Tveir af þremur bönkum hafa þegar hækkað íbúðalánavexti og flestir stærstu sjóðirnir líka

Greiðslu­byrði af óverð­tryggðu íbúða­láni upp á 50 millj­ónir hefur auk­ist um meira en 1,2 millj­ónir króna á árs­grund­velli. Í byrjun síð­asta árs voru vext­irnir rúm­lega þrjú pró­sent. Nú eru þeir í sumum til­fellum orðnir sjö pró­sent.

Greiðslubyrði þeirra sem keyptu húsnæði með óverðtryggðu láni á breytilegum vöxtum á meðan vextir voru í sögulegu lágmarki hefur hækkað gríðarlega.
Greiðslu­byrði þeirra sem keyptu hús­næði með óverð­tryggðu láni á breyti­legum vöxtum á meðan vextir voru í sögu­legu lág­marki hefur hækkað gríð­ar­lega. Mynd: Pexels

Lands­bank­inn og Íslands­banki hafa báðir hækkað vexti af óverð­tryggðum íbúða­lánum í kjöl­far stýri­vaxt­ar­hækk­unar Seðla­banka Íslands í síð­ustu viku. Þá voru stýri­vextir hækk­aðir um 0,75 pró­sentu­stig upp í 5,5 pró­sent.

[links]Breyti­legir vextir á óverð­tryggðum grunn­lánum til íbúð­ar­kaupa (allt að 70 pró­sent af kaup­verði) hjá Lands­bank­anum, sem er nán­ast að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, hækka til jafns við stýri­vaxta­hækk­un­ina og verða sjö pró­sent. Þurfi fólk hærra hlut­fall að láni eru vext­irnir enn hærri.

Íslands­banki hækkar sömu­leiðis breyti­lega óverð­tryggða vexti af grunn­lánum um 0,75 pró­sentu­stig.

Arion banki hefur, enn sem komið er, ekki til­kynnt um vaxta­hækkun en við­búið að það verði gert á næstu dögum.

Lífeyrissjóðirnir líka að hækka

Stjórn líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna ákvað á fundi sínum í síð­ustu viku að hækka vexti á óverð­tryggðum breyti­legum íbúða­lánum úr 5,73 í 6,56 pró­sent, eða um 0,83 pró­sentu­stig. Breyt­ingin tekur gildi 1. októ­ber næst­kom­andi. Um er að ræða lán fyrir 70 pró­­sent af kaup­verði sem að hámarki mega vera 75 millj­­ónir króna.

[adspot]Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Brú, sem hefur boðið upp á lægsta vexti á óverð­tryggðum breyti­legum lánum und­an­farin miss­eri, ákvað á fimmtu­dag að hækka sína vexti úr 5,2 í 6,3 pró­sent.

Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) til­kynnti svo í gær að óverð­tryggðir vextir hans myndu hækka úr 6,95 í 7,55 pró­sent, en þar er um að ræða fasta vexti til þriggja ára. LSR býður ekki upp á breyti­lega vexti.

Gildi, sem er líka stór­tækur í íbúða­lánum, hefur ekki til­kynnt um vaxta­hækkun enn sem komið er.

Fólk flykkt­ist í breyti­lega óverð­tryggða vexti

Hlut­fall lána sem er á breyti­legum vöxtum hefur vaxið gríð­ar­lega á síð­ustu árum, en kjör á þeim urðu um tíma mjög skap­leg eftir að Seðla­bank­inn lækk­aði stýri­vexti niður í 0,75 pró­sent á meðan að á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum stóð. Aðsókn í óverð­tryggð lán, sem fela í sér hærri greiðslu­byrði en hrað­ari nið­ur­greiðslu á höf­uð­stól, jókst í þessu ástandi. Hlut­fall þeirra af öllu útlánum til íbúð­ar­kaupa var 15 pró­sent um mitt ár 2016 og 27,5 pró­sent í byrjun árs 2020 en er nú komið í 56 pró­sent.

Hlut­­­deild banka í úti­stand­andi íbúða­lánum er nú yfir 70 pró­­­­sent en var 55 pró­­­­sent í byrjun árs 2020. Á þessu tíma­bili hafa bank­­arnir hagn­­ast um tugi millj­­arða króna og und­an­farið hefur vaxta­munur þeirra farið hækk­­and­i.

Stýri­vextir hafa hækkað um 4,75 pró­sentu­stig frá því í maí í fyrra vegna við­leitni Seðla­bank­ans til að stemma stigu við sífellt auk­inni verð­bólgu, en hún mælist nú um 9,9 pró­sent. Bank­inn spáir því að verð­bólgan fari í 10,8 pró­sent fyrir lok árs. Helsti drif­kraftur hennar hefur verið hækk­andi íbúða­verð.

Íbúða­mark­aður far­inn að kólna

Íbúða­verð á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu hækk­­aði um 1,1 pró­­sent milli mán­aða, sam­­kvæmt nýbirtri mán­að­­ar­­skýrslu Hús­næð­is- og mann­­virkja­­stofn­un­­ar. Það er mun minni hækkun milli mán­aða en hefur mælst milli mán­aða í nokkuð langan tíma og því ljóst að aðgerðir Seðla­bank­ans til að draga úr vilja og getu til lán­töku eru að hafa áhrif.

Íbúða­verð á svæð­inu hefur hækkað um 15,5 pró­­sent síð­­­ustu sex mán­uði og 25,5 pró­­sent síð­­asta árið. Ef horft er aftur til upp­­hafs kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­s­ins, sem hófst af alvöru hér­­­lendis í mars 2020, þá hefur íbúða­verð á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu hækkað um 48 pró­­sent.

[adspot]Á land­inu öllu hækk­­aði íbúða­verð um 26,4 pró­­sent frá júní í fyrra og til loka sama mán­aðar í ár. Verðið hækk­­aði meira í nágranna­sveit­­ar­­fé­lögum höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu og ann­­ars staðar á lands­­byggð­inni en í höf­uð­­borg­inni sjálfri og sveit­­ar­­fé­lög­unum sem liggja að henn­i.

Athygl­is­vert er að frá sum­r­inu 2020 hefur verð­bil á íbúðum auk­ist þannig að dýrar íbúðir virð­­ast hafa hækkað meira í verði en ódýr­­ar, sam­­kvæmt sam­an­­tekt HMS.

Stór­aukin greiðslu­byrði heim­ila

Greiðslu­byrði hús­næð­is­lána lækk­aði skarpt þegar Seðla­bank­inn hóf að lækka stýri­vexti í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Strax um síð­ustu ára­mót, þegar stýri­vextir voru tvö pró­sent, var greiðslu­byrði íbúða­lána á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þó orðin svipuð og hún var fyrir far­ald­ur­inn vegna vaxta- og verð­hækk­ana á íbúða­mark­aði. Síðan þá hafa stýri­vextir verið hækk­aðir um 3,5 pró­sentu­stig og greiðslu­byrði lána stór­auk­ist sam­hliða.

Í fréttum RÚV í síð­ustu viku kom fram að greiðslu­byrði af óverð­tryggðum lánum með breyti­lega vexti hefði auk­ist um ríf­lega hund­rað þús­und krónur á mán­uði, miðað við 50 milljón króna lán sem tekið var í byrjun árs 2021 á þeim 3,4 pró­sent vöxtum sem buð­ust þá.

Greiðslu­byrði slíks láns var í upp­hafi um 190 þús­und krónur en er nú 290 þús­und krónur. Þá á eftir að taka inn áhrif þeirra vaxta­hækk­ana sem til­greindar eru hér að ofan, og ákveðnar voru eftir síð­ustu stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands.

Á árs­grund­velli er greiðslu­byrði slíks láns því að hækka um meira en 1,2 millj­ónir króna á ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár