Hreinn Loftsson hættir sem aðstoðarmaður Áslaugar Örnu og ræður sig til Jóns

Jón Gunn­ars­son tók við sem inn­an­rík­is­ráð­herra á sunnu­dag hefur ákveðið að ráða fyrr­ver­andi aðstoð­ar­mann for­vera síns í starfi, Hrein Loftsson, sem aðstoð­ar­mann sinn.

Hreinn Loftsson, lögmaður og annar aðstoðarmaður innanríkisráðherra.
Hreinn Loftsson, lög­maður og annar aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra. Mynd: RÚV/Skjáskot

Hreinn Loftsson, sem varð annar aðstoð­ar­manna Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur eftir að hún sett­ist í dóms­mála­ráðu­neytið árið 2019, mun halda áfram að starfa í því ráðu­neyti þrátt fyrir að Áslaug Arna sé komin annað.

Á vef stjórn­ar­ráðs­ins í dag er greint frá því að Hreinn verði aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar, sem tók við emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra, sem fer með dóms­mál, á sunnu­dag.

[adspot]Hreinn lauk laga­námi við Háskóla Íslands árið 1983 og öðl­að­ist rétt­indi til mál­flutn­ings fyrir Hæsta­rétti árið 1993. Hann á að baki fjöl­breyttan feril í lög­mennsku, atvinnu­lífi, stjórn­sýslu og sem aðstoð­ar­maður ráð­herra í nokkrum ráðu­neytum frá árinu 1985 til 1992. Hann var meðal ann­ars aðstoð­ar­maður Davíðs Odds­sonar þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og var for­maður fram­kvæmda­nefndar um einka­væð­ingu um nokk­urt skeið í kringum síð­ustu alda­mót. Hreinn gegndi einnig stjórn­ar­for­mennsku í fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Baugi um tíma og sat líka sem óbreyttur stjórn­ar­maður þar , en það fór í þrot eftir banka­hrunið.

Í nóv­em­ber 2008 keypti Hreinn útgáfu­fé­lagið Birting, sem átti á þeim tíma DV. Hann seldi sig síðar út úr útgáfu­starf­sem­inni.

Frá 2014 og þangað til að hann tók við sem aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu starfað Hreinn sjálf­stætt. Hreinn hefur setið í stjórnum fjöl­margra fyr­ir­tækja, nefnda og félaga, auk starfs á vett­vangi stjórn­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár