Átökin magnast - forsætisráðherra Grikklands sagður láta egóið stjórna ferðinni

Yanis Varoufakis, sem var fjár­mála­ráð­herra í Grikk­landi þangað til í sumar, gagn­rýnir nú fyrrum nán­asta sam­starfs­mann sinn, for­sæt­is­ráð­herr­ann Alexis Tsipras, harð­lega.

Frá því að Varoufakis sagði af sér emb­ætti óvænt, dag­inn eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um neyð­ar­lána­pakka frá lán­ar­drottnum Grikkja, hefur verið nokk­urs konar vopna­hlé á milli þeirra. Nú er Varoufakis hins vegar kom­inn í hóp ann­arra hátt­settra manna sem áður voru í Syriza-flokknum, sem ráð­ast gegn Tsipras.


Varoufakis er í við­tali við New Review í kvöld og gagn­rýnir þar stefnu Tsiprsas. Hann segir að Tsipras hafi ákveðið að "gef­ast upp" fyrir kröfum lán­ar­drottn­anna sem hafa haldið Grikkjum á floti. Í stað þess að vera trúr kosn­inga­lof­orðum flokks­ins hafi hann leyft egóinu að ná tökum á sér og hafi tekið með­vit­aða ákvörðun um að verða "næsti De Gaulle, eða Mitt­errand lík­legar."


Gagnrýni Varoufakis er í takt við aukna gagn­rýni meðal vinstri sinn­að­asta hóps­ins sem var innan Syriza, en 25 þing­menn hið minnsta hafa yfir­gefið flokk­inn og myndað nýjan. Þeir ætlar að reyna að mynda banda­lög með öðrum sem eru mót­fallnir aðhalds­að­gerðum.


Nú, tæpum átta mán­uðum eftir hinn sögu­lega sigur Tsipras, Varoufakis og félaga í Syriza, eru þeir báðir horfnir á braut og veru­lega umdeil­an­legt þykir, hvort þeir hafi náð miklum árangri við að end­ur­semja um skuldum vaf­inn þjóð­ar­hag Grikk­lands. Tsipras sagði af sér á fimmtu­dag­inn sem for­sæt­is­ráð­herra og boð­aði um leið til kosn­inga í land­inu 20. sept­em­ber.

Vaxandi þrýst­ingur var á hann innan úr Syriza flokknum, þar sem mikil óánægja var með það sam­komu­lag sem að lokum var gert við kröfu­hafa. Varoufakis var þá þegar búinn að segja af sér sem fjár­mála­ráð­herra, enda var hann æfur yfir sam­komu­lag­inu og afar ósáttur við að Grikkir hafi verið „þving­aðir til þess að taka á sig skuldir sem þeir ráða ekki við“ eins og hann komst sjálfur að orði.

Sam­komu­lagið við kröfu­hafa, sem sam­þykkt hefur verið í gríska þing­inu og þegar er byrjað að vinna eftir, gerir ráð fyrir 86 millj­arða evra lán­veit­ingum, sem er risa­vaxin fjár­hæð fyrir ríf­lega ell­efu millj­óna þjóð. Skuldir hins opin­bera eru svim­andi háar sömu­leiðis og nema um 175 pró­sentum af árlegri lands­fram­leiðslu. Um tutt­ugu millj­arðar evra a þess­ari heild­ar­á­ætlun fara í end­ur­skipu­lagn­ingu á fjár­mála­kerfi lands­ins, sem er að hruni komið, en stór hluti afgangs­ins fer í að end­ur­fjár­magna skuldir og styrkja rekstur hins opin­bera.

Eftir að mik­ill meiri­hluti grísku þjóð­ar­innar hafn­aði sam­komu­lagi við kröfu­hafa í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, 6. júlí, hefur mikið vatn runnið til sjávar.

Á aðeins rúm­lega sex vikum hefur Syriza flokk­ur­inn misst vopnin og glímir við miklar inn­an­flokks­deilur, sem ekki sér fyrir end­ann á. Kosn­ing­arnar 20. sept­em­ber marka því enn á ný tíma­mót í grískt þjóð­líf, og nýtt upp­haf í stjórn­mála­líf­inu á sama tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár