Greiðslubyrðin svipuð og fyrir faraldurinn

Í kjöl­far mik­illa vaxta­lækk­ana hjá Seðla­bank­anum lækk­uðu afborg­anir af hús­næð­is­lánum til muna. Þessi lækkun er nú að miklu leyti gengin til baka, þar sem bæði hús­næð­is­verð og vextir hafa hækkað á und­an­förnum mán­uðum.

Lítill munur er á greiðslu­byrði hús­næð­is­lána á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nú og fyrir far­ald­ur­inn, en hún hefur auk­ist tölu­vert á síð­ustu mán­uðum vegna vaxta- og verð­hækk­ana á fast­eigna­mark­aðnum. Þetta kemur fram í mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar, sem kom út í morgun.

Kaupverð í sérbýli hækkað um 22 prósent

Samkvæmt skýrsl­unni nam með­al­kaup­verðið á íbúð í fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 58 millj­ónir króna í nóv­em­ber, og hefur það hækkað um tvær millj­ónir króna frá því í sama mán­uði árið áður. Hækkunin var enn meiri hjá íbúðum í sér­býli, en verð þeirra fór úr 80,2 millj­ónum króna í 98 millj­ónir á einu ári.

Sem fyrr er kaup­verðið á fast­eignum lang­hæst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en dregið hefur úr mun­inum á verð­inu í höf­uð­borg­inni og nágranna­sveit­ar­fé­lögum þess á síð­ustu mán­uðum. Með­al­kaup­verðið á Suð­ur­landi og Suð­ur­nesjum nam tæpum 45 millj­ónum króna í nóv­em­ber, á meðan íbúðir á vest­ur­landi seld­ust fyrir tæpar 40 millj­ónir króna. Lægst var kaup­verðið á Vest­fjörðum þar sem íbúðir seld­ust að með­al­tali fyrir 23 millj­ónir króna.

Minni greiðslubyrði en 2019

HMS segir lágt vaxta­stig vera einn af þeim þáttum sem hafa haft hvað mest áhrif á þróun íbúða­verðs frá upp­hafi COVID-19 far­ald­urs­ins. Með vaxta­lækk­unum Seðla­bank­ans, sem hófust árið 2019, hafi greiðslu­byrðin á hús­næð­is­lánum minnkað til muna, sér­stak­lega ef tekið er til­lit til verð­bólgu yfir tíma.

Í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins snar­minnk­aði svo greiðslu­byrðin í kjöl­far þess sem Seðla­bank­inn lækk­aði vexti sína um 2,25 pró­sentu­stig á nokkrum mán­uðum. Á fyrri hluta síð­asta árs var því mun auð­veld­ara að standa straum af útborg­unum af íbúð en áður, þrátt fyrir að íbúða­verð væri í örum vexti á þeim tíma.

Á síð­ustu mán­uðum hefur hafa svo þrá­látar verð­hækk­anir, til við­bótar við vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans, farið að segja til sín og er nú nær öll minnkunin í greiðslu­byrði á lánum fyrir íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gengin til baka. Greiðslu­byrðin er enn 13,7 pró­sentum minni en hún var á toppi upp­sveifl­unnar á íbúða­mark­aði árið 2019, en er nú komin á svip­aðar slóðir og hún var á fyrir far­ald­ur­inn.

Lífeyrissjóðir með endurkomu á lánamarkað

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um áður jókst ásókn í hús­næð­is­lán hjá líf­eyr­is­sjóð­unum í nóv­em­ber, í fyrsta skipti frá því í maí 2020. Í þeim mán­uði fóru sjóð­irnir að bjóða upp á vexti á lán­unum sem voru sam­keppn­is­hæfir við lána­kjör bank­anna.

Samkvæmt HMS voru lægstu óverð­tryggðu vext­irnir ekki hjá við­skipta­bönk­unum í nóv­em­ber í fyrra, heldur hjá líf­eyr­is­sjóð­unum. Hjá bönk­unum var hægt að fá hús­næð­is­lán á rúm­lega fjög­urra pró­senta vöxtum, en bestu vaxta­kjör hjá líf­eyr­is­sjóð­unum voru í kringum 3,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár