger­ist á sama tíma og önnur Norð­ur­lönd eru að reyna að stöðva hæl­is­um­sóknir og beina flótta­mönnum, hæl­is­leit­endum, í kvótaflótta­manna­kerfið. Við erum á sama tíma að fara í þver­öf­uga átt,“ sagði hann.

Kann ekki góðri lukku að stýra í þessum málaflokki að vera með lægstu þröskuldana

Bjarni steig aftur í pontu og sagði að hann gæti svo sann­ar­lega tekið undir að það kynni ekki góðri lukku að stýra í þessum mála­flokki að vera með lægstu þrösk­uldana – þegar fá mál væru tekin til athug­unar þar sem umsækj­endur fengju stuðn­ing á meðan á athugun stæði og að vera með fleiri kæru­leiðir en aðrir.

„Hvort það megi leiða til sér­ís­lenskrar leiðar í þessum efnum að fjöldi umsókna hafi verið meiri hér en hlut­falls­lega ann­ars staðar skal ég ekki segja. En fyrir þing­inu hefur legið frum­varp frá dóms­mála­ráð­herra, óaf­greitt í fleiri en eitt þing, sem meðal ann­ars er ætlað að taka á afgreiðslu þess­ara mála þannig að hægt sé að kom­ast hraðar að nið­ur­stöðu,“ sagði ráð­herr­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár