Hífuð í hitanum: 500 þúsund lítrar af áfengi á einni viku

Áfeng­is­sala rauk upp í hita­bylgj­unni um miðjan maí og á sól­ríkum dögum í apríl. Íslend­ingar keyptu ríf­lega 500 þús­und lítra af áfengi í Vín­búð­inni á einni viku í byrjun maí, sem er tölu­vert meira en gengur og ger­ist þegar skýin fela sól­ina.

Rjómablíða
Rjóma­blíða Það er líf og fjör í mið­bænum á góð­viðr­is­dögum. Þá er iðu­lega mikið að gera á börum og kaffi­húsum sem selja áfengi. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Það glaðn­aði í lofti í apríl, sem var óvenju sól­ríkur að þessu sinni. Aðra vik­una í maí brast síðan á með mestu hita­bylgju sem vitað er um í maí hér á landi. Þá mæld­ist hiti 20 stig eða meira ein­hvers staðar á land­inu tíu daga í röð svo vitnað sé í Veð­ur­stofu Íslands. 

Eftir dimman vetur þustu Íslend­ingar út undir bert loft til að sleikja sól­skinið. Á sól­ríkum, heitum dögum hefur færst í auk­ana að Íslend­ingar hafi áfengi um hönd, að þeir skáli fyrir sól­inni.

Þetta sést glögg­lega á sölu­tölum Vín­búð­ar­innar. Vikuna heitu, 11.–17. maí, keyptu Íslend­ingar tæpa 504 þús­und lítra af áfengi í Vín­búð­inni. 

„Þetta er mjög mikil sala og í hverri ein­ustu búð, enda var varla ský yfir land­inu,“ segir Sveinn V. Árnason, fram­kvæmda­stjóri hjá ÁTVR. 

Sötra Sider í sólinni

Svo virð­ist sem svo­kall­aður Sider, sem er …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár