„Nú þurfum við að ákveða hvoru megin í sögunni við ætlum að vera“

Fjórtán manns hafa nú misst þjón­ustu á vegum Útlend­inga­stofn­unar eftir að hafa neitað að fara í COVID-19 próf þegar til stóð að vísa þeim úr landi til Grikk­lands. Nú stendur yfir neyð­ar­söfnun fyrir þessa flótta­menn sem margir eru frá Palest­ínu.

Neyð­ar­söfnun fyrir hús­næð­is­lausa flótta­menn á Íslandi stendur nú yfir en fjórtán ein­stak­lingar hafa nú misst þjón­ustu á vegum Útlend­inga­stofn­unar eftir að hafa neitað að fara í COVID-19 próf þegar til stóð að vísa þeim úr landi til Grikk­lands.

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sam­tak­anna Refugees in Iceland í dag en söfn­unin fer fram í gegnum Solaris – hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi.

Töluvert var fjallað um mál­efni flótta­fólks í fjöl­miðlum lands­ins í síð­ustu viku en Kjarninn greindi frá því að ungir Palest­ínu­menn, sem hingað komu og sóttu um alþjóð­lega vernd, hefðu misst hús­næði sem þeir voru í á vegum Útlend­inga­stofn­unar sem og fram­færslu frá stofn­un­inni. Mál þeirra voru ekki tekin til efn­is­legrar með­ferðar hér á landi á þeim rökum að þeir hafi þegar fengið dval­ar­leyfi og stöðu flótta­manna í Grikk­landi.

Samtökin Refugees in Iceland taka það sér­stak­lega fram á Facebook að umrætt fólk sé með öllu ein­kenna­laust og að eng­inn grunur sé um að þau séu smituð af COVID-19. Benda þau á að ástæðan fyrir því að Útlend­inga­stofnun vill senda fólkið í skimun sé til þess að hægt sé að senda þau úr landi. „Þar sem aðstæður í Grikk­landi eru óvið­un­andi fyrir flótta­fólk, líkt og Rauði Krossinn og fleiri mann­rétt­inda­sam­tök hafa ítrekað bent á, hefur fólkið ekki viljað fara í COVID-19 próf þar sem það væri ígildi þess að aðstoða við eigin brott­vísun. Vegna þessa hefur Útlend­inga­stofnun ákveðið að refsa flótta­fólk­inu með því að senda þau á göt­una, hús­næð­is­laus, fram­færslu­laus og kenni­tölu­laus.“

Bíður ekkert nema heimilisleysi, atvinnuleysi og skert eða ekkert aðgengi að heilbrigðisþjónustu

Benda þau enn fremur á að mörg í þeim hópi sem nú eru á göt­unni hér á landi séu frá Palest­ínu. „Eins og allir vita hefur heima­land þeirra orðið fyrir loft­árásum nýverið þar sem sak­laust fólk hefur látið lífið í hrönnum. Á þessum tíma­punkti ákveða íslensk yfir­völd að senda þau aftur til Grikk­lands. Önnur sem vísað hefur verið á göt­una koma frá stríðs­hrjáðum svæðum líkt og Afganistan, Írak, Sýrlandi, Sómalíu og Kúr­distan.

Líkt og fyrr segir eru aðstæður flótta­fólks í Grikk­landi bæði ómann­úð­legar og óör­uggar. Þar bíður þeirra ekk­ert nema heim­il­is­leysi, atvinnu­leysi, skert eða ekk­ert aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu, menntun og annarri grunn­þjón­ustu. Einnig þarf flótta­fólk þar að búa við for­dóma og ofbeldi af hálfu almenn­ings sem og yfir­valda. Þor­steinn Gunn­ars­son, stað­geng­ill for­stjóra ÚTL, hefur sagt að flótta­fólkið sem sent var á göt­una hafi haft val, en það kall­ast ekki val að neyða fólk til að velja um líf á göt­unni í Grikk­landi eða líf á göt­unni á Íslandi. Það kall­ast kúgun,“ segir í færsl­unni.

[links]„Nú þurfum við að ákveða hvoru megin í sög­unni við ætlum að vera. Tökum við afstöðu með náunga­kær­leika og sam­kennd eða fylgjum við í blindni ótta­á­róðri og íhalds­semi stjórn­valda?“ spyrja þau.

Samtökin telja það á ábyrgð Íslend­inga að aðstoða og sýna sam­kennd­ina í verki. Tekist hafi að skjóta þaki yfir þau sem búið er að henda á göt­una en enn sé von á að bæt­ist í hóp­inn og hafi þau ekk­ert á milli hand­anna.

Efnahagslegar ástæður ekki nægjanlegar einar og sér svo að mál hælisleitenda séu tekin til efnislegrar meðferðar

Íris Krist­ins­dóttir, sviðs­stjóri vernd­ar­sviðs Útlend­inga­stofn­unar, sagði í sam­tali við Kjarnann í síð­ustu viku að ákvarð­anir um að synja hópi Palest­ínu­manna um alþjóð­lega vernd hefðu verið teknar „áður en yfir­stand­andi átök brut­ust út á Gaza“ og að stríðið þar hefði „ekki endi­lega áhrif“ á flutn­ing þeirra úr landi sem nú standi fyrir dyrum. „Við förum ekki út í þessar aðgerðir að gamni okkar,“ sagði hún um þá ákvörðun að stöðva fram­færslu til mann­anna og vísa þeim út á götu eftir að þeir neit­uðu að fara í sýna­töku. „Það er búið að reyna að vinna með þeim.“

Þór­hildur Hagalín, upp­lýs­inga­full­trúi stofn­un­ar­innar, sagði enn fremur við Kjarnann að vissu­lega væru „sér­stakar aðstæður“ í Palest­ínu en að þangað væri ekki verið að vísa þeim heldur aftur til Grikk­lands þar sem þeir hefðu þegar fengið dval­ar­leyfi. Hún við­ur­kenndi þó að ástandið í því landi væri ekki gott, á því léki eng­inn vafi. En efna­hags­legar ástæður á borð við hús­næðis- eða atvinnu­leysi, eru að sögn Írisar ekki nægj­an­legar einar og sér svo að mál hæl­is­leit­enda séu tekin til efn­is­legrar með­ferðar hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár