Yfirlýst stefna Joe Biden í skattamálum er róttækari en stefna Framsóknarflokksins

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar orð Sigurðar Inga Jóhanns­sonar um að Joe Biden Banda­ríkja­for­seti sé með svip­aðar áherslur í skatta­málum og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn.

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins í Forystusætinu á RÚV á fimmtudaginn.
Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í For­ystu­sæt­inu á RÚV á fimmtu­dag­inn. Mynd: Skjáskot/Framsókn

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins var spurður út í skatta­stefnu flokks­ins er hann var gestur For­ystu­sæt­is­ins á RÚV á fimmtu­dags­kvöld. Framsókn boðar í kosn­inga­stefnu sinni að fjár­magnstekju­skattur fyr­ir­tækja verði þrepa­skiptur og þau fyr­ir­tæki sem skili yfir 200 millj­óna hagn­aði greiði meira. Á sama tíma verði trygg­inga­gjald fyr­ir­tækja líka þrepa­skipt og minni fyr­ir­tæki greiði minna en þau gera í dag.

Athygl­is­vert er að í þætt­inum líkti for­mað­ur­inn skatta­stefnu Fram­sókn­ar­flokks­ins við þá stefnu sem Joe Biden Banda­ríkja­for­seti hefur talað fyrir í skatta­málum. Tillögur Biden-stjórn­ar­innar í skatta­málum, sem settar voru fram fyrr á árinu, hafa vakið tölu­verða athygli fyrir rót­tækni, en enn er óljóst nákvæm­lega hvernig þeim reiðir af í með­förum Banda­ríkja­þings. Biden-stjórnin hefur að und­an­förnu haft for­ystu um það að alþjóð­legur lág­marks­skattur á fyr­ir­tæki verði tek­inn upp og Framsókn seg­ist sam­mála því að slíkur eigi að vera til staðar.

„...úti í Banda­ríkj­unum er for­seti sem hefur stefnu Fram­sókn­ar­flokks­ins mjög ofar­lega í sínum huga og er að leggja nákvæm­lega þetta til, það er að segja, að jafna leik­inn og láta stærri fyr­ir­tækin sem sýna meiri hagnað borga meira og leggja til alheims­skatt á stóru alþjóð­legu fyr­ir­tækin,“ sagði Sigurður Ingi í þætt­inum.

Orð Sigurðar Inga voru sett fram í gam­an­sömum tóni, en er hægt að segja að demókrat­inn Joe Biden sé nálægt stefnu Fram­sókn­ar­flokks­ins í skatta­málum, eins og for­mað­ur­inn vakti upp hug­hrif um með orðum sínum? Stutta svarið er nei, ekki alveg.

Biden hefur lagt til að fjármagnstekjur verði skattlagðar til jafns við laun

Til­lög­urnar sem Biden hefur lagt fram eru umtals­vert rót­tæk­ari en það sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn boðar. Sigurður Ingi lagði meira að segja sjálfur áherslu á það í við­tal­inu við RÚV að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn væri flokkur hóf­sem­innar, í skatta­málum sem öðrum og sagði ekki búið að útfæra hversu háan skatt flokk­ur­inn myndi vilja sjá á rík­ustu fyr­ir­tæki lands­ins. Það yrði útfært eftir kosn­ingar, ef Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fengi til þess umboð.

[adspot]

Biden-stjórnin hins vegar lagði til dæmis fram til­lögu um að byrja að skatt­leggja fjár­magnstekjur sem næmu yfir einni milljón banda­ríkja­dala til jafns við launa­tekjur í efsta þrepi, sem myndi þýða að allt að 39,6 eða 43,4 pró­senta skatt á tekjur sem í dag bera 20 pró­sent skatt. Banda­ríkja­for­seti lagði einnig til við þingið að tekju­skattur fyr­ir­tækja hækk­aði upp í 28 pró­sent, en fyr­ir­tækja­skatt­ur­inn í Banda­ríkj­unum er í dag flatur 21 pró­sent skattur af hagn­aði.

Það hefur því einmitt vakið athygli hvað Joe Biden hefur verið stór­huga í áformum sínum um aukna skatt­lagn­ingu þeirra rík­ustu í banda­rísku sam­fé­lagi, en nýlegar frétta­skýr­ingar frá Banda­ríkj­unum benda þó til þess að þessi miklu áform for­set­ans verði veru­lega útþynnt eftir mála­miðl­anir á meðal þing­manna demókrata í báðum deildum Banda­ríkja­þings. Samkvæmt vef­miðl­inum The Hill hafa hags­muna­hópar í banda­rísku við­skipta­lífi beitt sér af nokkrum þunga gegn skatta­hækk­unar­á­formum og telja sig vera að ná ágætum hljóm­grunni á meðal þing­manna Demókra­ta­flokks­ins.

Niðurstaða Staðreyndavaktarinnar

Þrátt fyrir að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn seg­ist um þessar mundir vilja hækka skatta á stærstu og rík­ustu fyr­ir­tækin í land­inu og tali vel um alþjóð­legan fyr­ir­tækja­skatt er Biden tölu­vert rót­tæk­ari í sínum fram­lögðu til­lögum en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Það er því hálf­sann­leikur hjá Sigurði Inga að gefa til kynna að Joe Biden Banda­ríkja­for­seti sé með sam­bæri­lega skatta­stefnu og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, eða hafi hana ofar­lega í sínum huga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár