Enn eykst losun frá flugi og iðnaði

Uppgjör rekstr­ar­að­ila stað­bund­ins iðn­aðar og flug­rek­enda í við­skipta­kerfi ESB með los­un­ar­heim­ildir hefur verið birt.

Losun innan við­skipta­kerfis ESB jókst um 1,1 pró­sent á milli áranna 2017 og 2018 en upp­gjöri rekstr­ar­að­ila stað­bund­ins iðn­aðar og flug­rek­enda í við­skipta­kerf­inu með los­un­ar­heim­ildir er lokið. Þetta kemur fram á vef Umhverf­is­stofn­unar í dag.

Alls gerðu fjórir íslenskir flug­rek­endur og sjö rekstr­ar­að­ilar iðn­aðar upp heim­ildir sínar. Einn flug­rek­andi skil­aði los­un­ar­skýrslu en gerði ekki upp losun sína í tæka tíð. Heild­ar­losun í flugi sem fellur undir kerfið var 820.369 tonn CO2 ígilda en í iðn­aði var los­unin 1.854.715 tonn af CO2 ígildum. Upp­gerðar los­un­ar­heim­ildir í flugi voru hins vegar 542.244 tonn CO2 ígilda.

Raun­losun íslenskra flug­rek­enda jókst lít­il­lega á milli ára. Aukning los­unar varð 0,8 pró­sent milli áranna 2017 og 2018. Árið 2017 var los­unin 813.745 tonn af CO2 en varð á síð­asta ári 820.369 tonn af CO2. Fimm flug­rek­endum bar að skila los­un­ar­skýrslu og voru þeir allir íslenskir. Losun frá flugi er þó háð tak­mörk­unum að því leyt­inu til að hún er ein­ungis losun innan EES svæð­is­ins og tekur því ekki á heild­ar­losun flestra flug­rek­enda, þar sem til að mynda Amer­íkuflug er ekki innan gild­is­sviðs kerf­is­ins eins og er.

Losun frá iðnaði eykst einnig

Losunin frá iðn­aði jókst einnig lít­il­lega á milli ára, eða um 1,26 pró­sent, úr 1.831.667 tonnum af CO2 árið 2017 í 1.854.715 tonn af CO2 árið 2018. Jafn­margir rekstr­ar­að­ilar í iðn­aði gerðu upp fyrir árið 2017 og árið á undan, eða sjö tals­ins þar sem Sameinað Sílikon var ekki með losun árið 2018 en kís­il­ver PCC á Bakka hóf starf­semi það ár.

Kerfinu ætlað að vera hvati til að draga úr losun

Samkvæmt Umhverf­is­stofnun er við­skipta­kerfi ESB með los­un­ar­heim­ildir gróð­ur­húsa­loft­teg­unda almennt nefnt ETS, eða Emission Trading System á enskri tungu, og gegnir lyk­il­hlut­verki í aðgerðum Evr­ópu­sam­bands­ins gegn lofts­lags­breyt­ingum. Rekstr­ar­að­ilum iðn­aðar og flug­rek­endum er úthlutað los­un­ar­heim­ildum í sam­ræmi við staðl­aðar reglur sem sam­svara fyr­ir­fram ákveðnum tak­mörk­unum. Það sem flug­rek­endur og rekstr­ar­að­ilar losa umfram end­ur­gjalds­lausar los­un­ar­heim­ildir þurfa þeir að kaupa heim­ildir á mark­aði og er kerf­inu þannig ætlað að vera hvati til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Kerfið nær utan um 45 pró­sent af losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda innan ESB og hefur það mark­mið að árið 2020 verði losun í þeim geirum sem falla undir kerfið 21 pró­sent lægri en hún var árið 2005, og 43 pró­sent lægri árið 2030. Þessu á að ná fram með því að fækka end­ur­gjalds­lausum los­un­ar­heim­ildum til rekstr­ar­að­ila um 1,74 pró­sent ár hvert. Los­un­ar­heim­ildir til flug­rek­enda fækk­uðu um 5 pró­sent fyrir við­skipta­tíma­bilið 2013 til 2020 miðað við með­al­l­osun árin 2004 til 2005.

Kerfið nær utan um rúm­lega 11.000 rekstr­ar­að­ila í stað­bundnum iðn­aði og stærstan hluta los­unar frá flugi sem sér stað innan EES- svæð­is­ins, en virkir flug­rek­endur innan ETS voru 776 árið 2015. Ísland, Noregur og Liechtenstein taka þátt í kerf­inu í gegnum EES samn­ing­inn.

Rekstr­ar­að­ilar sem falla undir kerfið eru þeir sem hafa upp­sett nafn­varma­afl yfir 20 MW, auk allra stöðva sem til­greindar eru í við­auka til­skip­unar ESB. Fram­kvæmda­stjórn ESB gefur síðan árlega út lista yfir hvaða flug­rek­endur falla undir hvaða ríki. Samkvæmt nýjasta list­anum falla alls 241 flug­rek­endur undir stjórn Íslands, þó að lang­flestir séu und­an­þegnir gild­is­sviði kerf­is­ins. Þeim flug­rek­endum og rekstr­ar­að­ilum iðn­aðar sem falla undir kerfið ber að skila vott­aðri los­un­ar­skýrslu til Umhverf­is­stofn­unar fyrir 31. mars ár hvert og gera upp los­un­ar­heim­ildir fyrir 30. apríl, sam­kvæmt Umhverf­is­stofnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár