Nýtt leikrit veitir kvenskörungi uppreist æru

„Ég finn mig skylduga til að segja þessa sögu,“ segir Tinna Sverr­is­dóttir sem grét nán­ast á hverri æfingu fyrstu vik­urnar í und­ir­bún­ingi fyrir leik­rit sem varpar nýju ljósi á ævi Sunnefu Jóns­dóttur. Sunnefa var tví­dæmd til dauða á 18. öld fyrir blóð­skömm.

Átakanlegt hlutverk
Átak­an­legt hlut­verk Tinna Sverr­is­dóttir fer með hlut­verk Sunnefu Jóns­dóttur, valda­lausri konu sem reis upp gegn feðra­veld­inu. Tinna segir að hlut­verkið hafi verið átak­an­legt en í senn mjög gef­andi. Mynd: Heida Helgadottir

„Hún er tákn­gerv­ingur þess­arar bar­áttu­sögu íslenskra kvenna. Hún rís upp úr ógeðs­legu ofbeldi og segir sann­leik­ann.“ Svona lýsir Tinna Sverr­is­dóttir Sunnefu, aðal­per­són­unni í sam­nefndu leik­riti, en hún fer með hlut­verk hennar.

Sunnefa Jóns­dóttir var uppi á 18. öld og var tví­vegis dæmd til dauða fyrir blóð­skömm, en hún var sökuð um að eiga tvö börn með yngri bróður sínum þegar hún var 16 og 18 ára gömul. Á Alþingi 1734 olli hún fjaðrafoki þegar hún, blá­fá­tæk alþýðu­kona, neit­aði ákæru og sak­aði Hans Wíum, sýslu­mann­inn sem sótti hana til saka, um að hafa barnað sig. Málið er enn þann dag í dag eitt lengsta saka­mál Íslands­sög­unnar, en Sunnefa var á end­anum sýknuð af Dana­kon­ungi. Hún dó þó áður en hún gat notið frels­is­ins.

Aðeins örfáar heim­ildir eru til um líf og ævi Sunnefu, en þær eru ekki skrif­aðar með samúð fyrir stöðu eða aðstæðum hennar. Nýtt leik­rit eftir Árna …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár