Hans Hedtoft, skipið sem átti ekki að geta sokkið

Fyrir 60 árum fórst danska græn­lands­farið Hans Hedtoft undan suð­ur­odda Græn­lands og með því 95 manns. Þetta var fyrsta ferð skips­ins sem sagt var að gæti ekki sokkið. Eina sem fund­ist hefur úr skip­inu er bjarg­hringur sem rak á fjöru á Íslandi.

Fyrir 60 árum, 30. jan­úar 1959, fórst danska græn­lands­farið Hans Hedtoft undan suð­ur­odda Græn­lands og með því 95 manns. Þetta var fyrsta ferð skips­ins sem sagt var að gæti ekki sokkið. Um borð í skip­inu voru tug­þús­undir mik­il­vægra og sögu­legra græn­lenskra skjala. Eina sem nokkru sinni hefur fund­ist úr skip­inu er bjarg­hringur sem rak á fjöru austan við Grinda­vík.

Árið 1958 lét Kon­ung­lega græn­lenska versl­un­ar­fé­lagið (KGH) smíða skip til Græn­lands­sigl­inga. Skipið var smíðað í Frederiks­havn á Jótlandi og smíðin tók aðeins fjóra mán­uði. Ákveðið var að nafnið bæri nafn Hans Hedtoft fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Dana. Þetta var stærsta skip sem félagið hafði eign­ast, var 2900 brúttó­tonn, 83 metra langt og rúm­lega 14 metra breitt. Það var hannað til sigl­inga í ís, meðal ann­ars með sér­styrkt stefni og tvö­faldan botn. Skrokknum var skipt upp í sjö hólf og var gert ráð fyrir að þótt eitt hólfið fyllt­ist af sjó myndi skipið eigi að síður fljóta. Skrokk­ur­inn var raf­soð­inn saman en ekki hnoð­aður eins og þá tíðk­að­ist með skip sem ætluð voru til sigl­inga á norð­ur­slóðum. Rafsuðu­að­ferðin gerði það að verkum að skrokk­ur­inn var stíf­ari en það var tal­inn ókostur ef skipið ræk­ist á ísjaka.

For­svars­menn KGH voru mjög stoltir af nýja skip­inu og sögðu í við­tölum að það ,,gæti hrein­lega ekki sokkið“. Ýmsir úr hópi þáver­andi og fyrr­ver­andi skip­stjórn­ar­manna KGH höfðu ein­dregið lagst gegn vetr­ar­sigl­ingum á haf­svæð­inu við Grænland, einkum við syðsta odda lands­ins Uummannarsuaq (Hvarf, á dönsku Kap Farvel). Snemma árs 1957 lenti græn­lands­farið Umanak, í tvígang, í miklum erf­ið­leikum í ofsa­veðri á þessum slóðum, við Hvarf. Stjórn­mála­menn og for­svars­menn KGH gáfu hins­vegar lítið fyrir þessa gagn­rýni, hún var þögguð niður.

Kvatt með viðhöfn

Hans Hedtoft lagði upp frá Kaup­manna­höfn 7. jan­úar 1959. Fjöldi fólks var sam­an­kom­inn á bryggj­unni á Krist­jáns­höfn (gegnt Nýhöfn­inni) til að kveðja ætt­ingja og vini sem voru á leið til Græn­lands. Auk 60 far­þega og 40 manna áhafnar var skipið hlaðið ýmis konar varn­ingi. Skipið lenti í leið­inda­veðri á leið­inni til Græn­lands, sigl­ingin frá Kaup­manna­höfn tók rétta viku, mun skemmri tíma en það tók Umanak, sem áður var á minnst, að sigla þessa leið. Fyrsti við­komu­staður á Græn­landi var Qaqortog (Juli­anehaab), þar var tekið á móti skip­inu með við­höfn. Síðan var siglt áfram upp með vest­ur­strönd­inni, komið við á nokkrum stöðum og síðan til baka til Qaqortog.

95 farþegar, 960 tonn af varningi, þar á meðal 16 tonn af skjölum

29. jan­úar 1959 lagði Hans Hedtoft úr höfn í Qaqortog. Auk 40 manna áhafnar voru 55 far­þegar og tæp­lega 1000 tonna fragt. Stærstur hlut­inn fros­inn fiskur, salt­aðar fiskaf­urðir og lýsi. Auk þess 174 póst­pokar, með pökkum og bréfum og síð­ast ekki síst 16 tonn af alls kyns skjölum úr græn­lenska þjóð­skjala­safn­inu. Þessi skjöl höfðu verið varð­veitt í Qaqortog, en búið var að ákveða að flytja þau til rík­is­skjala­safns­ins í Kaup­manna­höfn, þar sem skil­yrði til varð­veislu voru önnur og betri. Danskir og græn­lenskir emb­ætt­is­menn höfðu lagst gegn því að skjölin yrðu öll flutt til Dan­merkur, í einni ferð, og þar að auki að vetr­ar­lagi. Meðal far­þeg­anna var græn­lenski þing­mað­ur­inn Augo Lynge en tveimur árum fyrr hafði hann, í ræðu í danska þing­inu, Fol­ket­inget, lagst gegn vetr­ar­sigl­ingum til Græn­lands, taldi þær alltof áhættu­samar.

Þegar Hans Hedtoft lagði af stað frá Qaqortog var veð­ur­út­litið þokka­legt og í byrjun gekk allt vel.

Neyðarkall

30. jan­úar, dag­inn eftir að heim­ferðin hófst, var Hans Boisen á vakt á loft­skeyta­stöð­inni í Qaqortog. Skyndi­lega heyrði hann ógreini­lega eitt­hvað sem honum fannst vera neyð­ar­kall en var þó ekki viss. ,,Þetta var neyð­ar­kall“ sagði Boisen við tækni­mann­inn Thomsen. ,,Nei, var þetta ekki bara ein­hver að prófa mors­kerfið“ svar­aði Thomsen. Boisen hækk­aði í tækj­unum og fylgd­ist vel með. Tveimur mín­útum síðar heyrð­ist greini­legt kall í tal­stöð­inni, á neyð­ar­bylgj­unni 2182 ,,mayday, mayday“. Klukkan var 13.50. Boisen svar­aði og loft­skeyta­mað­ur­inn á Hans Hedtoft til­kynnti að sjór væri kom­inn i vél­ar­rúm skips­ins og veðrið væri mjög slæmt. Hann gaf jafn­framt upp stað­ar­á­kvörðun. Boisen loft­skeyta­maður í Qaqortog sendi þegar í stað út, bæði gegnum tal­stöð og mors­kerfi, skila­boð til allra skipa sem hugs­an­lega væru á þessu svæði. Nokkur skip svör­uðu strax og þýskur tog­ari, Johannes Kruss reynd­ist vera næst þeim stað sem loft­skeyta­mað­ur­inn á Hans Hedtoft hafði gefið upp og skip­stjór­inn á tog­ar­anum taldi að það tæki þrjá til fjóra tíma á kom­ast á stað­inn. Mikið íshröngl, og jakar, voru á þessu svæði og tafði það mjög ferð tog­ar­ans.

Hvar var Hans Hedtoft?

Nú kom upp nýtt vanda­mál. Stað­ar­á­kvörð­unin sem loft­skeyta­mað­ur­inn á Hans Hedtoft gaf upp pass­aði ekki við þá stað­setn­ingu sem loft­skeyta­menn í Qaqortog höfðu stungið út (plottað) á sjó­korti. Þýski skip­stjór­inn hafði líka stungið út stað­setn­ing­una og auk þess notað mið­un­ar­stöð tog­ar­ans, sem var mjög full­komin á þeirra tíma mæli­kvarða Skip­stjór­inn ákvað að fylgja stað­setn­ing­unni sem hann og loft­skeyta­menn­irnir í Qaqortog höfðu reiknað út. Þegar þýski tog­ar­inn kom á stað­inn sem mið­aður hafði verið út bað skip­stjór­inn áhöfn­ina á Hans Hedtoft að skjóta upp rak­ettum. Eftir nokkra stund spurði loft­skeyta­mað­ur­inn á Hans Hedtoft hvort áhöfnin á tog­ar­anum hefði séð þær. Svo var ekki, enda veðrið mjög slæmt. Skip­stjóri tog­ar­ans sagði síðar að Hans Hedtoft hefði getað verið í 30 - 40 metra fjar­lægð án þess að tog­ara­menn sæu rak­ett­urnar.

Vi synker langsomt

Klukkan 17.41 sendi loft­skeyta­mað­ur­inn á Hans Hedtoft út ofan­greind skila­boð á mors­inu. 25 mín­útum síðar heyrði loft­skeyta­mað­ur­inn á tog­ar­anum ógreini­legt mors­merki og spurði ,,Hans Hedtoft ertu þarna“. Ekkert svar barst. Hans Boisen loft­skeyta­maður í Qaqortog og félagi hans heyrðu líka þessa ógreini­legu send­ingu og voru sam­mála um að þetta hefðu verið þrjú orð ,,við sökkvum nú“ Þetta var það síð­asta sem heyrð­ist frá Hans Hedtoft. Skip­stjóri þýska tog­ar­ans sagði síðar að hann teldi öruggt að tog­ar­inn hefði verið mjög skammt þar frá sem Hans Hedtoft hvarf í hafið en þeir hefðu eigi að síður orðið einskis varir.

Mikil en árangurslaus leit

Næstu daga fór fram mikil leit á stóru svæði á stóru svæði suður af Hvarfi, bæði á sjó og úr lofti. Veður var slæmt til leitar og ekk­ert fannst en áhöfn einnar leit­ar­vélar sá eitt­hvað, sem virt­ist vera nokkrar spýtur, en það var allt og sumt.

Vakti mikla athygli

Þetta slys vakti mikla athygli víða um heim. Margir fjöl­miðlar líktu slys­inu við það þegar far­þega­skipið Titanic fórst árið 1912. Um Titanic var sagt, eins og um Hans Hedtoft, að skipið ætti ekki að geta sokkið. Titanic var marg­falt stærra skip en Hans Hedtoft, og af þeim 2224 sem voru þar um borð björg­uð­ust 710, en um Hans Hedtoft slysið var eng­inn til frá­sagnar.

Þáttur ráðherrans

Framar í þessum pistli var þess getið að skip­stjórn­ar­menn hjá KGH hefðu lagst gegn vetr­ar­sigl­ingum til Græn­lands. Eftir slysið kom í ljós að þeir höfðu verið neyddir til að skrifa undir yfir­lýs­ingu um að ekk­ert væri athuga­vert við slíkar sigl­ingar. Johannes Kjærbøl sem var á þeim tíma ráð­herra Græn­lands­mála full­yrti að hann hefði ekk­ert vitað um efa­semdir varð­andi vetr­ar­sigl­ingar, sér hefði ein­ungis verið kunn­ugt um yfir­lýs­ing­una um að ekk­ert væri athuga­vert við að sigla til Græn­lands að vetr­ar­lagi. Þeir sem skrif­uðu undir yfir­lýs­ing­una sögðu að Johannes Kjærbøl ráð­herra hefði vitað allt um efa­semdir þeirra (sem voru til skrif­legar) en hann og for­svars­menn KGH hefðu lagt ofurá­herslu þessar vetr­ar­sigl­ingar.

Þingmenn danska Íhalds­flokks­ins, Venstre og Sós­íal­íska þjóð­ar­flokks­ins kröfð­ust þess að ráð­herr­ann yrði dreg­inn fyrir rétt. Rík­is­stjórn sós­í­alde­mókrata kom í veg fyrir það en sam­þykkti yfir­lýs­ingu þar sem ráð­herr­ann (sem þá var orð­inn fyrr­ver­andi) var gagn­rýndur.

Tilgátur

Ekkert hefur enn komið fram sem skýrir hvað olli því að Hans Hedtoft sökk. Loft­skeyta­mað­ur­inn um borð hafði sagt að sjór væri kom­inn í vél­ar­rúm skips­ins og minnst á ísjaka. Nokkrar til­gátur hafa komið fram en eins og áður var á minnst var skrokkur skips­ins soð­inn saman en ekki hnoð­aður. Ein til­gátan er sú að skipið hafi siglt á ísjaka, við höggið hafi suða í byrð­ingi skips­ins, við vél­ar­rúmið, gefið sig með þeim afleið­ingum að gat hafi komið á skrokk­inn, sem var ekki tvö­faldur eins og algengt varð síðar. Og höggið hafi enn­fremur orðið til þess að suður í skil­rúmum sem áttu að tryggja að að skipið flyti þótt eitt hólfanna sjö, sem áður var getið, hafi gefið sig. Önnur til­gáta er að ísjaki hafi rek­ist á skipið aft­antil og gert gat á byrð­ing­inn. Síðan hafi skil­rúmin milli hólfanna ekki reynst nægi­lega sterk og sjór­inn smám saman kom­ist um allt skip. En þótt til­gát­urnar skorti ekki veit eng­inn hvað olli slys­inu.

Liggur á miklu dýpi

Nokkrum sinnum hafa verið gerðar til­raunir til að finna flak Hans Hedtoft. Þær til­raunir hafa engan árangur borið, en á svæð­inu þar sem skipið fórst er dýpið um það bil tveir kíló­metrar. Fyrir nokkrum árum var stofn­aður í Danmörku félags­skapur í þeim til­gangi að finna flak Hans Hedtoft en ekki tókst að safna nægi­legum fjár­munum og ekk­ert varð úr leit­inni.

Björgunarhringurinn

7. októ­ber 1959, átta mán­uðum eftir að Hans Hedtoft fórst fann Magnús Haf­liða­son bóndi á Hrauni við Grinda­vík björg­un­ar­hring í fjör­unni neðan við bæinn. Hring­ur­inn var heil­legur og á hann letrað Hans Hedtoft Køben­havn. Magnús bóndi fór með hring­inn til Slysa­varna­fé­lags Íslands í Reykja­vík sem kom honum áfram til Dan­merkur. Fréttir af þessum fundi vöktu mikla athygli og myndir af Magnúsi bónda og björg­un­ar­hringnum voru á for­síðum allra danskra dag­blaða og frá fund­inum greint í fjöl­miðlum víða um lönd.

Björg­un­ar­hring­ur­inn er varð­veittur í kirkj­unni í Qaqortog en í tengslum við að þess er nú minnst að 60 ár eru liðin frá slys­inu við Grænland var hring­ur­inn lán­aður til Kaup­manna­hafnar og er þessa dag­ana í Holmens kirke, gegnt Krist­jáns­borg. 30. jan­úar síð­ast­lið­inn voru víða í Danmörku haldnar minn­ing­ar­at­hafnir þar sem þeirra sem fór­ust með Hans Hedtoft var minnst.

Þess má geta að á Norð­ur­bryggju í Kaup­manna­höfn (þar sem íslenska sendi­ráðið er til húsa) má sjá skjöld með nöfnum þeirra sem fór­ust með Hans Hedtoft

Í lokin má geta þess að 21. febr­úar 1967 fórst þýski tog­ar­inn Johannes Kruss (sem fyrst skipa kom á slys­stað­inn 1959) á sömu slóðum og Hans Hedtoft átta árum fyrr. 22 voru í áhöfn tog­ar­ans og fór­ust þeir allir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár