Ensku félögin hafa þegar slegið eyðslumetið - og það er tæp vika eftir

Ensku úrvals­deild­ar­fé­lögin hafa þegar eytt 880 millj­ónum punda í leik­menn í sum­ar­glugg­anum, sem er met. Sú upp­hæð á lík­lega eftir að hækka á enda­spretti ágústs­mán­aðar. Er eyðslan orðin algjört rugl eða er þetta eðli­leg þróun?

Paul Pogba varð dýrasti leikmaður heims þegar Manchester United keypti hann frá Juventus.
Paul Pogba varð dýr­asti leik­maður heims þegar Manchester United keypti hann frá Juventus. Mynd: EPA

Félögin í ensku úrvals­deild­inni hafa nú þegar bætt eyðslu­met sitt í einum félaga­skipta­glugga þetta sum­arið, þótt að enn sé tæp vika eftir þangað til að glugg­anum lokar. Á fimmtu­dag höfðu félögin sam­tals eytt 880 millj­ónum punda, tæp­lega 136 millj­örðum króna, í nýju leik­menn frá því að félaga­skipta­glugg­inn opn­aði í sumar sam­kvæmt tölum frá end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Deloitte sem tekur reglu­lega saman upp­lýs­ingar um fjár­hags­leg mál­efni íþrótta­fé­laga. Það er 30 millj­ónum punda meira en félögin keyptu leik­menn fyrir í öllum sum­ar­glugg­anum í fyrra. Félaga­skipta­glugg­anum verður lokað næsta fimmtu­dag.

Á þessum tíma í fyrra höfðu félögin í ensku úrvals­deild­inni eytt sam­tals 685 millj­ónum punda, eða 78 pró­sent af þeirri upp­hæð sem þegar hefur verið eytt í sumar. Þekkt er að mestum fjár­hæðum er iðu­lega eytt á enda­sprett­inum, rétt áður en glugg­anum er lokað. Í fyrra­sumar eyddu félögin til að mynda 165 millj­ónum punda í nýja leik­menn í síð­ustu viku hans. Það þýðir að fimmt­ungur kaup­verða voru greidd út í henni. Ef það sama ger­ist nú, sem er talið afar lík­legt, þá mun eyðsla félag­anna í ensku úrvals­deild­inni fara vel yfir einn millj­arð punda.

Eyða fjórðungi meira en fyrir áratug

Mikil verð­bólga hefur verið í eyðslu lið­anna í ensku úrvals­deild­inni á und­an­förnum árum. Fyrir ára­tug eyddu þau til að mynda sam­tals 260 millj­ónum punda í nýja leik­menn í sum­ar­glugg­anum. Nú stefnir í að eyðslan verði fjórum sinnum meiri og þetta sumar er það fjórða í röð sem nýtt eyðslu­met er sett.

Stærstu við­skiptin sem átt hafa sér stað þetta sum­arið eru kaup Manchester United á Frakk­anum Paul Pogba fyrir um 89 millj­ónir punda og kaup Manchester City á varn­ar­mann­inum John Stones á um 50 millj­ónir punda. Á meðal þeirra við­skipta sem búið er að semja um en eftir að ganga frá eru kaup Arsenal á varn­ar­mann­inum Shkodran Mustafi á 35 millj­ónir punda og sókn­ar­mann­inum Lucas Perez Martinez á 17 millj­ónir punda.

En það eru ekki bara stærstu liðin sem eru að punga út fárán­legum upp­hæðum fyrir ein­staka leik­menn. Hæsta verð sem t.d. Crystal Palace hafði greitt fyrir leik­mann fyrir þetta tíma­bil voru tíu millj­ónir punda fyrir Yohan Cabaye. Í sumar hefur félagið tví­bætt það met. Fyrst með því að borga 13 millj­ónir punda fyrir Andros Townsend, væng­mann sem komst ekki í enska lands­liðið í sumar, og síðar hátt í 30 millj­ónir punda fyrir Christian Benteke, sókn­ar­mann sem komst ekki lengur á bekk­inn hjá Liverpool. Chelsea keypti miðju­mann­inn N´Golo Kanté á 32 millj­ónir punda, en Leicester hafði keypt hann ári áður á 5,6 millj­ónir punda. Everton keypti kant­mann­inn Yannick Bolasie, sem Crystal Palace keypti á klink fyrir fjórum árum, á 25 millj­ónir punda. Svona mætti lengi áfram telja.

Fjölmörg félög eiga enn eftir að kaupa mikið af leik­mönnum, ef áætl­anir þeirra ganga upp. Hull City hefur til að mynda varla keypt neinn og á ein­ungis 13 aðal­liðs­leik­menn. Áform félags­ins ganga út á að kaupa allt að sjö leik­menn á næstu dögum. West Bromwich Albion vill kaupa fimm og Chelsea mun að öllum lík­indum kaupa tvo fok­dýra leik­menn til við­bótar. Svo fátt eitt sé nefnt.

Risavaxnir sjónvarpssamningar

Ástæðan fyrir þess­ari miklu eyðslu er aug­ljós. Það eru rosa­legir fjár­hags­legir hags­munir undir í því að halda sæti sínu á meðal þeirra bestu í Englandi og fyrir betri liðin aukast þeir hags­munir eftir því sem þau lenda ofar á töfl­unni í lok tíma­bils.

Ástæða ástæð­unnar er umfang ­sjón­varps­rétt­ar­samn­ing, sem hefur auk­ist gríð­ar­lega sam­hliða aukn­um vin­sældum ensku úrvals­deild­ar­innar og fleiri kepp­ast nú um að kom­ast yfir­ rétt­inn en áður. Í byrjun síð­asta árs var gerður nýr samn­ingur sem er að mörg­um talin nærri gal­in. Þá var rétt­ur­inn fyrir árin 2016-2019 seldur fyrir 5,2 millj­arða punda. Það þýðir að Sky Sports og BT Sport, sem keyptu rétt­inn, borga ­meira en tíu milljón pund fyrir hvern leik sem stöðv­arnar sýna.

Til sam­an­burðar má ­nefna að samn­ing­ur­inn sem var í gildi fyrir árin 2013 til 2016 kost­aði um þrjá millj­arða punda. Og þegar úrvals­deildin var sett á fót árið 1992 var ­sjón­varps­rétt­ur­inn seldur til sex ára fyrir 191 milljón punda. Til að setj­a þann vöxt á sölu­tekjum sjón­varps­réttar í sam­hengi þá fengu liðin í deild­inn­i ­sam­tals 32 millj­ónir punda á með­al­tali á árið á tíma­bil­inu 1992 til 1997. Á ár­unum 2016 til 2019 fá þau um 1,3 millj­arða punda til skipt­anna.

Til við­bótar segja enskir fjöl­miðlar að salan á alþjóð­legum sýn­ing­ar­rétti á enska bolt­anum skili ensku úrvals­deild­inni þremur millj­örðum punda á samn­ings­tím­an­um. Sam­tals verður rétt­ur­inn því seldur fyrir um eitt þús­und og sex­hund­ruð millj­arða ­ís­lenskra króna. Eina íþrótta­deildin í heim­inum sem þénar meira vegna seldra ­sjón­varps­rétta er banda­ríska NFL-­deild­in.

Keðjuverkun

Enska úrvals­deildin er alveg sér á báti þegar kemur að vin­sældum og pen­inga­flæði. Þetta vita önnur lið í öðrum deildum, hvort sem um er að ræða neðri deild­irnar í Englandi eða aðrar deild­ar­keppnir í heim­inum.

Það eru því í gangi tvenns konar verðstrúkt­úrar á félaga­skipta­mark­aðnum, sá sem gildir fyrir ensku félögin og felur í sér mun hærra verð, og sá sem gildir fyrir hina. Í praktík virkar þetta þannig að ef enskt félag setur inn til­boð í leik­mann hækkar verðið ósjálfrátt, vegna þess að selj­enda­fé­lagið vita að öll ensku úrvals­deild­ar­fé­lögin eiga ótrú­legt magn af pen­ingum. Af öllum þessum inn­kaupum verður síðan keðju­verkun, þar sem kaup­verðin sem minni lið inn­heimta nýt­ast þeim í að styrkja sig. Því má segja að hinn mikli auður ensku úrvalds­deild­ar­innar sé orð­inn helsti drif­kraft­ur­inn í við­skipta­hlið nútímaknatt­spyrn­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár