Fótboltalið í frystikistu breskra stjórnvalda

Á meðal sjö rúss­neskra auð­manna sem bætt­ust á refsilista breskra stjórn­valda í morgun var Roman Abramovich, aðal­eig­andi fót­boltaliðs­ins Chelsea. Fyr­ir­huguð sala hans á lið­inu er í upp­námi og liðið sjálft beitt ýmsum hömlum.

Roman Abramovich er eigandi Chelsea.
Roman Abramovich er eig­andi Chelsea. Mynd: EPA

Sjö rúss­neskum við­skipta­mönnum með tengsl við rúss­nesk stjórn­völd var í morgun bætt á lista breskra stjórn­valda yfir ein­stak­linga sem sæta skulu við­skipta­þving­unum. Einn þess­ara aðila og sá lang­rík­asti af sjömenn­ing­unum er Roman Abramovich, eig­andi knatt­spyrnu­liðs­ins Chelsea í Lundúnum.

Allar eignir Rússanna sjö í Bret­landi verða frystar – og þar á meðal sjálft fót­boltaliðið. Abramovich til­kynnti í síð­ustu viku að hann ætl­aði sér að selja knatt­spyrnu­fé­lagið og láta ágóð­ann renna til „fórn­ar­lamba stríðs­ins í Úkraínu“, en ljóst virð­ist að ekk­ert geti orðið af þeim áformum á næst­unni. Hið minnsta mun Abramovich ekki fá að hafa neitt að gera með ráð­stöfun ágóð­ans af mögu­legri sölu, sam­kvæmt breskum miðlum.

Knatt­spyrnu­liðið fær áfram að leika leiki sína, en má ekki selja neina nýja miða né selja stuðn­ings­mönnum neinn varn­ing með beinum hætti í gegnum versl­anir á vegum liðs­ins. Félagið mun heldur ekki geta samið við leik­menn sína um áfram­hald­andi veru hjá lið­inu né keypt nýja leik­menn, en sér­stakt leyfi hefur verið gefið út til þess að liðið fái að spila kapp­leiki sína og greiða leik­mönnum og öðru starfs­fólki laun.

Samkvæmt því sem fram kemur á vef Sky-frétta­stof­unnar má Chelsea verja 500 þús­und pundum í nauð­syn­lega örygg­is­gæslu fyrir kapp­leiki á sínum eigin heima­velli, en ein­ungis 20 þús­und pundum í ferða­lög liðs­ins í úti­leiki.

Það er jafn­virði 3,4 millj­óna íslenskra króna og má telj­ast hæpið að knatt­spyrnu­menn liðs­ins ferð­ist með einka­þotum í leiki fjarri London á næst­unni – nema þeir ákveði ef til vill sjálfir að slá saman í sjóð fyrir ferða­kostn­aði.

Stál frá fyrirtæki undir stjórn Abramovich mögulega notað í rússneska skriðdreka

Í skjali sem bresk yfir­völd birtu í morgun er fjallað um ástæð­urnar fyrir því að Abramovich og sex rúss­neskir auð­menn til við­bótar sæta nú refsi­að­gerðum. Í til­felli Abramovich virð­ist ástæðan fyrir refsi­að­gerð­unum einna helst vera eign­ar­hald hans á stálfram­leið­and­anum Evraz, þar sem hann fer með ráð­andi hlut.

Abramovich er lýst, í skjali breskra yfir­valda, sem nánum stuðn­ings­manni Vla­dimírs Pútíns Rúss­lands­for­seta.

[adspot]

Í skjali breskra stjórn­valda segir að Evraz kunni mögu­lega að hafa selt rúss­neska hernum stál sem nýtt hafi verið til fram­leiðslu á skrið­drekum. Evraz, sem er skráð á hluta­bréfa­markað í London, hefur tapað yfir 80 pró­sentum af mark­aðsvirði sínu und­an­far­inn mánuð og hluta­bréf í félag­inu hafa lækkað um rúm tíu pró­sent í verði bara í dag.

Bresk yfirvöld gagnrýnd fyrir að hreyfa sig hægt

Rúss­nesku auð­menn­irnir sjö bæt­ast í hóp um tvö­hund­ruð ann­arra ein­stak­linga sem sæta nú refsi­að­gerðum Breta vegna inn­rásar Pútíns í Úkraínu. Breska rík­is­stjórnin hefur verið gagn­rýnd fyrir að hreyfa sig hægt í refsi­að­gerðum sínum gagn­vart – og hafa gagn­rýnendur bent á að þeir sem ótt­ist refsi­að­gerðir hafi haft rúman tíma til þess að koma eignum sínum frá Bret­landi og í skjól.

Breskir ráð­herrar eru víg­reifir í yfir­lýs­ingum sínum í dag. Í frétta­til­kynn­ingu breskra stjórn­valda vegna aðgerð­anna á hendur auð­mönn­unum sjö er haft eftir Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra að ekk­ert skjól eigi að finn­ast fyrir þá sem stutt hafi við grimmd­ar­legar árásir Pútíns á Úkraínu.

„Refsi­að­gerðir dags­ins eru nýjasta skrefið í ein­örðum stuðn­ingi Bret­lands við Úkra­ínu­menn. Við munum verða vægð­ar­laus í elt­ing­ar­leik okkar við þau sem styðja við dráp á almennum borg­urum, eyði­legg­ingu spít­ala og ólög­legt her­nám sjálf­stæðra banda­manna okkar,“ er einnig haft eftir Johnson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár